Evrópusambandið herðir enn takið

Loft­helgi Evr­ópu­sam­bands­ins hefur verið lokað fyrir umferð flug­véla skráðra í Rúss­landi, rúss­neskar áróð­urs­fréttir verið bann­aðar innan Evrópu og hefja á þving­un­ar­að­gerðir gegn Hvíta-Rúss­landi.

Ursula von der Leyen hefur tilkynnt um enn frekari aðgerðir Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen hefur til­kynnt um enn frek­ari aðgerðir Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­band­ins, hefur kynnt enn frek­ari við­ur­lög vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu, í kjöl­far fundar fram­kvæmda­stjórn­ar­innar fyrr í dag þar sem var ákveðið að Evr­ópu­sam­bandið myndi fjár­magna og koma til skila her­gögnum til Úkraínu.

Til­kynnir von der Leyen um aðgerð­irnar á Twitter-aðgangi sínum, þar sem segir Evr­ópu­sam­bandið ætla að bæta enn við þær víð­tæku þving­un­ar­að­gerðir sem kynntar voru í gær.

[links]Í fyrsta lagi verði loft­helgi Evr­ópu­sam­bands­ins lokað fyrir umferð flug­véla skráðra í Rúss­landi, sem muni ekki geta lent eða tekið á loft á land­svæði sam­bands­ins eða flogið yfir loft­helgi þess. Þetta eigi einnig við um einka­flug­vélar rúss­neskra ólíg­arka.

Í öðru lagi verði lagt algert bann við því sem hún kallar fjöl­miðlama­sk­ínu Kreml í Evrópu. Þannig muni rík­is­reknu rúss­nesku fjöl­miðl­arnir Russia Today og Sputnik, og und­ir­miðlar þeirra, ekki geta dreift lygum sínum til að rétt­læta stríð Vla­dimírs Pútín Rúss­lands­for­seta.

Í þriðja lagi verði ráð­ist í aðgerðir gegn hinum árás­ar­að­ila stríðs­ins, stjórn Alex­and­ers Lukashenko Hvíta-Rúss­lands­for­seta, með áherslu á helstu atvinnu­greinar lands­ins.

Þá hælir hún hug­rekki Volodymyrs Zelenzkyy, for­seta Úkraínu, sem og seiglu úkra­ínsku þjóð­ar­innar og segir Evr­ópu­sam­bandið taka opnum örmum á móti fólki á flótta frá Úkraínu vegna átak­anna, auk þess sem sam­bandið muni styðja við þær nágranna­þjóðir Úkraínu sem tekið hafi við flótta­fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár