Logi hættir sem formaður Samfylkingar í haust

Það verða for­manns­skipti hjá Sam­fylk­ing­unni á lands­fundi í októ­ber. Sitjandi for­maður seg­ist sann­færður um að aðrir geti gert betur en hann í að afla flokknum meira fylgi.

Logi Einarsson.
Logi Ein­ars­son. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, sem setið hefur sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar lengur en nokkur annar í rúm­lega 22 ára sögu flokks­ins, eða frá haustinu 2016, mun hætta sem for­maður á lands­fundi í októ­ber. Með því er hann að axla ábyrgð á slæ­legu gengi flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum þar sem hann tap­aði fylgi og fékk ein­ungis 9,9 pró­sent atkvæða.

Frá þessu greinir Logi í við­tali við Frétta­blaðið. „Það var aug­ljóst eftir þing­kosn­ing­arnar síð­ast­liðið haust að flokk­ur­inn upp­skar ekki það sem liðs­menn hans von­uð­ust eftir og mér fannst þá gefið að ég myndi axla mín skinn […] Ég ætl­aði að hætta strax, en ég var hvattur til að bíða með þá ákvörðun, að minnsta kosti um sinn.“

Nú sé hins vegar tíma­bært að greina frá ákvörð­un­inni. „Ég er að hætta sem for­maður af því að ég er sann­færður um að aðrir geti gert betur en ég.“

Varð óvænt formaður 2016

Logi hefur, líkt og áður sagði, verið for­maður flokks­ins frá árinu 2016. Logi, þá eig­in­lega algjör­lega óþekktur í stjórn­málum utan heima­byggð­ar, hafði boðið sig fram til vara­for­manns á lands­fundi sama ár og unn­ið.

[adspot]Fimm mán­uðum síðar sagði Oddný Harð­ar­dóttir af sér for­mennsku til að axla ábyrgð á hörmu­legu gengi í þing­kosn­ingum – flokk­ur­inn fékk 5,7 pró­sent atkvæða sem var og er versta frammi­staða hans í sög­unni – og Logi, eini kjör­dæma­kjörni þing­maður flokks­ins á þeim tíma, var allt í einu orð­inn for­mað­ur.

Í við­tali við Mann­líf árið 2019 sagði Logi að hann hafi „svo sem ekki verið að sækj­ast eftir áhrifum eða leið­toga­hlut­verki en ég enda þar.“ Hann var í kjöl­farið kall­aður útfar­ar­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar en óvæntar kosn­ingar 2017 leiddu til þess að flokk­ur­inn tvö­fald­aði fylgi sitt og lifði fyrir vikið af.
Von­brigðin með árang­ur­inn 2021 voru hins vegar mikil og aug­ljós. Tapað fylgi og næst versta nið­ur­staðan í 22 ára sögu flokks­ins stað­reynd þrátt fyrir sam­fellda setu í stjórn­ar­and­stöðu frá vor­inu 2013.

Kjós­­endur Sam­­fylk­ing­­ar­innar voru auk þess þeir kjós­­endur sem voru minnst ánægðir með frammi­­stöðu for­­manns þess flokks sem þeir studdu í síð­­­ustu kosn­­inga­bar­áttu. Ein­ungis 53,5 pró­sent þeirra sögðu Loga hafa staðið sig vel.

[links]Á flokks­stjórn­ar­fundi í mars síð­ast­liðnum flutti Logi ræðu þar sem hann gerði upp von­brigð­in. „Ef við horfum gagn­rýnum augum inn á við er vafa­laust hægt að leita skýr­inga víða; aðferðir við val á lista, mótun skila­boða, sam­skipta­hátt­um, mannauð og for­ystu flokks­ins. Og þar ber ég að sjálf­sögðu ábyrgð.“ Á lands­fundi í októ­ber 2022 yrðu teknar „stórar ákvarð­anir um fram­tíð flokks­ins.“

Þessi orð voru túlkuð sem skýr vís­bend­ing um að for­manns- og for­ystu­skipti væru framundan hjá Sam­fylk­ing­unni. Það hefur nú verið stað­fest.

Kristrún eða Dagur líklegust

Þau Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður flokks­ins, og Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, eru talin lík­leg­ust til að sækj­ast eftir for­mennsku. Dagur hefur ekki viljað segja af eða á um for­manns­fram­boð und­an­farið og Kristrún fór í hring­ferð um landið fyrr á þessu árí sem mat­hor túlk­uðu sem und­ir­bún­ing fyrir for­manns­fram­boð.
Kristrún hóf stjórn­mála­þát­töku í fyrra en Dagur, sem er fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur setið í borg­ar­stjórn í 20 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár