Kristrún: Það er ekki meirihluti fyrir nýju stjórnarskránni á þingi

Kristrún Frosta­dóttir vill ekki senda þau skila­boð að það sé ekki hægt að kom­ast áfram í kjarna-vel­ferð­ar­málum nema að Ísland fái nýja stjórn­ar­skrá. „Ég vil ekki stunda þannig póli­tík að við séum að bíða eftir einni lausn sem muni laga allt annað.“

Kristrún Frosta­dóttir, sem sæk­ist eftir for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni, segir raun­veru­leik­ann vera þann að það sé ekki meiri­hluti á þingi fyrir því að sam­þykkja nýju stjórn­ar­skránna. Hún seg­ist hafa verið alveg hrein­skilin með það að hún vilji ekki fara í veg­ferð á næsta kjör­tíma­bili sem hún sjái ekki fram á að geta skilað í höfn. Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali við Kristrúnu sem birt­ist í Kjarn­anum í gær.

[links]Í stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar er tekið fram að flokk­ur­inn vilji að Alþingi sam­þykki breyt­ingar á stjórnar­skrá sem byggj­ast á tillögum stjórnlag­aráðs og þeim þjóðar­vilja sem kom fram í þjóðar­at­kvæða­greiðsl­unni þann 20. októ­ber 2012.

Kristrún segir að það hafi líka verið skiptar skoð­anir um hvaða hluta stjórn­ar­skrár­innar það eigi að end­ur­skoða. „Ég vil að við leggjum áherslu á mál sem við vitum að við getum skilað af okkur.

Það þýðir ekki að það sé ekki ákveðin rétt­læt­is­á­kvæði þarna sem á að tala fyrir og að það eigi að koma mál­inu í ein­hvers­konar far­veg. En ég vil ekki senda þau skila­boð út til almenn­ings að við getum ekki kom­ist áfram í kjarna-vel­ferð­ar­málum nema að við fáum nýja stjórn­ar­skrá. Ég vil ekki stunda þannig póli­tík að við séum að bíða eftir einni lausn sem muni laga allt annað. Það þýðir ekki að allt sé sett til hliðar, heldur hvar stóru áhersl­urnar eiga að liggja og hvert beina eigi orkunni. Þetta er þekkt fyr­ir­bæri úr póli­tík og líf­inu að manni hættir til að fær­ast of mikið í fang. Og þá komum við allt of litlu í verk.“

Engar breytingar áratug síðar

Nýja stjórn­ar­skráin er orðin næstum ára­tuga­göm­ul. Saga hennar hófst haustið 2009 og henni átti að ljúka í októ­ber 2012, með ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þannig fór þó ekki.

Þótt nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hafi sú að 64,2 pró­sent þeirra sem tóku þátt hafi sagt já við því að til­lögur svo­kall­aðs stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar að frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá þá er stjórn­ar­skráin enn alveg eins og hún var þennan dag í októ­ber 2012.

[adspot]Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis tók frum­varpið svo til með­ferð­ar, gerði á því breyt­ingar og lagði fram á þing­inu. Þar tókst ekki að koma því í gegn fyrir kosn­ing­arnar 2013 og þannig hafa mál staðið síðan þá.

Sumarið 2020 réð­ust Sam­tök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá, í sam­vinnu við Stjórn­ar­skrár­fé­lag Íslands, í það verk­efni að safna und­ir­skriftum til að hvetja Alþingi til að klára sam­þykkt nýju stjórn­ar­skrár­inn­ar.

Mark­miðið var að safna að minnsta kostið 25 þús­und und­ir­skrift­um. Þegar und­ir­skrift­irnar voru afhentar Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og öðrum full­trúum stjórn­mála­flokka þann 20. októ­ber 2020, þegar átta ár voru liðin upp á dag frá því að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hafði farið fram, höfðu 43.423 skrifað und­ir. Verk­efnið hafði skilað því að Sam­tökum kvenna um nýja stjórn­ar­skrá tókst að ná í 74 pró­sent fleiri und­ir­skriftir en upp­haf­lega var stefnt að.

Meirihluti fylgjandi en lítill áhugi í aðdraganda kosninga

Í könnun Maskínu sem gerð var í októ­ber 2020 kom fram að rúm­lega helm­ingur lands­manna, eða 53,5 pró­sent, var hlynntur því að „nýja stjórn­ar­skrá­in“ sem Stjórn­laga­ráð lagði fram verði lögð til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá Íslands, en 21,3 pró­sent voru því and­víg.

Rúmur fjórð­ungur aðspurðra, eða 25,2 pró­sent, tók ekki afstöðu í aðra hvora átt­ina. Fram kom í umfjöllun á vef Mask­ínu að mark­tækt hærra hlut­fall kvenna en karla hafi verið hlynnt, en þó meiri­hluti beggja kynja.

And­staða við að til­lögur Stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins óx með eftir því sem heim­il­is­tekjur svar­enda hækk­uðu. Um 65 pró­sent þeirra sem höfðu lægstar tekjur sögð­ust hlynnt, en ein­ungis 43-44 pró­sent þeirra sem höfðu milljón eða meira í heim­il­is­tekj­ur. Það var eini tekju­hóp­ur­inn þar sem ekki var meiri­hluti hlynnt­ur.

Í þeirri könnun sögð­ust um 85-88 pró­sent kjós­enda Pírata og Sam­fylk­ingar vera hlynnt nýju stjórn­ar­skránni.

Skömmu áður hafði MMR, sem nú er hluti af Prósent, gert könnun þar sem spurt var um mik­il­vægi þess að fá nýja stjórn­ar­skrá. Í þeirri könnun kom fram að tæp­lega 60 pró­sent lands­manna töldu það mik­il­vægt að Íslend­ingar myndu nýja stjórn­ar­skrá á síð­asta kjör­tíma­bili, en 25 pró­sent lands­manna töldu það lít­il­vægt.

Þegar leið að síð­ustu kosn­ingum voru stjórn­ar­skrár­mál þó ekki ofar­lega í huga kjós­enda. Einungis 9,8 pró­sent kjós­enda nefndu þau á meðal mik­il­væg­ustu kosn­inga­mála í könnun Maskínu á meðan að tæp­lega 68 pró­sent svar­enda sögðu heil­brigð­is­mál vera meðal stærstu kosn­inga­mála fyrir síð­ustu kosn­ingar. Næst á eftir komu umhverf­is- og lofts­lags­mál en rúm­lega 41 pró­sent svar­enda sögðu þau vera meðal stærstu kosn­inga­mál­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár