Gömlu blokkirnar brotna í breyttu pólitísku landslagi

Innreið öfga­hægri­flokks Sví­þjóð­ar­demókrata inn í meg­in­straum sænskra stjórn­mála hefur verið áber­andi und­an­farið á sama tíma og glæpa­tíðni vex. Lengi neit­uðu allir aðrir flokkar að vinna með Sví­þjóð­ar­demókrötum – þar til á síð­asta ári.

Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókratanna.
Jimmie Åkesson, for­maður Sví­þjóð­ar­demókratanna. Mynd: EPA

Núna í sept­em­ber verða haldnar þing­kosn­ingar í Svíþjóð þar sem rúm­lega 7,5 millj­ónir Svía geta nýtt kosn­inga­rétt sinn en einnig er kosið í sveit­ar­stjórnir. Helstu átaka­línur kosn­ing­anna hafa verið að mynd­ast und­an­farið og virð­ast þrenn mál­efni ætla að verða þau helstu sem tek­ist verður á um: staða heil­brigðis- og mennta­kerfis, hækk­andi glæpa­tíðni og síð­ast en ekki síst þjóðar­ör­ygg­is­mál í ljósi hegð­unar Rússa í Evrópu.

Í síð­ustu grein var farið yfir sögu sænskra stjórn­mála á seinni hluta síð­ustu aldar með áherslu á breyt­ingar í rekstri á vel­ferð­ar­kerf­inu. Í þess­ari ann­ari grein verður sjónum beint að póli­tísku lands­lagi síð­ustu ára og flokkar hins mögu­lega „blá­brúna“ banda­lags standa nú rétt fyrir kosn­ingar.

„Blábrúnt“ bandalag til hægri?

„Vem är brun, Per Bolund?“, eða „Hver hér er brúnn, Per Bolund?“ spurði ákafur og hálf taugatrekktur Jimmie Åkesson, for­maður Sví­þjóð­ar­demókrata (s. Sverig­edemokra­terna) ítrekað for­mann Græn­ingja (s. Milj­ö­partiet) í sjón­varp­s­kapp­ræðum sænska rík­is­sjón­varps­ins síð­asta haust. Per Bolund hafði þá velt fyrir sér mögu­legu „blá­brúnu“ banda­lagi Sví­þjóð­ar­demókrata, Hægri­flokks­ins (s. Modera­terna) og Krist­inna demókrata (s. Krist­demokra­terna). Á síð­asta ári fóru þessir þrír flokkar að ræða saman um sam­eig­in­lega snertifleti og mögu­legt sam­starf að loknum kosn­ingum. Þegar tals­vert yfir­veg­aðri Per Bolund gafst tæki­færi á að svara spurn­ingu Jimmie Åkesson benti hann óljóst á teng­ingu ljós­brúna lits­ins í póli­tísku sam­hengi við ein­kenn­is­bún­inga stormsveita Nasista (þ. Stur­ma­bteil­ung), og þeirra þátt í að koma Adolf Hitler til valda í Þýska­landi á fjórða ára­tug síð­ust aldar.

Sví­þjóð­ar­demókratar eiga nefni­lega rætur að rekja til nokk­urra nýnas­ista­hreyf­inga á níunda ára­tugnum. Skil­grein­ing og gagn­rýni Per Bolunds fólst þó ekki bara í að setja út á upp­runa flokks­ins heldur einnig stefnu hans í dag, þótt hún hafi verið sett í tölu­vert hóg­vær­ari „bún­ing“ – í fínni jakka­föt ef má að orði kom­ast.

[links]Í Skand­in­avíu á und­an­förnum ára­tugum hafa popúl­ískar þjóð­ern­is­hreyf­ingar sótt í sig veðrið en þær beita sér þá helst fyrir ákveð­inni útlend­inga­andúð sem felst einkum í því að upp­hefja „skand­in­av­ísk gildi“, meðal ann­ars þegar kemur að vel­ferð­ar­kerf­inu. Sví­þjóð­ar­demókra­ta­flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1988 út frá nokkrum nýna­sískum rótum en hefur síðan þá náð að „hreinsa sig“ tölu­vert og orðið hóf­legri í stefnu sinni og hug­mynda­fræði. Nýverið var birt hvít­bók um sögu flokks­ins sem hafði lengi verið beðið eftir. Í henni kemur það skýrt fram sem margir með­limir flokks­ins og kjós­endur hans hafa gert lítið úr: flokk­ur­inn er með aug­ljósa sögu­lega teng­ingu við eldri nýnas­ista- og þjóð­ern­is­hreyf­ingar.

Sóleyjarblóm og „krúttlegur rasismi“

Sví­þjóð­ar­demókra­ta­flokk­ur­inn hefur hægt og rólega farið í gegnum ímynd­ar­breyt­ingu sem hefur fyrst og fremst falist í því að gera sig aðgengi­legri og á ákveð­inn hátt „krútt­legri“. Ímynd flokks­ins hefur þannig verið ein­kennd ljósum og fal­legum litum (merki flokks­ins er ljós­blátt Sól­eyj­ar­blóm) og ein­kenn­ist nú af ákveð­inni barns­legri róm­an­tís­er­ingu á lið­inni sænskri tíð. Þá notar flokk­ur­inn mikið myndefni sem sýnir til dæmis mikið eldra fólk og Dalarauð hús böðuð sól­skini. Þó myndu ein­hverjir telja að þess­ari nýju ímynd tak­ist ekki að fela bæði rasíska for­tíð og for­dóma­fulla und­ir­tóna flokks­ins.

Það sem gerir Sví­þjóð­ar­demókrata frá­brugðna til dæmis norska Fram­fara­flokknum (n. Norsk Folk­parti), sem er svip­aður flokkur að mörgu leyti, er að hann styður vel­ferð­ar­ríkið, rétt eins og almenn­ingur virð­ist gera, og vill end­ur­reisa það – en með lok­uðum landa­mærum. Sví­þjóð­ar­demókratar hafa þannig talað um hvernig rík­is­stjórnir und­an­farna ára­tugi hafa van­rækt vel­ferð­ar­kerfið, sér­stak­lega þegar kemur að löngum biðlistum og þjón­ustu við eldri borg­ara. Einnig hefur flokk­ur­inn talað um þá van­rækslu sem sé í mennta­kerf­inu og þá „aðskiln­að­ar­stefnu“ sem birt­ist þar með þeim afleið­ingum að eng­inn agi sé í mörgum skólum þar sem meiri hlut­inn er af erlendu bergi brot­inn. Þá vilja flokks­með­limir meina að þessi veru­leiki stuðli ásamt öðrum þáttum að því sem flokk­ur­inn kallar ,,parall­el­samäl­len“ eða hlið­stæð sam­fé­lög, þar sem önnur lög og reglur gildi.

Flokk­ur­inn vill efla vel­ferð en vill fjár­magna þá efl­ingu einna helst með nið­ur­skurði í mál­efnum er við­koma alþjóð­legri hjálp­ar­að­stoð og inn­flytj­endum. Þar að auki vill flokk­ur­inn draga aðild lands­ins að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) til baka. Í takt við hóf­sam­ari stefnu og alþjóð­lega þróun í flótta­manna­málum varð flokk­ur­inn vin­sælli með tím­anum. Hlaut hann 5,7% atkvæða árið 2010, 12,9% árið 2014 og nú síð­ast árið 2018 hlaut hann 17,5% atkvæða. Flokk­ur­inn hélt þá áfram að stækka og var að mæl­ast með rúm­lega 20% fylgi í skoð­ana­könn­unum fyrstu tvö árin eftir kosn­ingar. Í des­em­ber 2019 mæld­ist hann til dæmis með 24% fylgi.

En Covid-19 heims­far­ald­ur­inn, inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og mögu­leg inn­ganga Sví­þjóðar í NATO hefur ekki beint aukið við fylgi Sví­þjóð­ar­demókrata. Frá því í byrjun árs­ins 2020 hefur flokk­ur­inn verið heldur kyrr­stæður í könn­unum og hefur stundum verið að mæl­ast með rúm­lega það sem hann fékk í kosn­ing­unum 2018. Í síð­ustu skoð­ana­könnun mæld­ist hann með 18,6% fylgi, en það sveifl­ast þó; í jan­úar mæld­ist hann til dæmis með 20,1% fylgi en í júní var fylgi hans talið vera 17,4%.

Kyrrstætt fylgi

Jafn­framt hefur það gerst síðan kosið var árið 2018 að Hægri­flokk­ur­inn og Kristni demókra­ta­flokk­ur­inn hafa að mörgu leyti tekið upp stefnu Sví­þjóð­ar­demókrata þegar kemur að inn­flytj­enda­málum og refs­ingum við (ákveðnum) glæpum. Þá hefur stefna Sví­þjóð­ar­demókrata verið nán­ast eins síðan flokk­ur­inn komst fyrst inn á þing 2010. Á meðan hefur Hægri­flokk­ur­inn í raun tekið U-beygju þegar kemur að þessum mála­flokkum. Hér er flokk­ur­inn þá að reyna að auka fylgi sitt lengra til hægri og í átt að íhalds­sam­ari öflum. Jafn­framt sæk­ist hann eftir því að ná aftur völdum eftir að hafa verið átta ár í stjórn­ar­and­stöðu.

[adspot]Gera má ráð fyrir að þessi þróun hafi að ein­hverju leyti gert fylgi Sví­þjóð­ar­demókrata kyrr­stæðra. Enn fremur er áhuga­vert að velta fyrir sér hvort þessar fylg­is­hreyf­ingar eigi eftir að fylgja svip­aðri þróun og varð í Danmörku, en ýmsum flokkum þar í landi tókst að auka fylgi sitt meðal ann­ars með því að taka upp ýmis stefnu­mál frá Danska þjóð­ar­flokknum (d. Dansk Fol­ke­parti), sem jafn­framt minnk­aði tölu­vert fyrir vikið. Þannig tókst flokknum að færa boð­skap sinn í meg­in­straum stjórn­mál­anna en gera sjálfan sig jafn­framt minna nauð­syn­legan sam­kvæmt sínum eigin boð­skap.

Blokkir síðustu ára

Fyrir kosn­ing­arnar 2010 ein­kennd­ust sænsk stjórn­mál einna helst af tvennum svoköll­uðum blokkum. Þetta voru ann­ars vegar Borg­ara­flokk­arnir (frá miðju til hægri) en þar störf­uðu saman Hægri­flokk­ur­inn, Kristnir demókratar, Frjáls­lyndi flokk­ur­inn (s. Liberal­erna) og Mið­flokk­ur­inn (s. Centerpartiet); og hins vegar Vinstri­blokkin (stundum kölluð Rauð­græna blokkin), en þar störf­uðu saman Sós­í­alde­mókratar (s. Socialdemokraterna), Vinstri­flokk­ur­inn (s. Vän­ster­partiet) og Græn­ingjar (s. Milj­ö­partiet).

Fyrr­nefnda blokkin er tals­vert eldri en sú síð­ari en hún var mynduð á tíunda ára­tug síð­ustu aldar en varð síðan full­mótuð upp úr alda­mótum. Sú síð­ari tók aðeins á sig mynd fyrir kosn­ing­arnar 2010 en þá gáfu Sós­í­alde­mókratar það út að þeir myndu í fyrsta skipti í heila öld starfa innan blokkar.

Það sem síðan hefur gerst er að fyrir utan ramma þess­ara blokka sprettur þá fram þetta nýja póli­tíska afl í formi Sví­þjóð­ar­demókrata. Síðan þá hafa blokk­irnar átt erf­ið­ara með að starfa án þess að leita til hvor ann­arrar eða jafn­vel í fylgið sem færst hafði frá þeim. Ákveðin mál­efni sem áður þóttu fárán­leg að ræða voru allt í einu rædd af þessum nýja flokki sem fannst Svíþjóð „ónýtt“ og vildi finna söku­dólga. Þá vilja Sví­þjóð­ar­demókratar hverfa aftur til ann­arrar tíðar, þegar Svíþjóð var „sænskt“. Hvað sem það nú þýðir er erfitt að vita nákvæm­lega – en eitt er víst: það er ekki hægt að fara aftur í tím­ann (eins og er alla­vega).

Stefnubreyting Hægriflokksins og óhugnanleg skotárásamet

Samstarf Hægri­flokks­ins við Sví­þjóð­ar­demókrata er komið til að vera, þó svo að for­maður flokks­ins, Ulf Kristers­son, neiti að tjá sig beint um hvað honum finn­ist um síð­ar­nefnda­flokk­inn og eðli hans. Talar hann mest um þá „sam­eig­in­legu snertifleti“ sem þeir deila. Fylgi Hægri­flokks­ins hefur verið að mæl­ast í kringum 20% síð­ustu ár en í kosn­ing­unum 2018 fékk hann 19,8% af atkvæðum. Í síð­ustu skoð­ana­könnun mæld­ist flokk­ur­inn með 18,6% fylgi, þá jafn­stór og flokkur Sví­þjóð­ar­demókrata.

En velta má fyrir sér hvernig stendur á því að Hægri­flokk­ur­inn, sem eitt sinn stóð fyrst og fremst fyrir frjálsum mark­aði, opnum landa­mærum og alþjóða­hyggju, hefur ratað hingað í stefnu­málum? Svarið við þessu er tví­þætt: ann­ars vegar tap á fylgi helst til Sví­þjóð­ar­demókrata og hins vegar met­tölur í glæpa­tíðni í Svíþjóð.

Síðustu ár hefur glæpa­tíðni í Svíþjóð auk­ist tölu­vert og er nú sú næst hæsta innan ESB. Nú á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var til­kynnt um met­fjölda ban­vænna skotárása þar sem 18 mann­eskjur hafa týnt lífi sínu. Síðustu fimm ár hafa yfir 40 mann­eskjur árlega verið skotnar til bana. Flestar þess­ara skotárása eru bein­tengdar átökum milli glæpa­gengja sem virð­ast hafa greiðan aðgang að skot­vopnum.

Það sem er enn meira slá­andi varð­andi starf­semi þess­ara glæpa­gengja er að ríf­lega 15% með­lima þeirra eru undir 18 ára. Þá vilja lög­reglu­yf­ir­völd meina að sú tala muni aðeins aukast þar sem refsi­af­slættir fyrir 18–20 ára voru afnumdir í jan­úar á þessu ári.

Það sam­fé­lags­vanda­mál sem þessar skotárásir eru orðnar hefur tekið stóran sess í allri póli­tískri umræðu, sér­stak­lega núna þegar líður að kosn­ingum. Mikil óánægja hefur verið með það sem virð­ist vera aðgerða­leysi stjórn­valda að taka á þessu vanda­máli og bar þingið til að mynda fram van­traust­s­til­lögu á hendur dóm­stóla- og inn­an­rík­is­ráð­herra Morgan Johanns­son á þessu ári sem naum­lega var felld.

Þá hefur Ulf Kristers­son talað um að Hægri­flokk­ur­inn vilji koma á þeirri stefnu­breyt­ingu að hægt verði að útvísa erlendum rík­is­borg­urum sem til Sví­þjóðar koma áður en þeir brjóti af sér ef þeir hafa ein­hverja teng­ingu við glæpa­gengi. Þá vilja Sví­þjóð­ar­demókratar gera þá stefnu­breyt­ingu að hægt verði að senda úr landi heilar fjöl­skyldur ef einn með­limur þeirra ger­ist sekur um glæp­sam­legt athæfi, þá sér­stak­lega börn. „Ef börnin fá að vera úti að kasta steinum í lög­reglu og kveikja í lög­reglu­bílum verða afleið­ingar,“ sagði Jimmie Åkesson í við­tali í vor. Þar vísar hann í Páska­óreið­irnar svoköll­uðu sem urðu vegna hátt­semi hins dansk-sænska og íslamfælna Rasmus Paludans sem þekktur er fyrir að brenna Kóraninn á hinum ýmsu stöðum. Óeirðir urðu víða um Svíþjóð og varð við­bún­aður lög­reglu tals­verður.

Full­trúar Sví­þjóð­ar­demókrata hafa einnig lýst yfir stuðn­ingi sínum við að lög­regla beiti því sem á ensku er kallað „racial profil­ing“ þar sem not­aðir eru rasískir grein­ing­ar­staðlar til að taka á glæp­sam­legu athæfi, sama hvort ein­stak­lingar séu sekir um slíkt eða ekki.

En í dag er staðan sú að allir sænskir stjórn­mála­flokkar fyrir utan einn, Vinstri­flokk­inn, vilja afnema alla refsi­af­slætti fyrir 15–17 ára ein­stak­linga, sem hingað til geta í mesta lagi verið dæmdir til fjög­urra ára vistar á sér­stökum barna- og ung­menna­deildum. Þá hefur Magda­lena And­ers­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sós­í­alde­mókrata, nýlega heitið því að frá og með nú verði hægt að vísa fleiri glæpa­mönnum, sem einnig eru inn­flytj­endur, úr landi.

Samfélagslegur aðskilnaður og „viðkvæm svæði“

Mikael Damberg fjár­mála­ráð­herra hefur gefið það út að það sé atriði númer eitt innan raða Sós­í­alde­mókrata að taka á þeirri skipu­lögðu glæp­a­starf­semi sem eng­inn hem­ill virð­ist vera á og vilji enn fremur einnig taka á þeim „aðskiln­aði“ sem ríki á milli svæða. Þá telur hann að lyk­ill­inn í því að forða ung­mennum frá glæpa­gengjum sá að íbúar svo­kall­aðra „við­kvæmra svæða“ (s. utsatta område) finni fyrir nær­veru yfir­valda og að þar birt­ist lög og regla í formi auk­ins sýni­leika lög­reglu.

[adspot]Hér sést mögu­lega að ein­hverju leyti sá veru­leiki sem einka­væð­ing í mennta- og heilsu­gæslu hefur skapað. Líklega eru það ekki glæp­irnir sem skapað hafa þennan veru­leika heldur eru auknir glæpir afleið­ing af auknum aðskiln­aði milli þeirra sem fleiri tæki­færi hafa í líf­inu og þeirra sem minna mega sín.

Nú í byrjun ágústs gaf Anders Ygeman, ráð­herra fólks­flutn­inga og sam­þætt­ingar í rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata það út að hann vilji end­ur­skil­greina þessi „við­kvæmu svæði“ og bæta við mæli­ein­ingum sem mið­ast við hversu margir séu ekki með Norð­ur­landa­bak­grunn. Honum finn­ist það jafn­framt ekki í lagi að svo­leiðis hverfi séu almennt til í Svíþjóð. Ygeman hefur þó und­ir­strikað að atvinnu­leysi og menntun skipti enn mestu máli í þessum skil­grein­ingum. En að þessi orð­ræða komi frá ráð­herra Sós­í­alde­mókrata sýnir enn og aftur hversu mikið í Svíþjóð hefur breyst en ummælin hafa valdið usla innan bæði Vinstri­flokks­ins og Græn­ingja.

Einnig minnir þessi nýja skil­grein­ing ráð­herr­ans á útlistun danskra yfir­valda á þeim hverfum sem meiri­hluti fólks er ekki með vest­rænan bak­grunn en nú stefna stjórn­völd á það að rífa hrein­lega þessi hverfri fyrir árið 2030. Þá hefur Jimmie Åkesson, for­maður Sví­þjóð­ar­demókrata, rætt um að þessa leið vilji flokkur hans einnig fara í mála­flokknum.

Kristnir demókratar bæta við sig

Kristnir demókratar hafa einnig verið að gera sig gild­andi í því að gera strang­ari refs­ingar að helsta bar­áttu­máli. Formaður Krist­inna demókrata Ebba Busch, hefur einnig orðið æ meira áber­andi á und­an­förnum árum. Núna síð­ast í vor vakti hún umtal eftir ummæli sín eftir Páska­óreið­irnar. Þá velti hún fyrir sér hvers vegna aðeins lög­reglu­menn hefðu orðið fyrir áverkum en ekki sjálfir óreiða­seggirnir. Af hverju sænska þjóðin fengi ekki fréttir af „hund­rað særðum ísla­mistum, hund­rað særðum glæpa­mönnum og hund­rað særðum óreiða­seggjum.“

Ummælin fóru fyrir brjóstið á mörgum en lög­reglu­of­beldi er almennt sjald­séð í Svíþjóð, þó svo að auð­vitað sé til eins og ann­ars staðar. En fylgi flokks Ebbu Busch hefur aðeins auk­ist síðan þá en ummælin höfðu þó ann­ars konar áhrif á frama hennar. Boð hennar á hina vin­sælu Elle-tísku­há­tíð sem haldin er ár hvert var nefni­lega dregið til baka og vakti þessi ákvörðun nokkra athygli. Eftir þessa atburða­rás hefur hún síðan imprað á því að „...fátækt sé ekki afsökun fyrir því að kasta steinum í lög­reglu.“

Ebba Busch og Ulf Kristers­son virð­ast ná vel saman og koma stundum fram saman í kosn­inga­bar­átt­unni. Eins og staðan er núna, ef marka má nýj­ustu ummæli þeirra beggja, er aug­ljóst að sam­eig­in­legir póli­tískir snertifletir þeirra ann­ars vegar og Jimmie Åkesson hins vegar eru að verða fleiri og fleiri. Í síð­ustu skoð­ana­könnun mæld­ust Kristnir demókratar með 6,3% fylgi. Einnig virð­ist Frjáls­lyndi flokk­ur­inn, sem lengi fylgdi Hægri­flokknum innan blokk­arpóli­tík­ur­innar, ekki ætla að úti­loka rík­ís­stjórn­ar­sam­starf með Sví­þjóð­ar­demókrötum.

Á Frjálslyndi flokkurinn sér viðreisnarvon?

Frjáls­lyndi flokk­ur­inn hefur und­an­farið ár barist í bökkum og átt erfitt með að anda undir þing­þrösk­uld­inum en sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum sem gerðar voru núna í vor virt­ist hann ætla þurrkast út af þingi. Töldu margir að erindi flokks­ins hefði beðið hnekki, sér­stak­lega eftir sam­starfsvilja hans við Sví­þjóð­ar­demókrata – sem margir myndu eflaust halda að liggi nokkuð langt frá þeim þegar kemur að póli­tískri hug­mynda­fræði. Þó hefur flokk­ur­inn undir for­ystu Nyamko Sabuni síðan þá gefið það út að hann vilji ekki úti­loka sam­ræður við Sví­þjóð­ar­demókrata og vilji fyrst og fremst rík­is­stjórn leidda af Ulf Kristers­son. Svo virð­ist sem fleiri og fleiri flokkar við­ur­kenni að ein­hvers konar sam­starf með Sví­þjóð­ar­demókrötum sé óum­flýj­an­legt.

[adspot]Nú í apríl sagði síðan Nyamko Sabuni af sér for­mennsku flokks­ins og við tók Johan Pehrson. Líklega hefur Sabuni horfst í auga við stöðu sína sem var orðin ansi tor­veld vegna lélegs almenn­ings­á­lits og klaufa­legra ummæla um að hún myndi flytja til Noregs ef Rússar gerðu inn­rás í Svíþjóð. Undir for­ystu nýs for­manns hefur flokk­ur­inn smátt og smátt verið að bæta við sig í skoð­ana­könn­unum og mæld­ist nú síð­ast með 5,1% fylgi, eftir að hafa dottið niður í rúm 2% í apríl.

Mismunandi lausnir

Hægri­flokk­ur­inn, Kristnir demókratar, Frjáls­lyndi flokk­ur­inn og Sví­þjóð­ar­demókratar vilja allir lækka almennar bætur til að sam­þætta inn­flytj­endur inn í sænskt sam­fé­lag og koma í veg fyrir hlið­stæð sam­fé­lög og aðskilnað.

Þá hafa Sví­þjóð­ar­demókratar sér­stak­lega imprað á því að fólk sem sé nýkomið til Sví­þjóðar eigi ekki að geta fengið atvinnu­leys­is­bætur frá degi eitt. Á fyrri ára­tugum hefur hið sænska vel­ferð­ar­ríki einmitt verið sér­stak­lega gjaf­milt og hlý­legt við fólk sem hyggj­ast setj­ast þar að, sama úr hvaða aðstæðum það kemur. Þá má segja að Svíþjóð hafi lengi vel verið eins konar „mann­úð­legt stór­veldi“ en orð­ræðan á síð­ustu árum sem og stórir straumar flótta­manna hafa leitt til strang­ari landamæra­gæslu og ákveð­innar end­ur­hugs­unar á þess­ari stefnu.

Á hinum enda áss­ins eru síðan Sós­í­alde­mókratar, Vinstri­flokk­ur­inn og Græn­ingjar sem telja að lækkun á bótum geri ástandið aðeins verra og leiði till auk­innar fátæktar meðal við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins. Þá virð­ist Mið­flokk­ur­inn, nafn­inu sam­kvæmt, vera þarna ein­hvers staðar á milli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár