Hið sænska velferðarríki í faðmi nýfrjálshyggju

Á síð­ustu þrjá­tíu árum hafa átt sér stað tals­verðar breyt­ingar í bæði heil­brigðis- og mennta­kerfi Sví­þjóðar. Ef til vill má rekja þau sam­fé­lags­vanda­mál sem nú tek­ist er á um í aðdrag­anda þing­kosn­inga til þess­ara breyt­inga.

Núna í sept­em­ber verða haldnar þing­kosn­ingar í Svíþjóð þar sem rúm­lega 7,5 millj­ónir Svía geta nýtt kosn­inga­rétt sinn en einnig er kosið í sveit­ar­stjórnir. Helstu átaka­línur kosn­ing­anna hafa verið að mynd­ast und­an­farið og virð­ast þrenn mál­efni ætla að verða þau helstu sem tek­ist verður á um: staða heil­brigðis- og mennta­kerfis, hækk­andi glæpa­tíðni og síð­ast en ekki síst þjóðar­ör­ygg­is­mál í ljósi hegð­unar Rússa í Evrópu.

Í þess­ari fyrstu grein af þremur er farið yfir sögu sænskra stjórn­mála á seinni hluta síð­ustu aldar með áherslu á breyt­ingar í rekstri á vel­ferð­ar­kerf­inu.

Sögulegar kosningar

Það eru einna helst þrír þættir sem gera kom­andi kosn­ingar ein­stakar í sænskri stjórn­mála­sögu: í fyrsta lagi er það vilji næst stærsta flokks Sví­þjóðar, Hægri­flokks­ins (s. Modera­terna), að vinna með Sví­þjóð­ar­demókrötum (s. Sverig­edemokra­terna) sem hafa hingað til verið úti í kuld­anum þegar kemur að sam­starfi við aðra flokka. Svíþjóð gæti þess vegna fengið sína fyrstu hægri­þjóð­ern­issinn­uðu rík­is­stjórn, eða alla­vega rík­is­stjórn sem studd er með beinum hætti af hægri­þjóð­ern­ispopúlista­flokki. Núna stýrir Magda­lena And­ers­son land­inu og fer fyrir hönd eins flokks minni­hluta Sós­í­alde­mókrata.

Í öðru lagi eru Svíar, sem hafa verið hlut­lausir í vopn­uðum átökum í nærri 200 ár, að ganga í Norður-Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO), nú á meðan kosn­ingar verða haldnar.

Í þriðja lagi hefur glæpa­tíðni í Svíþjóð aldrei verið hærri en hún er í dag (næst hæst innan Evr­ópu­sam­bands­ins) og kepp­ast nú flokkar, aðal­lega hægra megin við miðju, um það hver muni taka harðar á þessu nýja vanda­máli, með til dæmis auknum laga­heim­ildum til handa lög­reglu.

Það er erfitt að halda því fram að sænsk stjórn­mál hafi í gegnum tíð­ina verið tíð­inda­laus, sér­stak­lega þar sem for­sæt­is­ráð­herra lands­ins var ráð­inn af dögum á seinni hluta níunda ára­tug­ar­ins og ýmsar fleiri krísur hafa dunið á lands­mönnum. Þó höfðu sænsk stjórn­mál lengi ráð­ist innan ákveð­ins ramma og ákveð­inna for­senda sem stóð­ust lengi vel. Sós­í­alde­mókratar (s. Socialdemokraterna) voru stærsti flokk­ur­inn og hægra megin við þá voru einna helst Hægri­flokk­ur­inn, Frjáls­lyndi flokk­ur­inn (s. Liberal­erna) og Mið­flokk­ur­inn (s. Centerpartiet). Þessum flokkum tókst þá annað hvort tíma­bundið að ná völdum af Sós­í­alde­mókrötum eða veitti rík­is­stjórnum þeirra ann­ars aðhald.

Innan þessa póli­tíska ramma byggð­ist upp stórt og örlátt vel­ferð­ar­kerfi á seinni helm­ingi tutt­ug­ustu aldar byggt á þverpóli­tískum vilja og sam­eign­ar­stefnu. Í dag eru tölu­vert breyttar horfur í sænskum stjórn­málum þegar kemur að þessum málum en líka þegar að kemur að landamæra og inn­flytj­enda­stefnu lands­ins. En þó svo að fyrst núna sé mögu­lega þjóð­ern­ispopúlista­flokkur að kom­ast til valda í fyrsta skipti eru þeir póli­tísku straumar sem hann byggir á ekki nýir – þeir hafa bara fyrst núna að verið að verða hluti af meg­in­straumnum. Til að skilja betur hvers vegna svo er – og hvers vegna Svíþjóð er á sínum til­tekna stað í dag – er við­eig­andi að líta aðeins til baka.

Heljartak Sósíaldemókrata og hin breiða pólitíska sátt

Það má segja að frá upp­hafi tutt­ug­ustu aldar hafi Svíþjóð tek­ist að sam­eina bæði mikla vel­ferð og tölu­verða hag­sæld. Þegar líða fór að seinni hluta tutt­ug­ustu aldar fór þó róð­ur­inn að verða þyngri og deilu­málin stærri. Fjár­málakreppa í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins hafði tölu­verð áhrif á und­ir­stöður sænska vel­ferð­ar­rík­is­ins sem hafði jafn­framt náð hátindi sínum á sjö­unda ára­tugnum. Stöðnun og hækk­andi verð­bólga höfðu orðið áber­andi á átt­unda og níunda ára­tugnum og um leið fór að fjara undan hinni breiðu þverpóli­tísku sátt sem hafði ein­kennt stjórn­mál lands­ins, einkum Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­inn.

Nýfrjáls­hyggjan hafði verið að ryðja sér til rúms á níunda ára­tugnum á Vest­ur­löndum og sótti hún einnig í sig veðrið í sænskum stjórn­málum, þá einna helst undir flaggi Hægri­flokks­ins. Síðan þá er óhætt að segja að áhrif nýfrjáls­hyggj­unnar í formi auk­ins einka­rekst­urs og nið­ur­skurðar innan vel­ferð­ar­kerf­is­ins hafi verið tals­vert áber­andi.

Velferðarríkið Svíþjóð verður til

Það var ekki bara sænska vel­ferð­ar­ríkið sem varð fyrir áhrifum af nýfrjáls­hyggj­unni undir lok tutt­ug­ustu aldar. Það má segja að nýfrjáls­hyggjan hafi á ákveð­inn hátt verið svar við efna­hags­legum erf­ið­leikum átt­unda ára­tug­ar­ins þar sem hið langa hag­vaxt­ar­skeið Vest­ur­landa leið undir lok með helj­ar­innar olíu­krísu. Gagn­rýn­is­raddir varð­andi vel­ferð­ar­kerfið höfðu þó farið að heyr­ast strax á seinni hluta sjö­unda ára­tug­ar­ins úr hægri­átt varð­andi ofsköttun en einnig úr vinstri­átt vegna skrifræðis, svo dæmi má nefna. Að auki var aug­ljóst að kostn­aður vel­ferð­ar­kerf­is­ins hafði orðið æ meri með árunum.

[adspot]En hvað átt við þegar talað er um að lönd séu vel­ferð­ar­ríki (e. welfare state) og starf­ræki vel­ferð­ar­kerfi (e. welfare system)? Fyrra hug­takið merkir almennt ákveðna teg­und af stjórn­ar­fari sem í grunn­inn veitir þegnum sínum fría heil­brigð­is­þjón­ustu, almanna­trygg­ingar, menntun og bætur. Jafn­framt á það að stuðla að félags­legu jafn­rétti en sér­stak­lega var lögð áhersla á jafn­rétti kynj­anna í til­felli Svía. Þannig er við­haldið eins konar örygg­is­neti sem tryggir þegnum sínum ákveðin lífs­gæði. Þó geta öll ríki rekið vel­ferð­ar­kerfi í ein­hvers konar mynd, og flest gera þau það, en það sem skiptir máli er þá hversu örlát svo­leiðis kerfi eru. Jafn­framt hefur lengi sú staðalí­mynd loðað við Svíþjóð að það sé eitt mesta vel­ferð­ar­ríki í heimi og sé jafn­framt tölu­vert vinstri­s­innað þegar kemur að opin­berri þjón­ustu og almennri vel­ferð. Á einum tíma­punkti stóðst það en á síð­ustu þrjá­tíu árum hefur ýmis­legt breyst.

Á öldum áður hafði vel­ferð einkum verið í formi ölm­usu fátækt­ar­hjálpar stjórn­valda og kirkj­unnar. Þá var fjöl­skyldan oft á tíðum eina örygg­is­net fólks þegar kom að vel­ferð. Með auk­inni þétt­býl­is­myndun og fólks­fjölgun á nítj­ándu öld sköp­uð­ust breyttar for­sendur fyrir betra lífi meðal verka­lýðs í Vestur-Evrópu. Í Skand­in­avíu urðu til sér­stak­lega sterkar verka­lýðs­hreyf­ingar sem náðu smámsaman að færa bar­áttu­mál sín á borð póli­tískra ákvað­anna. Í Svíþjóð voru það Sós­í­alde­mókratar sem helst börð­ust fyrir rétt­indum verka­lýðs­ins.

Eftir síð­ari heims­styrj­öld byggð­ist hug­mynda­fræði sænskra stjórn­valda –með Sós­í­alde­mókrata í far­ar­broddi– einkum á þeirri hug­sjón að ef að ríkið tryggði öllum þegnum sínum hágæða vel­ferð­ar­þjón­ustu myndi eft­ir­spurnin eftir ein­hvers konar betri þjón­ustu á vegum einka­að­ila hverfa. Kerfið, byggt á almennum gildum um jafn­rétti, átti þannig að vernda þegna sína fyrir skertum lífs­kjörum, til dæmis vegna slæmrar heilsu, elli og óhöppum. Þetta yrði svo öllum þegnum rík­is­ins, sama hvernig þeir stæðu, til góðs.

Hið sænska vel­ferð­ar­ríki byggð­ist í grunn­inn á ákveð­inni þver­sögn ef svo má að orði kom­ast. Vel­ferð­ar­ríkið varð til vegna mik­illar sam­stöðu innan verka­lýðs­bar­átt­unnar en átti jafn­framt að skapa kerfi sem bygg­ist á mik­illi ein­stak­lings­hyggju. Það er að segja, hver ein­asti ein­stak­lingur innan sam­fé­lags­ins átti að geta reitt sig á ríkið og þurfti þess vegna ekki að reiða sig á geð­þótta­á­kvarð­anir ann­arra ein­stak­linga til að lifa af.

Einnig er vert að taka fram að hug­myndin og mótun þessa vel­ferð­ar­ríkis var ekki ein­ungis hug­ar­fóstur ábyrgra vinstri manna, heldur var hún byggð á breiðri sátt um þörf þess. Bæði hægriöfl og bænda­for­ystan voru mót­andi í inn­leið­ingu þess. Það má þess vegna segja að grunn­hug­myndin um vel­ferð­ar­ríkið hafi í gegnum tíð­ina verið tals­vert bundin við þjóð­ar­sjálfs­mynd lands­ins sem var þegar leið á seinni hluta tutt­ug­ustu aldar lengi vel tals­vert eins­leit.

Hnignun sænska velferðarríkisins undir lok tuttugustu aldar

Uppúr 1970 skall á efna­hags­leg lægð í Svíþjóð sem hafði einnig látið til sín taka á öðrum Vest­ur­löndum sem fól meðal ann­ars í sér að útflutn­ings­mark­aðir erlendis hurfu og hag­vöxtur drógst saman. Gríð­ar­legur halli á rík­is­sjóði hafði síðan mynd­ast við lok ára­tug­ar­ins og fór að bera á efa­semdum um vel­ferð­ar­ríkið, kostnað þess og skrifræði þegar leið á níunda ára­tug­inn. Einnig fór að bera á heldur frjáls­legri tón þegar kom að vali fólks á þjón­ustu, einkum þar sem sveit­ar­fé­lög voru þarna í basli við að fjár­magna örláta heil­brigð­is­þjón­ustu sína. Allan átt­unda ára­tug­inn hafði verð­bólga verið hærri en í nágranna­löndum (rúm­lega 9%) og voru geng­is­fell­ingar tíðar.

Vel­ferð­ar­ríkið og form þess var mikið rætt um miðjan níunda ára­tug­inn en gagn­rýn­is­raddir hægr­is­ins – þá með liðs­styrk hug­mynda­fræði nýfrjáls­hyggj­unnar – höfðu verið að stig­magn­ast. Það hélt þó enn velli í sínu formi þegar Sós­í­alde­mókratar unnu kosn­ing­arnar 1985 með Olof Palme í far­ar­broddi sem hafði þá varið það af miklum krafti. Þó hafði heyrst í gagn­rýn­is­röddum innan sjálfs Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins og þótti aug­ljóst að mati margra að kerfið þyrfi að minnsta kosti á end­ur­bótum að halda í takt við breytta tíma.

Efnahagskreppa í upphafi tíunda áratugar

Í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins urðu síðan efa­semdir enn hávær­ari um það hvort vel­ferð­ar­ríki heims­ins gætu í raun staðið undir sinni örlátu vel­ferð og átti þetta þá sér­stak­lega við um sænska vel­ferð­ar­ríkið. Svíþjóð hafði farið úr því að vera fjórða rík­asta land í heimi árið 1970 í að verma fjórt­ánda sætið árið 1993. Það sem setti strik í reikn­ing­inn heima fyrir var mikið atvinnu­leysi (13%) og halli á rík­is­rekstri en fólks­fjöldi var að sama skapi far­inn að eld­ast. Útgjöld til vel­ferð­ar­mála voru 34% af lands­fram­leiðslu sem var vel yfir með­al­tal­inu í Evrópu (rúm­lega 26%) og gerðu róð­ur­inn jafn­framt enn þyngri. Enn stór­tæk­ari end­ur­bætur á vel­ferð­ar­rík­inu lágu á borði stjórn­valda og svarið var einka­væð­ing og nið­ur­skurður, og það í stórum stíl.

Ákveðnar breyt­ingar höfðu einnig verið að eiga sér stað í fjár­mála­kerfi lands­ins á níunda ára­tugnum. Fjöldi reglu­gerða sænskra stjórn­valda eftir síð­ari heims­styrj­öld gerði það að verkum að banka­kerfi lands­ins á níunda ára­tugnum ein­kennd­ist af miklum stöð­ug­leika en var þar á móti veru­lega kyrr­stætt og kom í veg fyrir að bankar gætu stundað áhættu­fjár­fest­ingar til að skapa gróða. Eftir margar geng­is­fell­ingar vegna mik­illar verð­bólgu í upp­hafi níunda ára­tug­ar­ins voru flestar þess­ara reglu­gerða á end­anum afnumdar á seinni hluta ára­tug­ar­ins. Bankar, trygg­inga­fé­lög og fjár­mála­fyr­ir­tæki urðu frjáls­ari, gátu fundið nýja mark­aði til að fjár­festa í og urðu um leið sam­keppn­is­hæf­ari þegar kom að lán­veit­ingu.

[adspot]Bankar urðu þarna leið­andi í lán­veit­ingum og leiddi þetta til þess að fjár­mála­fyr­ir­tæki sem voru að missa hlut­deild sína á hinum almenna lán­veit­ing­ar­mark­aði fóru í áhættu­sam­ari lán. Bera fór svo á áfram­hald­andi verð­bólgu á seinni hluta níunda ára­tug­ar­ins þar sem lán þessi voru með tals­vert hærri vexti en ann­ars­staðar. Hér var að mynd­ast ákveðin bóla og var sænska efna­hags­kerfið illa í stakk búið fyrir bæði utan­að­kom­andi og inn­lenda skelli, og þeir komu svo á end­anum.

Skell­irnir sem á end­anum sköp­uðu sína fjár­málakrepp­una í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins­voru helst fall Sov­ét­ríkj­anna og sam­ein­ing Þýska­lands sem leiddi til þess að alþjóð­legir vextir hækk­uðu og óstöðu­leiki mynd­að­ist í gjald­miðla­málum. Óstöð­ug­leiki innan rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi efna­hags­mál leiddi að lokum til þess að seðla­bank­inn hækk­aði stýri­vexti skyndi­lega 1991. Þannig dróg­ust hag­vöxtur og fjár­fest­ingar saman sama ár, atvinnu­leysi óx og bankar fóru að draga úr lánum sem orsak­aði mikið tap á end­anum. Að lokum varð það ljóst að bank­arnir stóðu frammi fyrir gríð­ar­legum fjár­magns­vanda­málum, greiðslu­þroti og láns­fjár­kreppu. Ný rík­is­stjórn lands­ins þurfti að grípa inn í.

Einkavæðing ríkisstjórnar Carl Bildts

Hægri sam­steypu­stjórn Carl Bildts tók svo við völdum í októ­ber 1991 eftir kosn­ing­arnar sama ár og hóf aðgerðir til að bjarga bönk­unum frá gjald­þroti. Þær aðgerðir fólust meðal ann­ars í því að ábyrgj­ast lán bank­anna en þessar aðgerðir hlutu yfir­gnæf­andi stuðn­ing þings­ins, þar á meðal Sós­í­alde­mókrata. Í takt við þetta vildi stjórnin einnig binda enda á sænska vel­ferð­ar­mód­elið og örlæti þess með miklum nið­ur­skurði.

Jafn­framt hafði rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata undir lok níunda ára­tug­ar­ins haf­ist handa við að dreifa mið­stjórn­ar­valdi er kom að reglu­gerðum og afskiptum af mennta­málum, heil­brigð­is­málum og félags­þjón­ustu. Aukið frjáls­ræði og vald­dreif­ing fór að ein­kenna þjón­ustu sveit­ar­fé­laga og bæj­ar­stjórna. Hin nýja rík­is­stjórn Bildts tók síðan við kefl­inu og gaf í. Þessi vald­dreif­ing hélt áfram og fóru nú einka­að­ilar innan heil­brigð­is­kerf­is­ins að fá fjár­mögnun frá rík­inu að sama skapi og opin­ber þjón­usta fékk. Þannig gat fólk farið að geta valið hvar það leit­aði sér ,,opin­berrar“ þjón­ustu.

Aukin stéttaskipting í skólakerfinu

Þegar kom að mennta­málum voru nú rík­is­reknir grunn­skólar komnir í sam­keppni við einka­vædda skóla um nem­endur og fjár­magn. Nú hafði (ákveðið) fólk val um ann­ars vegar í hvaða rík­is­rekna skóla barnið færi í og hins vegar hvort að rík­is­rek­inn eða einka­rek­inn skóli yrði almennt fyrir val­inu.

Eins og gefur að skilja fór hægt og rólega að bera á auk­inni stétta­skipt­ingu innan sænska skóla­kerf­is­ins þar sem til urðu „betri skólar“ sem jafn­framt voru í „betri hverfum“. Þar voru bæði umsóknir og nem­endur fleiri sem leiddi til auk­ins rík­is­fjár­magns sem þýddi um leið að „verri skól­arnir“, þar sem nem­endur voru (og eru) oft í miklum meiri­hluta inn­flytj­endur, fengu minna rík­is­fjár­magn þar sem aðsókn var minni.

Leitað til efnahagslegs stöðugleika innan ESB

Í miðjum nýfrjáls­hyggjugleð­skapnum tóku síðan Sós­í­alde­mókratar aftur við stjórn­ar­taumum árið 1994, þá undir for­ystu Ingvars Carlssonar. Um haustið sama ár gekk svo Sænska þjóðin aftur til kosn­inga þar sem hún var spurð hvort hún vildi ganga í Evr­ópu­sam­bandið (ESB). 52,3% af þjóð­inni svar­aði ját­andi og í jan­úar 1995 gekk svo landið form­lega í ESB. Það var hægri sam­steypu­stjórn Bildts sem hóf aðild­ar­við­ræður meðal ann­ars til að koma á meiri stöð­ug­leika í efna­hags­málum lands­ins sem til dæmis aðild að innri mark­aði ESB myndi leysa að ein­hverju leyti.

Innganga Svía í ESB mark­aði tíma­mót og átti eftir að breyta tals­vert miklu í efna­hags­horfum lands­ins. Einka­væð­ing hélt síðan áfram hjá Sós­í­alde­mókrötum þó svo að hin sterka trú á lög­mál mark­að­ar­ins hafi kannski ekki verið eins áber­andi og hjá rík­is­stjórn Carl Bildts. Tókst Svíum jafn­framt að jafna sig merki­lega vel á efna­hags­legu þrauta­göngu sinni og hafði til dæmis alþjóð­lega fjár­málakreppan 2008 í raun fremur lítil áhrif á efna­hag lands­ins.

Paula Blomqvist, aðstoð­ar­pró­fessor við Upp­sala­há­skóla, talar um að þær breyt­ingar sem urðu á tíunda ára­tugnum í vel­ferð­ar­rík­inu þegar kom að einka­væð­ingu hafi krist­all­ast í þeirri skoðun stjórn­valda að vel­ferð væri ákveðin þjón­usta sem ætti að veita á eins ódýran hátt og mögu­legt er. Sem er tölu­vert langt frá grunn­gildum vel­ferð­ar­ríkis Sós­í­alde­mókrata sem varð til með þeirri hug­sjón að veita öllum þegnum vel­ferð­ar­þjón­ustu, óháð mark­aðslög­málum kap­ít­al­ism­ans.

Vaxandi einkavæðing á kostnað sameignarstefnu

Á þessum tíma virð­ast flestir innan þings­ins, rík­is­stjórn­ar­innar og almenn­ings hafa viljað halda í vel­ferð­ar­ríkið en á sama tíma varð að gera það ódýr­ara miðað við slæmar efna­hags­horfur í land­inu. Hér má ef til vill sjá að sú sam­eign­ar­stefna (e. collectivism) sem hafði verið ein af lyki­lund­ir­stöðum vel­ferð­ar­rík­is­ins var að verða undir í upp­gangi nýfrjáls­hyggju og auk­ins neyt­enda­vals. Eign­ar­hald varð óljós­ara og gróð­inn rann til ólíkra átta. Í dag er þetta spurn­ing sem brennur á vörum margra Svía, en svo virð­ist sem gríð­ar­legir fjár­munir renni úr mennta­kerfi og heil­brigð­is­kerfi til erlendra einka­að­ila.

[adspot]Á tíunda ára­tug sótti enn meiri­hluti Svía rík­is­rekna vel­ferð­ar­þjón­ustu en þó hafði mann­eskjum með einka­sjúkra­trygg­ingu (s. sju­kvårds­för­säkring) fjölgað úr 23.000 árið 1990 í 115.000 árið 2000. Að sama skapi hafði fjár­mögnun rík­is­ins á heil­brigð­is­kerf­inu farið úr yfir 90% við upp­haf ára­tug­ar­ins niður í 80% við lok hans. Einnig voru aðeins um 60 einka­skólar í land­inu árið 1990 en árið 2000 voru þeir orðnir fleiri en 475. Nið­ur­skurð­ur­inn í heil­brigðis-, félags-, og mennta­málum fólst þess vegna bæði í minni fjár­veit­ingum ríkis og sveit­ar­fé­laga og einnig inn­komu einka­að­ila í stórum stíl. Það neyt­enda­val sem fylgdi þessu skap­aði síðan aukna stétta­skipt­ingu í mála­flokk­unum eftir hag hvers heim­ilis fyrir sig.

Við lok tutt­ug­ustu aldar var Svíþjóð síðan orðið leið­andi innan Evr­ópu­sam­bands­ins í almennri einka­væð­ingu. Strax árið 1988 voru járn­braut­ar­fyr­ir­tækin einka­vædd. Síma­fyr­ir­tæki lands­ins voru þar næst einka­vædd árið 1992 og raf­orku fyr­ir­tækin árið 1996. Hefur fram­kvæmd­ar­stjórn ESB notað Svíþjóð sem fyr­ir­mynd fyrir önnur ríki þegar kemur að einka­væð­ingu. Einnig fór að bera á einka­væð­ingu í varn­ar­málum lands­ins uppúr 2000 og hefur sú einka­væð­ing jafn­framt verið við­kvæmt póli­tískt efni síðan þá, sér­stak­lega þegar inn­ganga í hern­að­ar­banda­lag er á næsta leiti.

Ríkisstjórn Frederik Reinfeldts og frekari einkavæðing

Í októ­ber 2006 tók rík­is­stjórn Frederik Rein­feldts við eftir að flokkur hans, Hægri­flokk­ur­inn, hafði unnið sögu­legan kosn­inga­sigur þar sem Sós­í­alde­mókratar fengu sömu­leiðis sína verstu kosn­ingu síðan 1921. Þessi úrslit voru kannski á ákveð­inn hátt hápunktur nýfrjáls­hyggju­þró­unar und­an­far­inna ára. Rík­is­stjórn Rein­feldts, sem var við völd alveg til árs­ins 2014, hóf um leið enn stærri aðgerðir í einka­væð­ingu innan vel­ferð­ar­kerf­is­ins. Á síð­ustu ára­tugum hafa síðan stór einka­fyr­ir­tæki grætt tals­vert á vel­ferð­ar­rík­inu og einnig kom­ist undan skatti. Árið 2013 voru jafn­framt heild­ar­út­gjöld stjórn­valda til vel­ferð­ar­mála komin niður í 28,6% af lands­fram­leiðslu og voru þá til dæmis orðin lægri en í Frakk­landi (33,3%) og í Danmörku (30,8%).

Aukin fátækt og ójöfnuður

Á sama tíma og þessar breyt­ingar hafa átt sér stað hefur sænskt sam­fé­lag jafn­framt orðið meira fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Miðað við hin Norð­ur­löndin er í dag tals­vert stór hluti af fólks­fjölda Sví­þjóðar af erlendu bergi brot­inn, eða rúm­lega 20%. Ljóst er að ákveðnir hópar innan sænsks sam­fé­lags telja þó ákveðna hópa inn­flytj­enda ekki eiga rétt á sömu vel­ferð og „Svíar“.

Árið 2015 voru almanna­trygg­inga­bætur í Svíþjóð orðnar á pari við eða jafn­vel neðar en OECD með­al­talið. Þær bætur og einnig í félags­að­stoð höfðu þá ekki hækkað sam­hliða verð­lagi og launum í land­inu. Innkoma þeirra er starfa hafa hækkað gríð­ar­lega í sam­an­burði við mun lægri hækkun hjá þeim er ekki starfa. Að sama skapi jókst fjöld­inn í áhættu­hóp fyrir fátækt úr 8% 1999 yfir í 14% árið 2011. Hjá ein­stæðum for­eldrum jókst talan úr 11% yfir í heil 30%. Í annarri rann­sókn sem var gerð á lang­veikum ein­stak­lingum utan vinnu­mark­aðs í Svíþjóð, Danmörku og Bret­landi jókst talan í Svíþjóð úr 12,1% árið 2005 í heil 23,3% árið 2010.

Þessi þróun er nátengd vax­andi tekju­ó­jöfn­uði í land­inu en frá níunda ára­tugnum til dags­ins í dag hefur rík­asta 1% lands­ins aðeins orðið rík­ara. Um alda­mótin 2000 var tekju­ó­jöfn­uður í Svíþjóð næst lægstur meðal Norð­ur­land­anna en árið 2020 var hann orð­inn hæstur.

Einnig voru fram­kvæmdar tals­verðar skerð­ingar á sjúkra­trygg­ingum árið 2008 í þeim til­gangi að örva vinnu­mark­að­inn sem bar ekki árangur. Í árs­byrjun 2017 hafði mann­eskjum með einka­sjúkra­trygg­inu fjölgað um 5,2% síðan 2016 og voru í kringum 643 þús­und, eða 13% af þjóð­inni. Þetta er kannski ekki há tala í alþjóð­legum sam­an­burði en samt sem áður há miðað við hversu fjar­lægar einka­sjúkra­trygg­ingar voru í Svíþjóð fyrir ekki svo löngu síðan. Í lok árs­ins 2021 voru ein­stak­lingar með einka­sjúkra­trygg­ingu orðnir 720 þús­und, en þeim hafði fjölgað um ríf­lega 5% á rúmu ári.

Markaðslögmálum hampað á kostnað jafnréttislögmála

Í dag er Svíþjóð enn vel­ferð­ar­ríki þar sem stór pró­senta af þjóð­ar­fram­leiðslu fer í vel­ferð­ar­mál og stuðn­ingur við það meðal almenn­ings er enn almennt hár. Einnig yrði erfitt að halda því fram að ekki sé gott búa þar of lifa. Þó er það nú almennt aðeins á pari við önnur vest­ræn ríki í þessum málum sam­kvæmt tölum OECD. Málefni vel­ferð­ar­kerf­is­ins hafa þó verið áber­andi í kringum síð­ustu tvennar kosn­ingar þar sem meiri með­vit­und hefur skap­ast í kringum aug­ljósan gæða­mun í mennta­kerf­inu og gíf­ur­legan gróða stór­fyr­ir­tækja á vel­ferð­ar­málum.

Vel­ferð­ar­ríkið var reist á því grunn­mark­miði að gera einka­fram­takið til­gangs­laust í vel­ferð­ar­málum. Það varð til í efna­hags­legri vel­sæld eft­ir­stríðs­ár­anna og pass­aði vel inn í sam­fé­lag þar sem hag­vöxtur var mik­ill og full atvinna var ráð­andi. Eftir að róð­ur­inn þyngd­ist fyrst á átt­unda ára­tugnum og enn meira á tíunda ára­tugnum breytt­ist það með nýju efna­hags­legu lands­lagi. Það lands­lag varð þó einkum fyrir breyt­ingum frá hægr­inu, eða rétt­ara sagt, nýfrjáls­hyggj­unni.

Gildin fóru úr því að vera á sam­fé­lags­legum jafn­rétt­is­grund­velli yfir í ákveðin mark­aðs­sjón­ar­mið, að veita þjón­ustu á eins ódýran máta og hægt er – sama hver í raun græðir á end­anum. Lögmál mark­að­ar­ins tóku yfir af lög­málum jafn­réttis sem horn­steinn kerf­is­ins. Mögulega felst sænsk sér­stöðu­hyggja í þessu ríkj­andi jafn­vægi (eða ójafn­vægi) einka­fram­taks og ríkis, frelsis og jafn­réttis. Mögulega felst sænsk sér­stöðu­hyggja þó í því sem liðið er – hinu sænska vel­ferð­ar­ríki eins og það var á hátindi sínum á sjötta ára­tugnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár