Blaðamannafélagið vill að styrkir til einkarekinna fjölmiðla verði hækkaðir

Í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi er gert ráð fyrir að fram­lag úr rík­is­sjóði til RÚV hækki um 430 millj­ónir króna, sem er 40 millj­ónum krónum meira en sam­an­lagðir styrkir til ann­arra fjöl­miðla.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands. Mynd: Aðsend

Blaða­manna­fé­lag Íslands hvetur fjár­laga­nefnd til að end­ur­skoða fyr­ir­ætl­anir um tveggja pró­senta lækkun fram­lags til styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þess í stað leggur félagið til að styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla verði auknir í sam­ræmi við auknar fjár­veit­ingar til Rík­is­út­varps­ins (RÚV), eða um átta pró­sent. Það þýðir aukn­ing styrkupp­hæðar um 30 millj­ónir króna í stað sam­dráttar um átta millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í umsögn Blaða­manna­fé­lags­ins um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar.

Þar er bent á sama tíma og styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla verði skertir milli ára er aukn­ing á fram­lagi til Rík­is­út­varps­ins upp á 430 millj­ónir sem er hærri upp­hæð en allir styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi sam­an­lagt. „Lækkun styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla milli ára er jafn­framt í hel­beru ósam­ræmi við stöðu einka­rek­inna miðla, sem eru í meiri krísu en nokkurn tím­ann hefur þekkst. “

Hækkun til RÚV 40 milljónum meiri en allir styrkir til hinna

Miðað við fjár­lög 2021 er aukn­ingin í fjár­laga­frum­varpi 2022 vegna skuld­bind­andi samn­inga vegna fjöl­miðla, sem eru fram­lög til Rík­is­út­varps­ins, 430 millj­ónir króna. Framlög til Rík­is­út­varps­ins eiga því að fara úr 4.655 þús­und krónum á fjár­lögum 2021 í 5.085 þús­und krónur sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2022.

[adspot]Í umsögn Blaða­manna­fé­lags­ins segir að þó þessi aukn­ing sé fjár­mögnuð með 2,5 pró­sent hækkun útvarps­gjalds skjóti það skökku við að á sama tíma og ríkið telji að nauð­syn­legt sé að hækka fram­lög til Rík­is­út­varps­ins um 430 millj­ónir króna sé gerð aðhalds­krafa upp á tvö pró­sent til styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla. „Til þess að setja þessa hækkun fram­laga til Rík­is­út­varps­ins í sam­hengi má benda á að hún er um 40 millj­ónum krónum meiri en sam­an­lagðir styrkir til allra einka­rek­inna fjöl­miðla lands­ins á árinu 2022.“

Í umsögn­inni segir að starfs­fólki í fjöl­miðlum hafi fækkað um 45 pró­sent á árunum 2018 til 2020, eða um 731 alls. „Reynslan af þeim tveimur árum sem einka­reknir fjöl­miðlar hafa fengið opin­bera styrki hefur sýnt að þeir skipta gríð­ar­lega miklu máli fyrir fjöl­miðla­fyr­ir­tæki í vexti og sem eru að þróa sjálf­bæran rekstur og hafa jafn­vel leitt til fjölg­unar starfa á þeim miðlum. [...] Til að mynda má benda á að á árinu 2020 fékk útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar styrk upp á 17,8 millj­ónir króna en tekjur þess juk­ust um 38,8 millj­ónir króna, eða 21 pró­sent. Á sama ári fékk útgáfu­fé­lag Kjarnans styrk upp á 9,3 millj­ónir króna en tekjur þess juk­ust um 18,3 millj­ónir króna á því ári, eða 31 pró­sent. Í til­felli þess­ara miðla sést skýrt að hver króna í styrk leiðir af sér aðra krónu í nýjum tekjum. Þær tekjur umbreyt­ast svo í ný störf.“

Í til­felli stærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækja, sem treysta að uppi­stöðu á aug­lýs­inga­tekjur, þá hafi styrkirnir mildað það högg sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn veitti þeim ásamt breyttum for­sendum á aug­lýs­inga­mark­aði og gert þeim kleift að forð­ast fjölda­upp­sagnir.“

Vilja að ríkisstjórnin grípi til enn frekari aðgerða

Í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar, sem Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir fom­aður Blaða­manna­fé­lags Íslands skrifar undir, segir að félagið árétti að til þess að standa við áform sín um að ráð­ast í aðgerðir til að tryggja fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði og öfl­ugt almanna­út­varp þurfi rík­is­stjórnin, og fjár­laga­nefnd, að taka til skoð­unar að grípa til enn frek­ari aðgerða en beinna styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla. „Bendir Blaða­manna­fé­lagið í því sam­hengi á áskorun félags­ins til stjórn­mála­flokka sem send var út fyrir síð­ustu kosn­ingar þar sem félagið leggur til stuðn­ings einka­rek­inna fjöl­miðla.“

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­­­­­­­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­­­­­­ings­greiðsl­­­­­um úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár