Tveir af hverjum þremur nefna heilbrigðismál sem eitt helsta kosningamálið

Það sem helst brennur á kjós­endum fyrir kom­andi kosn­ingar auk heil­brigð­is­mála eru umhverfis- og lofts­lags­mál, efna­hags- og skatta­mál og vel­ferð­ar­mál, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu.

Heilbrigðismálin eru ofarlega á baugi hjá kjósendum fyrir komandi kosningar.
Heil­brigð­is­málin eru ofar­lega á baugi hjá kjós­endum fyrir kom­andi kosn­ingar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tæplega 68 pró­sent svar­enda segja heil­brigð­is­mál vera meðal stærstu kosn­inga­mála fyrir kom­andi kosn­ingar í nýrri könnun Maskínu. Næst á eftir koma umhverfis- og lofts­lags­mál en rúm­lega 41 pró­sent svar­enda segja þau vera meðal stærstu kosn­inga­mál­anna. Svar­endur í könn­unni fengu að nefna allt að þrjú mál­efni og því eru svörin fleiri en svar­endur.

Mun fleiri konur en karlar nefndu þessi tvö mál sem stærstu málin fyrir næstu kosn­ingar. Rúmlega 73 pró­sent kvenna nefndu heil­brigð­is­mál í könn­un­inni sam­an­borið við tæp 63 pró­sent karla. Þegar kemur að umhverfis- og lofts­lags­málum sögðu 48 pró­sent kvenna þau vera stærstu málin fyrir kom­andi kosn­ingar en tæp­lega 35 pró­sent karla gerðu það. [adspot]

Helmingur svarenda yfri sextugu nefnir velferðarmál

Munurinn er enn meiri á milli kynj­anna þegar kemur að efna­hags- og skatta­málum sem var þriðja algeng­asta svarið í könn­un­inni. Þau mál eru meðal þeirra mik­il­væg­ustu fyrir kom­andi kosn­ingar að mati rúm­lega þriðj­ungs svar­enda. Rúmlega 40 pró­sent karla nefndu efna­hags- og skatta­mál, sem gerir þann mála­flokk þann næst algeng­asta þegar horft er bara til svara frá körlum. Aftur á móti nefndu tæp­lega 27 pró­sent kvenna efna­hags- og skatta­mál þegar þær voru spurðar um stærstu kosn­inga­málin.

Næst á eftir efna­hags- og skatta­málum koma vel­ferð­ar­mál sem nefnd voru af 27 pró­sentum svar­enda. Helm­ingur svar­enda í hópi 60 ára og eldri nefndi vel­ferð­ar­mál en sá hópur sker sig frá öðrum ald­urs­hópum þegar kemur að fjölda þeirra sem nefna vel­ferð­ar­mál.

Þegar rennt er yfir svör út frá menntun sést að eftir því sem menntun eykst er lík­legra að svar­endur nefni heil­brigð­is­mál sem eitt af aðal­mál­unum fyrir kom­andi kosn­ingar. Þá er háskóla­menntað fólk mun lík­legra til að nefna umhverfis- og lofts­lags­mál heldur en þau sem hafa lokið hafa grunn­skóla­prófi, fram­halds­skóla­prófi eða iðn­menntun. Dæmið snýst við þegar horft er til vel­ferð­ar­mála en tæp­lega helm­ingur þeirra sem aðeins hafa lokið grunn­skóla­prófi nefna vel­ferð­ar­mál en mun færri í hópi lang­skóla­mennt­aðra nefna þann mála­flokk.

Sjálfstæðisfólk nefnir efnahagsmál og Píratar nefna stjórnarskrá

Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru lík­leg­astir til að nefna heil­brigð­is­mál í könn­un­inni en það gera 76,3 pró­sent. Skammt á eftir koma kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri Grænna. Kjós­endur Mið­flokks­ins eru aftur á móti ólík­leg­astir til að nefna þann mála­flokk, þó nefnir tæp­lega helm­ingur þess flokks heil­brigð­is­mál sem eitt af stóru mál­unum fyrir kosn­ing­arnar.

Umhverfis- og lofts­lags­mál eru ofar­lega á blaði hjá kjós­endum Vinstri Grænna og Sam­fylk­ing­ar­innar og á meðal þeirra sem nefna efna­hags- og skatta­mál skera kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sig úr. Þegar horft er til þeirra mál­efna sem nefnd eru í könn­un­inni og stjórn­mála­skoð­ana sést einnig að kjós­endur Pírata nefna stjórn­ar­skrá sem eitt af stærstu mál­unum fyrir kom­andi kosn­ingar mun oftar en kjós­endur ann­arra flokka, en það gera tæp­lega 35 pró­sent kjós­enda flokks­ins.

Um könnunina

Nið­ur­stöð­urnar byggja á 2078 svörum við könnun sem var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu og fram­kvæmd dag­ana 31. ágúst til 6. sept­em­ber. Svar­endur koma alls staðar að af land­inu og eru á aldr­inum 18 ára og eldri. Í nið­ur­stöðum frá Maskínu segir að svörin hafi verið vegin sam­kvæmt mann­fjölda­tölum Hag­stof­unnar um kyn, aldur og búsetu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár