Von bundin við samningaviðræður eftir að Pútín setti kjarnorkuvopn í viðbragðsstöðu

Samn­inga­nefnd úkra­ínskra stjórn­valda hefur sam­þykkt að funda með samn­inga­nefnd þeirrar rúss­nesku. Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur fyr­ir­skipað her­sveit sinni sem sér um kjarna­vopn að vera í við­bragðs­stöðu.

Úkraínu hefur tekist að veita rússneska hernum gott viðnám.
Úkraínu hefur tek­ist að veita rúss­neska hernum gott við­nám. Mynd: EPA

Rúmir þrír sól­ar­hringar eru síðan Rússland hóf alls­herj­ar­inn­rás í Úkraínu. Enn hefur Rússum ekki tek­ist að ná valdi á neinum af helstu borgum Úkraínu, utan næst­stærstu borgar lands­ins, Kharkiv, um stund. Það varði þó ekki lengi og til­kynnti hér­aðs­stjóri Kharkiv að borgin væri komin aftur undir stjórn Úkraínu um hádeg­is­bil í dag. Það má því segja að Úkraínu hafi tek­ist ágæt­lega að veita nágranna sínum við­spyrnu þrátt fyrir að þeim hafi verið veitt tak­mörkuð aðstoð úr vestri, sér­stak­lega framan af. Boðað hefur verið til samn­inga­við­ræðna rúss­neskra og úkra­ínskra stjórn­valda á Pripyat-ána á landa­mærum Úkraínu og Hvíta-Rúss­lands.

Hvaða viðurlögum hefur verið beitt

Allar helstu rík­is­stjórnir Evrópu lýstu yfir stuðn­ingi við Úkraínu í orði dag­inn sem inn­rás Rúss­lands hófst, en hægar hefur gengið að ná sam­stöðu um þær aðgerðir sem alþjóða­sam­fé­lagið, og sér­stak­lega Atl­ants­hafs­banda­lagið og Evr­ópu­sam­bandið, myndu beita gegn Rússum, sem brutu alþjóða­lög með inn­rás sinni. Það var loks í gær­kvöldi sem til­kynnt var að lokað yrði fyrir notkun helstu banka Rúss­lands á alþjóð­lega fjár­mála­kerf­inu SWIFT, sem nán­ast allar alþjóð­legar milli­færslur fara í gegnum og er von­ast til þess að það dragi veru­lega úr getu Rúss­lands til þess að halda hern­að­ar­að­gerðum af þess­ari stærð­argráðu áfram. Lengi vel voru það Þjóð­verjar sem stóðu í vegi fyrir þess­ari ákvörðun, en Þýska­land reiðir sig veru­lega á jarð­gas frá Rúss­landi. Stefnu­breyt­ing varð hins vegar í gær­kvöldi þegar Þjóð­verjar sam­þykktu að lokað yrði á aðgang rúss­neskra banka að SWIFT-fjár­mála­kerf­inu, auk þess sem þeir skuld­bundu sig til þess að senda veru­legt magn her­gagna til Úkraínu.

Aðrar aðgerðir sem gripið hefur verið til í til­raun til þess að draga úr sókn­ar­getu Rúss­lands fel­ast aðal­lega í ýmis konar við­skipta­þving­unum, sem er sér­stak­lega beint gegn Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta og þeirra sem næst honum standa, en slíkt hefur raunar við­geng­ist síðan Rússland hernam Krím­skaga árið 2014. Þá hefur nokkur fjöldi landa þegar lokað loft­helgi sinni fyrir flug­vélum skráðum í Rúss­landi, þeirra á meðal Ísland, og er von á að sam­stillt átak Evr­ópu­sam­bands­ins í þeim efnum verði kynnt fyrr en síðar. Þá hefur Ísland, sam­stíga banda­lags­þjóðum sínum, afnumið sér­staka ein­fald­ari með­ferð vega­bréfs­á­rit­ana fyrir rúss­neskra diplómata, við­skipta­fólk, þing­menn og full­trúa stjórn­valda.

Betur má ef duga skal

Óljóst þykir hvort við­skipta­þving­anir dugi til þess að draga úr Pútín, sem mun hafa verið nokkuð ljóst að alþjóða­sam­fé­lagið myndi ekki bregð­ast vel við inn­rás hans í Úkraínu, og þykir ein­hverjum Vest­ur­veldin skilja Úkraínu eina eftir til að verja fram­gang Rúss­lands inn í Evrópu. Rúss­lands­for­seta virð­ist þó í öllu falli þykja þving­un­ar­að­gerðir hafa gengið nægi­lega langt, en hann fyr­ir­skip­aði fyrr í dag að kjarn­orku­vopn rúss­neska her­afl­ans yrðu sett í við­bragðs­stöðu. Er það nokkurn veg­inn í sam­ræmi við það sem hann hót­aði við upp­haf inn­rás­ar­innar, þar sem hann sagði hvern þann sem myndi hafa hern­að­ar­leg afskipti af inn­rás hans mega búast við áður óséðum afleið­ingum.

Segja má að ástandið vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu sé eld­fimt, en ljóst er að betur má ef duga skal að stöðva fram­för Rúss­lands. Vonast er til þess að samn­inga­við­ræð­urnar sem loks eru komnar á dag­skrá, eftir að Úkraína neit­aði að þær færu fram í Hvíta-Rúss­landi, sem hefur aðstoðað Rússland í inn­rásinni, beri árangur og veiti svig­rúm til þess að draga megi úr spennustig­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár