Þingmenn Sjálfstæðisflokks leggja aftur fram eigið frumvarp um skattaafslátt til fjölmiðla

Á sama tíma og ráð­herra fjöl­miðla­mála í rík­is­stjórn, sem inni­heldur meðal annar Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hefur boðað aðgerðir til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla hafa nokkrir þing­menn eins stjórn­ar­flokks­ins lagt fram eigið frum­varp um málið.

Óli Björn Kárason er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Óli Björn Kárason er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þau Óli Björn Kárason, Vil­hjálmur Árnason, Diljá Mist Ein­ars­son og Guðrún Haf­steins­dóttir, hafa lagt fram frum­varp sem felur í sér und­an­þágu fjöl­miðla á greiðslu trygg­inga­gjalds. Um er að ræða sama frum­varp og nokkrir þing­menn flokks­ins, meðal ann­ars Óli Björn og Vil­hjálmur, lögðu fram í des­em­ber 2019, en hlaut þá ekki braut­ar­gengi.

Ef frum­varpið verður að lögum mun trygg­inga­gjald sem á laun þeirra sem starfa á fjöl­miðlum sem eru undir 979.847 krónum, eða í tveimur lægri skatt­þrep­unum, falla niður.

Trygg­inga­gjaldið er í dag alls 6,35 pró­sent og leggst á heild­ar­laun. Fyrir hvern starfs­mann, upp að ofan­greindu hámarki launa, er því hægt að fá allt að 62.220 krónur í skatt­afslátt. Und­an­þágan frá greiðslu trygg­inga­gjalds tekur ein­ungis til fjöl­miðla­hluta fjöl­miðla­fyr­ir­tækis, þeirra sem „starfa við fram­leiðslu frétta­efnis, svo sem blaða­manna, útvarps­manna, og ann­arra starfs­manna sem styðja við þá fram­leiðslu, svo sem tækni­manna, starfs­manna aug­lýs­inga­deildar og starfs­manna launa­bók­halds.“

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að ekki sé búið að kostn­að­ar­meta það en að gera megi ráð fyrir að það„ hafi áhrif á trygg­inga­gjald vegna launa­greiðslna 600-700 starfs­manna einka­rek­inna fjöl­miðla.“

[adspot]Meðaltal reglu­legra heild­ar­launa blaða­manna og ann­arra höf­unda rit­aðs máls voru, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands, 720 þús­und krónur á mán­uði á árinu 2020. Miðað við þá tölu má ætla að kostn­aður við frum­varpið muni vera frá 330 til 384 millj­ónir króna á ári.

Stærstu fjölmiðlafyrirtækin myndu fá langmest

Leiðin sem þing­menn­irnir fjórir vilja fara gagn­ast að mestu þremur stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum lands­ins sem sinna frétta­þjón­ustu. Þar er um að ræða Árvakur, Torg og Sýn.

Árvakur, sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, greiddi til að mynda 103 millj­ónir króna í trygg­inga­gjald og önnur launa­tengd gjöld utan líf­eyr­is­sjóðs­gjalda á árinu 2020. Fyr­ir­tækið gæti sloppið við þorra þeirrar greiðslu ef frum­varp þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks yrði að lögum. Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, greiddi 182,6 millj­ónir króna í launa­tengd gjöld árið 2020, en í árs­reikn­ingi félags­ins er ekki gerður aðskiln­aður á greiðslum í líf­eyr­is­sjóð og öðrum launa­tengdum gjöldum. Ætla má að hlutur ann­arra launa­tengdra gjalda hjá Torgi, sem eru að nán­ast öllu leyti trygg­inga­gjald, sé um 70 millj­ónir króna.

Sýn er skráð félag á markað og að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Félagið rekur umfangs­mikla fjar­skipta- og afþrey­ing­ar­starf­semi sam­hliða rekstri frétta­tengdra miðla. Engin aðskiln­aður er gerður í árs­reikn­ingi Sýnar sem sýnir starfs­fólk hverrar ein­ingar fyrir sig og því er ekki hægt að áætla hversu háa upp­hæð félagið myndi fá til sín. Miðað við umfang starf­sem­innar má ætla að það yrði meira en það sem Torg fær getur átt von á að fá í skatt­afslátt. Sýn kall­aði sér­stak­lega eftir að þessi leið yrði far­inn til að styðja við einka­rekna fjöl­miðla í umsögn sem félagið skil­aði inn til Alþingis fyrir tæpu ári síðan.

Lögðu fram frumvarp á sama tíma og ráðherra

Frum­varpið um und­an­þágu fjöl­miðla á greiðslu trygg­inga­gjalds var síð­ast lagt fram í des­em­ber 2019, á nán­ast sama tíma og Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra fjöl­miðla­mála, lagði fram frum­varp um end­ur­greiðslur á rekstr­ar­kostn­aði til fjöl­miðla. Lilja hafði unnið að sínu frum­varpi í umtals­verðan tíma og mætt mik­illi and­stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna þess. Það náði ekki fram að ganga vegna þeirrar and­stöðu.

Eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á var breyttri útgáfu þess, sem tryggði hærri end­ur­greiðslur til stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna, breytt í nokkur konar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla upp á 350 millj­ónir króna. Næstum tvær af hverjum þremur krónum sem úthlutað var fóru til Árvakurs, Sýnar og Torgs.

Alþingi afgreiddi loks beitt frum­varp Lilju um styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla í lok maí í fyrra. Helsta breyt­ingin fólst í því að styrkja­kerfið var lög­fest til tveggja ára, og gildir því fyrir árin 2021 og 2022.

Í því fólst að 388,8 millj­ónum króna var skipt á milli þeirra einka­reknu fjöl­miðla sem upp­fylltu skil­yrði fyrir styrkja­greiðsl­unni á síð­asta ári. Sú upp­hæð lækkar svo um átta millj­ónir króna í ár vegna tveggja pró­senta aðhalds­kröfu.

Bentu á fækkun starfsfólks

Blaða­manna­fé­lag Íslands gerði athuga­semd við þessa aðhalds­kröfu, sér­stak­lega með til­liti til þess að fram­lög til RÚV í ár hækka um 430 millj­ónir króna, í umsögn sinni um fjár­laga­frum­varp árs­ins 2022. Ekki var tekið til­lit til athuga­semda þess.

[adspot]Í umsögn­inni sagði að starfs­fólki í fjöl­miðlum hafi fækkað um 45 pró­sent á árunum 2018 til 2020, eða um 731 alls. „Reynslan af þeim tveimur árum sem einka­reknir fjöl­miðlar hafa fengið opin­bera styrki hefur sýnt að þeir skipta gríð­ar­lega miklu máli fyrir fjöl­miðla­fyr­ir­tæki í vexti og sem eru að þróa sjálf­bæran rekstur og hafa jafn­vel leitt til fjölg­unar starfa á þeim miðl­um. [...] Til að mynda má benda á að á árinu 2020 fékk útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar styrk upp á 17,8 millj­ónir króna en tekjur þess juk­ust um 38,8 millj­ónir króna, eða 21 pró­sent. Á sama ári fékk útgáfu­fé­lag Kjarn­ans styrk upp á 9,3 millj­ónir króna en tekjur þess juk­ust um 18,3 millj­ónir króna á því ári, eða 31 pró­sent. Í til­felli þess­ara miðla sést skýrt að hver króna í styrk leiðir af sér aðra krónu í nýjum tekj­um. Þær tekjur umbreyt­ast svo í ný störf.“

Ráðherra hefur boðað „mjög ákveðna atlögu“

Lilja fer enn með mál­efni fjöl­miðla í rík­is­stjórn þótt hún hafi fært sig um ráðu­neyti eftir að stjórn­ar­flokk­arnir Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur end­ur­nýj­uðu sam­starf sitt eftir kosn­ing­arnar á síð­asta ári.

[links]Í við­tali við Morg­un­blaðið í lok síð­asta árs sagði hún ljóst að enn væri þörf á stuðn­ingi við fjöl­miðla, svo mik­il­vægir væru þeir fyrir upp­lýs­inga- og frétta­miðlun, lýð­ræð­is­lega umræðu og íslenska tungu. „Framtíð fjöl­miðla á Íslandi er í húfi og ég mun því á næstu mán­uðum gera mjög ákveðna atlögu sem miðar að því að bæta rekstr­ar­um­hverfi þeirra. Eitt er að breyta leik­reglum þannig að Rík­is­út­varpið gefi öðrum miðlum meira rými á aug­lýs­inga­mark­aði [...] Í annan stað þarf að skapa jafn­vægi í rekstr­ar­um­hverfi milli inn­lendra fjöl­miðla og félags­miðla og erlendra streym­isveitna, sem eru umsvifa­miklar á mark­aði hér. Skatt­lagn­ingu þarna þarf að breyta og þar er valdið hjá fjár­mála­ráð­herra, sem ég legg mikla áherslu á að bæti úr. Fjöl­miðlar eru aðgöngu­miði okkar út í sam­fé­lagið og lyk­ill að tungu­mál­inu.“

Heim­ildir Kjarnans herma að þessi vinna sé komin vel af stað og að verið sé að skoða þann mögu­leika að skrifa svo­kall­aða græn­bók um stöðu fjöl­miðla hér­lendis. Þess utan standi til að skipa starfs­hóp sem hafi það hlut­verk að vinna skýrar til­lögur sem geti komið til fram­kvæmda strax á þessu ári og hjálpað til við að létta undir með rekstri einka­rek­inna fjöl­miðla.

Það er við þessar aðstæður sem fjórir þing­menn eins stjórn­ar­flokks­ins, þess sem hefur lagst harð­ast gegn vinnu ráð­herr­ans þegar kemur að fjöl­miðla­málum, leggja fram frum­varp um að afnema trygg­inga­gjald á fjöl­miðla.

Athuga­semd rit­stjórnar: Kjarn­inn er eitt þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­ar­stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár