Ísland lýsir yfir vilja til að halda áfram að styðja við úttekt FAO

Sendi­full­trúi Íslands lýsti því yfir á veffundi Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ar­innar (FAO) að Ísland vildi halda áfram að styðja við fram­kvæmd rann­sókn­ar­verk­efnis sem lýtur að við­skipta­háttum útgerða í þró­un­ar­löndum.

Stefán Jón Hafstein sendifulltrúi með orðið á veffundinum í dag.
Stefán Jón Hafstein sendi­full­trúi með orðið á veffund­inum í dag.

Stefán Jón Hafstein, sendi­full­trúi Íslands, lýsti því yfir fyrir hönd íslenskra stjórn­valda á veffundi Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ar­innar (FAO) í dag að vilji stæði til þess að halda áfram að styðja við rann­sókna­verk­efni, sem hafið er á vegum stofn­un­ar­innar og lýtur að því að kort­leggja við­skipti með veiði­heim­ildir þvert á ríki og við­skipta­hætti útgerða í þró­un­ar­löndum.

Fram hefur komið að reiknað er með því að verk­efnið verði unnið í fjórum áföngum, en skýrsla um þann fyrsta var kynnt á veffund­inum sem stofn­unin stóð fyrir í dag. Skýrslan verður þó ekki birt í heild sinni fyrr en í upp­hafi nýs árs.[links]

Íslensk stjórn­völd ákváðu að hafa frum­kvæði að verk­efn­inu eftir að Sam­herj­a­málið kom upp á yfir­borðið fyrir tæpum tveimur árum síðan og fjár­mögn­uðu vinn­una við fyrsta áfang­ann, sem kynnt var í dag.

Að hafa frum­kvæði að þess­ari úttekt var ein af nokkrum aðgerðum sem rík­is­stjórnin ákvað að ráð­ast í til að „í því skyni að auka traust á íslensku atvinnu­lífi“ vegna Namib­íu­máls­ins sem stundum er svo kallað.

[adspot]

Stefán Jón Hafstein lýsti því yfir á fund­inum, sem áður segir, að íslensk stjórn­völd hefðu vilja til þess að halda áfram að fjár­magna þetta rann­sókn­ar­verk­efni, en fram kom á fund­inum að næsta skref verk­efn­is­ins, annað af fjórum, yrði að gera efna­hags­lega grein­ingu á þeim samn­ingum um veiði­heim­ildir sem kort­lagðir voru í fyrsta áfang­anum.

Þriðja skrefið, sam­kvæmt lög­fræð­ingi hjá FAO sem tók til máls á veffund­inum, mun svo auk ann­ars fel­ast í því að greina vanda­mál sem eru til staðar varð­andi samn­inga um veiði­heim­ildir og í fjórða áfang­anum verður sjónum meðal ann­ars beint því hvernig megi koma í veg fyrir að svika­starf­semi líð­ist hvað þennan mála­flokk varðar.

Hægt er að nálg­ast útdrátt um þær nið­ur­stöður sem dregnar voru fram í fyrsta áfanga verk­efn­is­ins á vef FAO.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár