„Stríð gegn ofbeldi er ekki svarið“

Ef til er fjár­magn til að fara í stríð gegn fólki hlýtur að vera til fjár­magn til að hjálpa fólki að mati þing­manns Pírata. Stríð gegn ofbeldi er ekki svarið heldur er svarið að finna í heil­brigð­is­kerf­inu.

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Hnífa­árás sem á þriðja tug manna stóð fyrir á skemmti­staðnum Banka­stræti Club á fimmtu­dags­kvöld er skýr birt­ing­ar­mynd um neyð­ar­á­stand í geð­heil­brigð­is­málum að mati Halldóru Mogensen, þing­manns Pírata.

Henni blöskrar við­bragðs- og aðgerð­ar­leysi Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra í geð­heil­brigð­is­málum og beindi hún fyr­ir­spurn sinni á Alþingi í dag til ráð­herra.

„Heil­brigð­is­kerfið okkar hefur hangið á sama lúna blá­þræð­inum árum saman og hefur aldrei nein alvöru upp­bygg­ing átt sér stað eftir þann mikla nið­ur­skurð sem varð í mála­flokknum eftir hrun.“

„Skaðinn sem hlýst af því að hunsa mik­il­vægi þeirrar grunn­þjón­ustu sem hlúir að and­legu og lík­am­legu heil­brigði okkar getur verið óaft­ur­kræfur. Þessi þjón­usta á að grípa okkur þegar við eigum í erf­ið­leikum,“ sagði Halldóra, sem telur heil­brigð­is­kerfið bæði vera að bregð­ast þeim sem þurfa á þjón­ust­unni að halda og þeim sem vinna innan þess.

Enn eitt stríðið gegn fólki sem fær ekki viðunandi aðstoð

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra boðar stríð gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi með átaki sem lög­reglan mun ráð­ast í fljót­lega. Jón greindi frá stríðs­yf­ir­lýs­ing­unni í við­tali í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Tilefnið er hnífstungu­árás á skemmti­staðnum Banka­stræti Club á fimmtu­dag þar sem hópur grímu­klæddra manna réðst inn á stað­inn og stakk tvo menn ítrekað.

Helgi Gunn­laugs­son, pró­fessor í afbrota­fræði við Háskóla Íslands, segir í sam­tali við mbl.is að átökin, sem eru á milli tveggja hópa, minni „bara á Sturl­unga­öld­ina þegar íbúar hér­aða herj­uðu hverjir gegn öðrum“. Þá segir Margeir Sveins­son aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn í sam­tali við Vísi að lög­reglan muni ekki eftir eins umfangs­miklum átökum í und­ir­heimum.

„Það á að fara í enn eitt stríðið gegn fólki sem er að öllum lík­indum í rót­ina að kljást við afleið­ingar langvar­andi áfallastreitu. Stríð gegn fólki sem aldrei hefur fengið við­un­andi aðstoð. Ofbeldi verður nefni­lega ekki til í tóma­rúmi. Áföll ganga í erfðir og valda hringrás sem endar ekki nema gripið sé inn í með aðstoð heil­brigð­is­kerf­is­ins. Ofbeldi getur nefni­lega af sér ofbeldi og stríð gegn ofbeldi er ekki svarið, svarið er í heil­brigð­is­kerf­inu hjá heil­brigð­is­ráð­herra,“ sagði Halldóra.

Þögn heilbrigðisráðherra ærandi

Willum sagði vissu­lega mikið álag búið að vera á heil­brigð­is­kerf­inu í langan tíma. Hann sagð­ist horfa til stefnu í geð­heil­brigð­is­málum til árs­ins 2030 sem sam­þykkt var á Alþingi í júní og kveður meðal ann­ars á um stofnun sér­staks geð­ráðs.

„Ef hægt er að tala um að eitt­hvað hafi verið gert betur hér og í sam­fé­lag­inu okkar varð­andi þessi mál þá er það einmitt opin og for­dóma­laus umræða. Það er algjör lyk­ill að því að geð­sjúk­dómar og aðrir tengdir sjúk­dómar, eins og fíkni­sjúk­dómar, valdi ekki jað­ar­setn­ingu ein­stak­linga og að við náum betur utan um þessa hópa. Það er mjög jákvætt,“ sagði Willum.

Halldóra sagð­ist ekki vera vön að missa skapið við heil­brigð­is­ráð­herra. „En þögn hans núna hefur bara verið ærandi og það eru gríð­ar­leg von­brigði að verða vitni að því and­leysi sem ein­kennir störf hæstv. heil­brigð­is­ráð­herra því það er neyð­ar­á­stand í gangi. Það er neyð­ar­á­stand í geð­heil­brigð­is­málum og við erum að sjá birt­ing­ar­mynd þess alls staðar í sam­fé­lag­inu okkar.“

Hún sagði því næst að svo virð­ist vera sem nóg fjár­magn sé til hjá dóms­mála­ráð­herra til að fara í stríð gegn fólki. „Þá hlýtur að vera til pen­ingur til að hjálpa fólki,“ sagði Halldóra, sem spurði Willum hvort hann væri sáttur við þessa for­gangs­röðun?

„Ætlar ráð­herra að tryggja raun­veru­legt for­varna­starf þannig að við getum komið í veg fyrir harm­leiki fram­tíð­ar­innar?“

Willum sagði þver­fag­lega geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í heilsu­gæslu hafa verið styrktaum allt land. „Það er mjög mik­il­vægt skref og við höldum áfram á þeirri braut. Auðvitað horfi ég til þeirrar aðgerða­á­ætl­unar sem er í vinnslu. Það er okkar hlut­verk að móta stefn­una, fara með hana í umræðu í gegnum þingið, fylgja henni eftir eins og þingið mælir fyrir um í formi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu og láta aðgerð­irnar ganga upp. Það er okkar vinna. Það er okkar verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár