Innrásin í Úkraínu markar nýtt upphaf í Evrópu

Aðild­ar­um­sókn Úkraínu að Evr­ópu­sam­band­inu var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta á Evr­ópu­þing­inu á þriðju­dag en fram undan er langt og strangt aðild­ar­ferli, óháð stríðs­á­tökum. Forseti fram­kvæmda­stjórnar ESB segir inn­rás­ina marka nýtt upp­haf í Evrópu.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, klappaði Volodímír Zelenskí, forseta Úkraínu, lof í lófa eftir ávarp hans á Evrópuþinginu. Von der Leyen segir stund sannleikans vera að renna upp í Evrópu.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, klapp­aði Volodímír Zelenskí, for­seta Úkraínu, lof í lófa eftir ávarp hans á Evr­ópu­þing­inu. Von der Leyen segir stund sann­leik­ans vera að renna upp í Evrópu. Mynd: EPA

„Við erum hér í skugga stríðs Pútíns. Stríðs sem við hófum ekki. Stríðs sem er hrylli­leg inn­rás á full­valda, sjálf­stætt ríki,“ sagði Roberta Mesola, for­seti Evr­ópu­þings­ins, við upp­haf þing­fundar Evr­ópu­þings­ins í Brussel í fyrra­dag..

Þingið kom sér­stak­lega saman til að ræða inn­rás Rússa í Úkraínu. Volodímír Zelenskí, for­seti Úkraínu, og Ruslan Stefanchuk, for­seti úkra­ínska þings­ins, ávörp­uðu þingið frá Kænu­garði.

Mesola for­dæmdi inn­rás­ina og sagði úkra­ínsku þjóð­ina eiga stuðn­ing Evrópu vísan, sam­bandið muni styðja lög­sögu Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins og rann­sókn á stríðs­glæpum gegn Úkraínu. „Við munum draga hann [Pútín] til ábyrgðar,“ sagði Mesola.

Zelenskí skrif­aði undir form­lega umsókn um aðild að Evr­ópu­samn­bandinu á mánu­dag, fjórum dögum eftir að inn­rás rúss­neska hers­ins hófst. Í ávarpi sínu á Evr­ópu­þing­inu óskaði hann enn á ný eftir stuðn­ingi Evrópu. „Við erum að berj­ast fyrir rétt­indum okkar, frelsi og lífi, og sem stendur – að lifa af. Við erum einnig að berj­ast fyrir því að vera jafn­ingjar Evrópu,“ sagði Zelenskí. Atkvæða­freiðsla um umsókn­ina fór fram á þing­inu og var hún sam­þykkt með miklum meiri­hluta: 637 atkvæðum gegn 13. 26 sátu hjá.

Öll torg í Úkraínu verða frelsistorg

Zelenskí flutti ávarp sitt milli árása rúss­neska hers­ins, sem beindust þá einna helst að borg­inni Karkív, næst stærstu borg Úkraínu, þar sem sprengjum var meðal ann­ars varpað á Frelsis­torgið þar í borg. „Héðan í frá verður hvert ein­asta torg í borgum Úkraínu kallað Frelsis­torg,“ sagði for­set­inn, og ítrek­aði að þingið og leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna yrðu nú að sanna að sam­bandið standi með Úkraínu. „Við höfum sannað styrk okkar. Við höfum sýnt að við erum alveg eins og þið. Sýnið að þið standið með okkur. Sýnið að þið yfir­gefið okkur ekki. Sannið að þið séuð Evr­ópu­búar. Þá mun lífið hafa betur gegn dauð­anum og ljósið mun sigra myrkrið,“ sagði Zelenskí, áður en hann lauk ávarp sínu á orð­unum Slava Ukraini: Dýrð sé Úkraínu.

Úkraína er að verja landamæri hins siðmenntaða heims

Ruslan Stef­ant­sjúk, for­seti úkra­ínska þings­ins, sagði Úkraínu vera að verja landa­mæri hins sið­mennt­aða heims. „Ef Úkraína fellur er engin leið að vita hvar Rússar munu stöðva,“ sagði Stef­ant­sjúk, sem und­ir­strik­aði að besta leiðin til að sýna Úkraínu stuðn­ing væri að við­ur­kenna vilja rík­is­ins að vera hluti af Evrópu.

[links]Charles Michel, for­seti leið­toga­ráðs ESB, sagði inn­rás Rússa land­stjórn­mála­leg hryðju­verk. Hann full­viss­aði Evr­ópu­þing­menn um að ráðið myndi fara ítar­lega yfir „alvar­lega, tákn­ræna, póli­tíska, og að mínu mati, lög­mæta beiðni“ Úkraínu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, ítrek­aði orð sín frá því á mánu­dag þegar hún sagði Úkraínu „vera eitt af okkur“ og að ríkið ætti heima í Evr­ópu­sam­band­inu. Leið­togar allra flokka á Evr­ópu­þing­inu tóku til máls og voru sam­mála um að inn­rásin marki nýtt upp­haf í Evrópu og í raun heim­inum öllum.

Engin flýtimeðferð í boði

Þrátt fyrir stríðs­á­tök og yfir­gnæf­andi stuðn­ing við umsókn­ar­að­ild Úkraínu að sam­band­inu mun umsóknin þó ekki fá neina flýti­með­ferð. „Það er langur vegur fram undan,“ sagði von der Leyen. „Enginn getur hins vegar efast um að fólk sem sýnir jafn mikið hug­rekki til að standa vörð um evr­ópsk gildi eigi heima í Evr­ópu­fjöl­skyld­unni,“ bætti hún við.

Líkur benda til þess að orð von der Leyen séu fyrst og fremst tákn­ræn. Umsókn­ar­ferli í Evr­ópu­sam­bandið er langt og strangt og getur tekið allt að ára­tug líkt og dæmin sanna. Pólland sótti til að mynda fyrst um árið 1994 en fékk inn­göngu form­lega tíu árum síðar, 2004.

Til að full­gilda aðild umsókn­ar­ríkis þarf sam­þykki allra aðild­ar­ríkj­anna, sem nú eru 27. Ríkið þarf auk þess að aðlag­ast sam­eig­in­legum mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins og inn­leiða yfir 80 þús­und blað­síður af reglum og reglu­gerðum sam­bands­ins.

Flýti­með­ferð þykir einnig ólík­leg sökum fjölda aðild­ar­um­sókna sem enn eru óaf­greiddar, til að mynda frá Albaníu, Bosníu og Serbíu. Auk þess hefur útganga Bret­lands úr sam­band­inu og heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar gert sam­band­inu erfitt fyrir að sinna sínum hefð­bundnu verk­efnum, svo sem að útvíkka sam­bandið.

Vilji Úkraínu er hins vegar skýr en flókið og tíma­frekt reglu­verk Evr­ópu­sam­bands­ins virð­ist standa í vegi. Þó orð von der Leyen séu tákn­ræn þá eru þau skýr. Hún sagði stund sann­leik­ans vera að renna upp í Evrópu. „Við getum ekki litið á öryggi sem sjálf­sagðan hlut, við verðum að fjár­festa í því,“ sagði hún og bætti við að ef ætlun Pútíns væri að sundra ESB, NATO og alþjóða­sam­fé­lag­inu hefði honum tek­ist hið gagn­stæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár