Kærir kosningarnar – Gat ekki dregið fyrir þegar hann kaus

Kæra hefur borist Alþingi vegna kosn­ing­anna í lok sept­em­ber. Á sama tíma og fatl­aður maður greiddi atkvæði í Borg­ar­bóka­safni við Kringl­una gekk ókunnug mann­eskja fram hjá kjör­klef­anum sem hefði „aug­ljós­lega getað séð hvernig kær­andi kaus“.

Rúnar Björn Herrera Þor­kels­son, kjós­andi í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, hefur lagt fram kæru til Alþingis þar sem hann krefst þess að þingið úrskurði ógildar Alþing­is­kosn­ing­arnar sem fram fóru í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Það gerir hann á grund­velli þess að það fyr­ir­komu­lag sem við­haft er til að skera úr um lög­mæti kosn­ing­anna sam­rým­ist ekki lög­festum við­auka við Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. „Brotið felst í því að Alþingi hygg­ist úrskurða sjálft um lög­mæti kosn­ing­anna, þrátt fyrir aug­ljósa hags­muni þing­manna af nið­ur­stöð­unni, og án þess að fyrir liggi nokk­urs konar áfrýj­un­ar­úr­ræði til handa kjós­endum. Bendir kær­andi á fyr­ir­liggj­andi álit Fen­eyja­nefnd­ar­innar í þessu sam­hengi,“ segir í kærunni.

Þess fyrir utan krefst kær­andi þess að kosn­ing­arnar verði ógiltar í sam­ræmi við lög um kosn­ingar til Alþingis á grund­velli þess að honum var sem fötl­uðum ein­stak­lingi mein­aður réttur til leyni­legra kosn­inga. Tólf kærur hafa borist Alþingi vegna kosn­ing­anna og hægt er að sjá þær á vef þings­ins.

Upplifði talsverð óþægindi þegar hann kaus

Fram kemur í kærunni að Rúnar Björn hafi kosið á kjör­fundi í Borg­ar­bóka­safni við Kringl­una þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar sem hann er lamaður fyrir neðan axlir vegna mænu­skaða naut hann aðstoðar eig­in­konu sinnar við kosn­ing­una og er hún vitni um máls­at­vik.

[links]„Á bóka­safn­inu höfðu kjör­klefar verið reistir úr léttum bráða­birgða veggjum. Þeir voru stað­settir í miðju rým­is­ins og mynd­uðu þannig nokk­urs konar eyju sem virð­ist hafa verið hægt að ganga í kringum. Kjör­klef­inn fyrir fatlað fólk var á hlið­inni á þess­ari eyju og mynd­að­ist þannig þröngur gangur aftan við klef­ann.

Sá kjör­klefi sem ætl­aður var fólki sem notar hjóla­stól var hins vegar ekki með tjaldi svo kær­andi gat ekki dregið fyrir þegar hann kaus. Á sama tíma og hann greiddi atkvæði gekk ókunn mann­eskja fram hjá kjör­klef­anum og hefur við­kom­andi sem kær­andi kann engin deili á aug­ljós­lega getað séð hvernig kær­andi kaus. Þess ber að geta að gang­ur­inn sem við­kom­andi mann­eskja gekk á var svo þröngur að umræddur ein­stak­lingur hefur verið í um það bil eins til tveggja metra fjar­lægð frá kær­anda þegar hann merkti við kjör­seð­il­inn. Engar hindr­anir virð­ast hafa verið settar upp á þennan gang til að minnka líkur á því að slík umferð ætti sér stað á meðan fólk kaus,“ segir í kærunni.

Fram kemur að Rúnar hafi upp­lifað tals­verð óþæg­indi í tengslum fyr­ir­komu­lagið. Meðal ann­ars á grund­velli þess að á meðan hann kaus hafi hann séð þá kjós­endur sem stóðu í bið­röð við kjör­deild­ina. Hann upp­lifði fyrir vikið alls ekki að hann væri að taka þátt í leyni­legum kosn­ingum.

Aðstæður á kjörstöðum ekki fullnægjandi fyrir fatlað fólk

Kjarninn greindi frá því í byrjun októ­ber að rétt­inda­gæsla fatl­aðs fólks hefði orðið þess áskynja að aðstæður á kjör­stöðum hefðu ekki verið full­nægj­andi fyrir fatlað fólk í kosn­ing­unum. Erfitt hefði verið fyrir sumt fatlað fólk að athafna sig í kjör­klefa og gátu sumir jafn­vel ekki kosið leyni­lega.

Freyja Har­alds­dótt­ir, rétt­inda­gæslu­maður fatl­aðs fólks, sagði í sam­tali við Kjarn­ann að rétt­inda­gæslan væri á vakt á kjör­dag en hlut­verk þeirra er meðal ann­ars að útvega kosn­inga­vott­orð til þeirra sem geta ekki með skýrum hætti tjáð vilja sinn og þurfa aðstoð í kjör­klefa – annað hvort frá kjör­stjórn eða mann­eskju sem fólk velur sjálft.

„Sumir eru búnir að und­ir­búa þetta fyr­ir­fram en aðrir hafa ekki náð að und­ir­búa vott­orð eða vita ekki að þess þurfi. Þá erum við til taks svo fólk geti pott­þétt kos­ið. Svo erum við líka á vakt til að taka á móti erindum ef fatlað fólk lendir í vand­ræðum eða vantar upp­lýs­ing­ar,“ sagði hún.

Þrengslin sum staðar of mikil og kjörklefar of litlir

Freyja sagði enn fremur að borið hefði á því að ekki hefði verið nægi­lega gott aðgengi fyrir fatlað fólk á kjör­stöð­um, þrengsli hefðu sums staðar verið of mikil og kjör­klefar jafn­vel of litl­ir. Hæðin á borðum í kjör­klef­unum virt­ust jafn­framt ekki verið still­an­leg, sem hafði þær afleið­ingar að þau hent­uðu ekki alltaf fólki sem situr eða liggur í hjóla­stól.

Hún sagði að henni fyn­dist óeðli­legt að fylgja ekki lögum sem væru öllum borg­urum mjög mik­il­væg. „Þetta er ein af grunn­stoðum lýð­ræð­is­ins og ef þetta er ekki í lagi þá er það mjög mikið áhyggju­efn­i.“

Hún benti enn fremur á og ítrek­aði að Íslend­ingar hefðu und­ir­ritað mann­rétt­inda­samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks þar sem sér­stak­lega er kveðið á um aðgengi að stjórn­mála­þátt­töku og aðgengi að lýð­ræð­is­legri þátt­töku á kosn­ing­um. „Þar er mjög skýrt að fólk á að geta valið hver aðstoðar það og fólk á að geta kosið í leyni­legum kosn­ing­um. Það á að vera öruggt í kosn­inga­þátt­töku sinni. Það er grund­vall­ar­skylda að stjórn­völd fram­fylgi því og algjör lág­marks­krafa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár