Hálf milljón manna hefur flúið Úkraínu

Á sama tíma og yfir 60 kíló­metra löng lest af rúss­neskum her­trukkum nálg­ast Kænugarð og loft­varnaflautur eru þandar í hverri úkra­ínsku borg­inni á fætur annarri hefur hálf milljón manna flúið landið. Og sífellt fleiri leggja af stað út í óviss­una.

Fjölskylda frá Úkraínu bíður þess að komast yfir landamærin til Póllands
Fjöl­skylda frá Úkraínu bíður þess að kom­ast yfir landa­mærin til Póllands Mynd: EPA

Yfir hálf milljón manna hefur flúið Úkraínu síðan að inn­rás Rússa hófst. Flestir hafa flúið til Póllands, að sögn Filippo Gardi, fram­kvæmda­stjóra Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Stofn­unin á von á að um fjórar millj­ónir manna flýi Úkraínu á næstu dögum og vikum.

Hún sagði enn­fremur að í gær, mánu­dag, hefðu að minnsta kosti 102 almennir borg­arar fallið í stríð­inu en úkra­ínsk stjórn­völd sögðu fjöld­ann vera 352, þar af sextán börn.

[adspot]

BBC greindi frá því snemma í morgun að yfir 60 kíló­metra löng lest af rúss­neskum her­trukkum nálg­að­ist höf­uð­borg­ina Kænugarð. Þetta megi sjá á gervi­hnatta­myndum.

Langar raðir fólks- og lang­ferða­bíla hafa síð­ustu daga verið í landamæra­stöðvar að nágranna­löndum Úkraínu. Að minnsta kosti 281 þús­und hafa flúið til Póllands, yfir 84.500 til Ung­verja­lands, um 36.400 til Moldóvu, 32.500 til Rúmeníu og um 30 þús­und til Slóvakíu. Að auki hefur ótil­greindur fjöldi fólks flúið til ann­arra landa. New York Times greinir frá því að 129 þús­und manns hafi yfir­gefið aust­ur­héruð Úkraínu og farið yfir landa­mærin til Rúss­lands. Mjög fáir, lík­lega um 500 manns, hafa flúið til Hvíta-Rúss­lands.

[links]Í Úkraínu gilda her­lög sem felur m.a. í sér að úkra­ínskir karl­menn á aldr­inum 18-60 ára mega ekki yfir gefa landið. Til er ætl­ast að þeir grípi til vopna.

Fyrir marga flótta­menn er við­koma í næstu nágranna­löndum Úkraínu aðeins fyrsti áfanga­staður á lengra ferða­lagi, lík­lega oft­ast til ann­arra Evr­ópu­landa. Yfirvöld í Rúmeníu hafa til dæmis sagt, að því er fram kemur í frétt Reuters, að um helm­ingur allra þeirra sem komið hafa til lands­ins frá Úkraínu hafi þegar haldið leið sinni áfram.

Flóttinn mikli frá Úkraínu er þegar far­inn að jafn­ast á við það sem átti sér stað í stríð­inu á Balkan-skaga á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Sá stóri munur er þó á að nú er flótta­fólki mætt með opnum örmum.

En ekki hefur öllum enn tek­ist að flýja. Á það m.a. við fjöld­ann allan af náms­mönnum frá Afr­íku­ríkjum við úkra­ínska háskóla. Utan­rík­is­ráð­herra Sómalíu seg­ist hafa sett sig í sam­band við pólsk yfir­völd til að liðka fyrir flutn­ingi um 300 Sómala þangað. Ferðir þeirra yfir evr­ópsk landa­mæri eru þrautin þyngri á frið­ar­tímum. Á stríðs­tímum, líkt og nú, hafa fjöl­margar fregnir borist af hinu sama.

Þúsundir ungra Afr­íku­búa eru í námi við háskóla í Úkraínu. Flestir eru þeir frá Nígeríu, Gana, Kenía, Suður-Afríku, Eþíópíu og Sómalíu. Utan­rík­is­ráð­herra Nígeríu sagði á Twitter í fyrra­dag að úkra­ínskir landamæra­verðir væru að hindra för níger­ískra rík­is­borg­ara til nágranna­ríkja. Utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu sagði slíkt ekki mark­visst vera að eiga sér stað. Þeir ættu að geta flúið líkt og aðrir en bað um bið­lund vegna þess ófremd­ar­á­stands sem ríkti við landamæra­stöðv­arnar. Hann fyr­ir­skip­aði landamæra­vörðum í kjöl­farið að leyfa öllum útlend­ingum, hverrar þjóðar sem þeir væru, að yfir­gefa Úkraínu.

Utan­rík­is­ráð­herra Gana greindi svo frá því í gær að náms­menn þaðan hefðu ekki átt í erf­ið­leikum með að kom­ast yfir landa­mærin. Pólsk yfir­völd sögðu það ekki rétt að mark­visst væri reynt að koma í veg fyrir að Afr­íku­búar kæmu þangað. „Landamæra­verðir við pólsku landa­mærin hjálpa öllum að flýja átaka­svæðin í Úkraínu. Þjóðerni eða rík­is­borg­ara­réttur skiptir þar engu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár