Tilvik komu upp þar sem fatlað fólk fékk ekki að kjósa leynilega

Ekki var nægi­lega gott aðgengi fyrir fatlað fólk á kjör­stöðum í nýaf­stöðnum kosn­ingum, sam­kvæmt rétt­inda­gæslu­manni fatl­aðs fólks. „Þetta er ein af grunn­stoðum lýð­ræð­is­ins og ef þetta er ekki í lagi þá er það mjög mikið áhyggju­efni.“

Rétt­inda­gæsla fatl­aðs fólks varð áskynja um að aðstæður á kjör­stöðum hefðu ekki verið full­nægj­andi fyrir fatlað fólk í kosn­ingum lið­innar helgar. Erfitt var fyrir sumt fatlað fólk að athafna sig í kjör­klefa og gátu sumir jafn­vel ekki kosið leyni­lega.

Freyja Har­alds­dóttir, rétt­inda­gæslu­maður fatl­aðs fólks, segir í sam­tali við Kjarnann að rétt­inda­gæslan sé á vakt á kjör­dag en hlut­verk þeirra er meðal ann­ars að útvega kosn­inga­vott­orð til þeirra sem geta ekki með skýrum hætti tjáð vilja sinn og þurfa aðstoð í kjör­klefa – annað hvort frá kjör­stjórn eða mann­eskju sem fólk velur sjálft.

„Sumir eru búnir að und­ir­búa þetta fyr­ir­fram en aðrir hafa ekki náð að und­ir­búa vott­orð eða vita ekki að þess þurfi. Þá erum við til taks svo fólk geti pott­þétt kosið. Svo erum við líka á vakt til að taka á móti erindum ef fatlað fólk lendir í vand­ræðum eða vantar upp­lýs­ingar,“ segir hún.

Mikilvægt að hafa gott næði í klefunum

Freyja segir að borið hafi á því að ekki hafi verið nægi­lega gott aðgengi fyrir fatlað fólk á kjör­stöðum, þrengsli hafi sums staðar verið of mikil og kjör­klefar jafn­vel of litlir. Hæðin á borðum í kjör­klef­unum virt­ust jafn­framt ekki verið still­an­leg, sem hafði þær afleið­ingar að þau hent­uðu ekki alltaf fólki sem situr eða liggur í hjóla­stól.

„Við vorum upp­lýst um til­vik þar sem ekki var hægt að kjósa leyni­lega. Þá voru ekki alltaf tjöld fyrir klef­unum sem gerir það að verkum að það er mjög auð­velt að sjá inn í klef­ann. Í raun og veru er sér­stak­lega mik­il­vægt, myndi ég segja, fyrir aðgengið að hafa gott næði inni í klef­anum. Fólk sem nýtir aðstoð verður að geta átt sam­skipti þar inni og getað talað saman – og oft þarf aðstoð­ar­mann­eskja að sýna fötl­uðu mann­eskj­unni kjör­seð­il­inn og svo fram­vegis.“

Hún segir að þau vita ekki nákvæma tölu en til­fellin voru alla­vega fleiri en eitt þar sem ekk­ert tjald var fyrir klef­anum.

„Við munum gera minn­is­blað og koma þessum ábend­ingum til fram­kvæmda­að­ila kosn­ing­anna og fara yfir það sem fór úrskeiðis. Það er í raun nauð­syn­legt að kjör­staðir séu kort­lagðir sér­stak­lega út frá algildri hönnun og feng­inn væri ein­hvers konar aðgeng­is­full­trúi sem tryggði að kjör­staðir upp­fylltu við­mið sem tryggja fullt aðgengi fyrir alla. Til þess að tryggja að kosn­ingar fari fram þannig að fatlað fólk geti raun­veru­lega tekið þátt í þeim og að það sé alveg á hreinu að fólk geti athafnað sig og fái að njóta þeirra mann­rétt­inda sem ófatl­aðir borg­ara hafa – eins og það að kjósa leyni­lega.“

Skorað á yfirkjörstjórnir að styðja við fatlað fólk í kosningum

Þroska­hjálp stóð fyrir her­ferð fyrir kosn­ing­arnar þar sem skorað var á yfir­kjör­stjórnir og sam­fé­lagið allt að styðja við fatlað fólk í kosn­ingum, tryggja óhindrað aðgengi á kjör­stað og koma í veg fyrir for­dóma. 6.000 manns skrif­uðu undir áskor­un­ina.

Í áskorun Þroska­hjálpar kemur fram að fatlað fólk hafi hvar­vetna í heim­inum mátt þola að vera svipt kosn­inga­rétti vegna djúp­stæðra for­dóma og mis­mun­unar í lögum og/eða fram­kvæmd laga og þannig sé það enn mjög víða.

„Ísland er engin und­an­tekn­ing frá því þó að mjög margt hafi skánað og annað muni skána þegar ný kosn­inga­lög taka gildi í byrjun næsta árs. En þetta er ekki bara spurn­ing um að lög og reglur kveði á um rétt allra til að kjósa án mis­mun­unar. Þetta er líka spurn­ing um ýmsar hindr­anir í umhverfi og við­horfum fólks sem mæta fötl­uðu fólki þegar það ætlar að nýta kosn­inga­rétt­inn,“ stendur í áskor­un­inni.

Þá var spurt hvort tryggt væri að þeir sem þess þurfa fái aðstoð til að kom­ast á kjör­stað. Enn fremur hvort tryggt væri að aðgengi á kjör­stað væri hindr­un­ar­laust og öruggt – og hvort hætta væri á að fólk teldi eðli­legt að fatlað fólk nýtti ekki kosn­inga­rétt sinn og drægi jafn­vel úr því að gera það.

Þarf að tryggja þekkingu þeirra sem starfa á vettvangi kosninga

Freyja segir að í kosn­ing­unum hafi komið upp atvik og aðstæður þar sem erfitt hafi þótt að túlka lögin og verk­lagið í kringum þau, til að mynda hvað varðar að velja sér aðstoð­ar­mann í kjör­klefa. Einnig sé ekki alltaf hægt að treysta að kjör­stjórnir og starfs­fólk á kjör­stað sé fylli­lega upp­lýst um verk­lagið. „Það þarf að skýra margt betur og fræða alla þá sem starfa við kosn­ing­arnar. Að allir viti hver rétt­indi fólks eru og viti hvaða leiðir er hægt að fara til að tryggja að allir geti kosið.“

Kom á óvart í ljósi her­ferðar Þroska­hjálpar að þetta hafi ekki verið í lagi á kjör­stöðum núna?

„Jú, að ein­hverju leyti kom það á óvart. Auðvitað von­umst við alltaf til þess að kosn­ingar geti gengið þægi­lega fyrir sig fyrir fatlað fólk, og víða gekk þetta vel, en á sama tíma höfum við séð að það hefur ekki alltaf verið þannig. Þetta kom því kannski ekki mikið á óvart, en maður er samt alltaf að vona að þetta verði í lagi.“

Hún seg­ist fagna því að athygli hafi verið vakin á þessum málum fyrir kosn­ingar – bæði Þroska­hjálp með sinni her­ferð og ein­stak­lingar sem sett hafa sig í sam­band við þau. „Okkur er mjög annt um að þetta sé í lagi og því er mik­il­vægt að við séum upp­lýst ef svo er ekki.“

Hafa til­vik sem þessi ein­hverjar raunaf­leið­ingar?

„Lögin eru skýr, til dæmis að allir hafi rétt á því að taka þátt í leyni­legum kosn­ingum. En það ræðst af því hvað kjós­and­inn vill gera – kjós­and­inn sem hefur upp­lifað brot á þessum rétt­indum. Ein­stak­ling­ur­inn sem upp­lifir brotið getur kosið að leggja fram kvörtun eða kæra fram­kvæmd kosn­ing­anna. Geri hann það fer málið í ákveðið ferli og fær þá lík­lega ein­hverja nið­ur­stöðu. Það verður bara að koma í ljós hvað fólkið kýs að gera og hvort það ákveði að taka málin lengra,“ segir hún.

Áhyggjuefni ef þetta er ekki í lagi

Freyja segir að henni finn­ist óeðli­legt að fylgja ekki lögum sem séu öllum borg­urum mjög mik­il­væg. „Þetta er ein af grunn­stoðum lýð­ræð­is­ins og ef þetta er ekki í lagi þá er það mjög mikið áhyggju­efni.“

Hún bendir enn fremur á og ítrekar að Íslend­ingar hafi und­ir­ritað mann­rétt­inda­samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks þar sem sér­stak­lega er kveðið á um aðgengi að stjórn­mála­þátt­töku og aðgengi að lýð­ræð­is­legri þátt­töku á kosn­ingum. „Þar er mjög skýrt að fólk á að geta valið hver aðstoðar það og fólk á að geta kosið í leyni­legum kosn­ingum. Það á að vera öruggt í kosn­inga­þátt­töku sinni. Það er grund­vall­ar­skylda að stjórn­völd fram­fylgi því og algjör lág­marks­krafa.“

Í samn­ingnum segir meðal ann­ars að aðild­ar­ríkin skulu tryggja fötl­uðum stjórn­mála­leg rétt­indi og tæki­færi til þess að njóta þeirra til jafns við aðra og skulu jafn­framt tryggja að fötl­uðu fólki sé gert kleift að taka virkan og fullan þátt í stjórn­málum og opin­beru lífi til jafns við aðra, þar með tal­inn réttur og tæki­færi til þess að kjósa og vera kos­inn, meðal ann­ars með því að tryggja að kosn­inga­að­ferðir, kosn­inga­að­staða og kjör­gögn séu við hæfi, aðgengi­leg og auð­skilin og auðnotuð.

Einnig skuli vernda rétt fatl­aðs fólks til þess að taka þátt í leyni­legri atkvæða­greiðslu í kosn­ingum og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum án þving­ana með hót­unum og til þess að bjóða sig fram í kosn­ingum, að gegna emb­ættum með virkum hætti og að sinna öllum opin­berum störfum á öllum stigum stjórn­sýslu, jafn­framt því að greiða fyrir notkun hjálp­ar­tækja og nýrrar tækni þar sem við á og að fatlað fólk geti látið vilja sinn óþvingað í ljós sem kjós­endur og að heim­ilað sé í þessu skyni, þar sem nauð­syn krefur og að ósk þess, að það njóti aðstoðar ein­stak­linga að eigin vali við að greiða atkvæði.

Getur orðið kvíðvænlegt fyrir fatlað fólk að kjósa – sem dregur úr kjörsókn

Næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í maí á næsta ári og segir Freyja að mik­il­vægt sé að læra af þess­ari fram­kvæmd kosn­inga.

„Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem koma upp vanda­mál á kosn­inga­dag og við kosn­ingar – og þess vegna getur þetta orðið mjög þreyt­andi fyrir fatlað fólk og kvíð­væn­legt að fara að kjósa. Sem getur haft áhrif á kosn­inga­þátt­töku hóps­ins,“ segir hún.

Hún segir að fleiri hindr­anir séu í vegi fólks sem til­heyrir minni­hluta­hópum en öðrum, til dæmis til að kjósa sem dragi úr kjör­sókn. Þetta megi ekki ein­ungis sjá hér á landi heldur líka erlendis. „Það þarf að kort­leggja hvaða breyt­inga er þörf og fara yfir það á hverjum kjör­stað hvort allt sé í lagi. Allur strúktúr verður að vera eins skýr og hægt er til að fyr­ir­byggja að fatlað fólk upp­lifi mis­munun þegar það ætlar að nota kosn­inga­rétt­inn sinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár