Ekki komið til greina að vísa sendiherra Rússlands úr landi

Íslensk stjórn­völd hafa ekki til skoð­unar að vísa sendi­herra Rúss­lands úr landi. Í raun hefur erlendum stjórn­ar­er­ind­rekum aldrei verið vísað úr landi en það stóð tæpt í þorska­stríð­inu árið 1976 þegar Íslend­ingar slitu stjórn­mála­sam­bandi við Breta.

Ekki hefur komið til greina af hálfu íslenskra stjórnvalda að vísa sendiherra Rússlands úr landi sökum innrásar Rússlands í Úkraínu.
Ekki hefur komið til greina af hálfu íslenskra stjórn­valda að vísa sendi­herra Rúss­lands úr landi sökum inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu.

Ekki hefur komið til greina af hálfu íslenskra stjórn­valda að vísa sendi­herra Rúss­lands á Íslandi eða öðrum send­ir­ráðs­starfs­mönnum úr landi vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Mikhail V. Noskov, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, var boð­aður til fundar í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í tvígang í vik­unni, fyrst á mið­viku­dag og aftur á fimmtu­dag eftir að inn­rás Rúss­lands í Úkraínu hófst. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að á óvissu­tímum sem þessum sé mik­il­vægt að sam­skipta­leiðir séu fyrir hendi á milli stjórn­valda í ríkjum heims.

Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra, flutti skýrslu fyrir Alþingi á fimmtu­dag þar sem hún for­dæmdi harð­lega inn­rás Rússa í Úkra­ínu. Á fundi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með sendi­herr­anum á fimmtu­dag var honum gerð grein fyrir afstöðu Íslands og hörðum mót­mælum við inn­rásinni var komið á fram­færi.

Ekki innrás heldur „hernaðaraðgerð“

Noskov sagði í kvöld­fréttum RÚV á fimmtu­dag að ekki væri um inn­rás að ræða heldur hern­að­ar­að­gerð til að tryggja öryggi rúss­neskra borg­ara, bæði í Úkraínu og í Rúss­landi. Þá sé mark­mið hern­að­ar­að­gerð­ar­innar að draga úr styrk hers­ins í Úkraínu.

Ákvörðun Íslands um að vísa sendi­herra ekki úr landi, að minnsta kosti ekki enn sem komið er, byggir meðal ann­ars á Vín­ar­samn­ingnum svo­kall­aða, alþjóða­samn­ingi um stjórn­mála­sam­band. Þar er meðal ann­ars kveðið á um að hlut­verk sendi­ráða sé að vernda hags­muni sendi­rík­is­ins og rík­is­borg­ara þess í mót­töku­rík­inu, innan þeirra tak­marka sem þjóða­réttur setur.

Brott­vísun sendi­ráðs­starfs­manna hefur því ekki komið til skoð­unar en utan­rík­is­ráðu­neytið mun fylgj­ast grannt með þróun og við­brögðum helstu vina- og banda­lags­þjóða, að því er segir í skrif­legu svari til Kjarnans.

Engin fordæmi fyrir því að vísa erlendum stjórnarerindrekum úr landi

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu eru engin for­dæmi fyrir því að íslensk stjórn­völd vísi erlendum stjórn­ar­er­ind­rekum úr landi.

Það mátti hins vegar ekki tæpara standa í þorska­stríð­inu 1976 þegar Íslend­ingar slitu stjórn­mála­sam­bandi við Breta vegna land­helg­is­deil­unnar. Sendi­herrar ríkj­anna fóru til síns heima en ræð­is­sam­bandi var ekki slitið. Síðar sama ár var stjórn­mála­sam­band ríkj­anna svo end­ur­nýjað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár