Telja opnað fyrir óeðlilega mikið byggingarmagn við Ægisíðu 102

Íbúar í grennd­inni við Ægisíðu 102, þar sem þjón­ustu­stöð N1 er í dag, telja að borgin sé að opna á of mikla upp­bygg­ingu á lóð­inni með breyt­ingum á aðal­skipu­lagi. Þeir furða sig einnig á að Festi hf. fái bygg­inga­rétt­inn á lóð­inni afhentan.

Við Ægisíðu 102 er í dag þjónustu- og bensínstöð á vegum N1.
Við Ægisíðu 102 er í dag þjón­ustu- og bens­ín­stöð á vegum N1. Mynd: Google Maps

Í breyt­ingum á aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar fram til árs­ins 2040, sem þessa dag­ana bíða afgreiðslu borg­ar­yf­ir­valda, er verið að gera ýmsar breyt­ingar á stefnu borg­ar­innar um íbúða­byggð og skil­greina nýja reiti, marga hverja inni í grónum hverfum, sem upp­bygg­ing­ar­reiti.

Nágrönnum eins slíks reits við Ægisíðu 102 í vest­urbæ Reykja­víkur líst illa á áformin sem borgin hefur sett fram um við­mið upp­bygg­ingar á reitnum og ótt­ast að lóð­ar­haf­inn, Festi hf., muni láta skipu­leggja þar íbúða­byggð sem rími illa við umhverfi reits­ins, til að hámarka arð­semi bygg­ing­ar­reits­ins.

Íbúarnir, sem sendu inn sam­eig­in­lega umsögn við skipu­lags­breyt­ingar borg­ar­innar undir lok ágúst­mán­aðar, segj­ast mót­mæla því að sá rammi sé lagður upp í aðal­skipu­lag­inu að á reitnum, sem er við Ægisíðu 102 og hýsir í dag bens­ín­stöð N1, verði „heim­ilt að byggja allt að 5 hæða hús og/eða fleiri en 50 íbúðir“.

„Að okkar mati standa engar for­sendur til svo umfangs­mik­illar upp­bygg­ingar á þess­ari lóð, hvað sem líður almennum fyr­ir­vörum um að end­an­legar ákvarð­anir um bygg­ing­ar­magn o.fl. verði teknar í tengslum við gerð deiliskipu­lags,“ segir í umsögn íbú­anna, sem allir búa í næsta nágrenni og segja fleiri í grennd­inni deila áhyggjum þeirra af skil­grein­ingum reits­ins.[links]

Íbúarnir segja svæðið í kring ein­kenn­ast af einnar til tveggja hæða íbúða­húsum á fremur litlum lóðum og vísa í nýlega umfjöllun Kjarnans um lóðir bens­ín­stöðva sem Festi ætlar að skipu­leggja íbúa­byggð á sam­kvæmt sam­komu­lagi við borg­ar­yf­ir­völd.

Þar sagði auk ann­ars frá því að í fjár­festa­kynn­ingu Festis frá því í sumar hafi komið fram að bygg­ing­ar­magn á reitnum væri áætlað 13 til 15 þús­und fer­metrar, en sam­kvæmt sam­komu­lagi borg­ar­innar við Festi, sem und­ir­ritað var í maí, eru hug­myndir fyr­ir­tæk­is­ins um upp­bygg­ingu húsa sem verði á 2-4 hæðum. Lóðin sem um ræðir er um 6.000 fer­metrar að flat­ar­máli.

„Við munum bara búa til deiliskipu­lag og selja bygg­ing­ar­að­il­um, við erum ekki að fara í bygg­ing­ar­brans­ann,“ sagði Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri Festis við Kjarnann um þessi áform og önnur á lóðum þar sem bens­ín­stöðvar munu víkja sam­kvæmt sam­komu­lagi við borg­ina.

Nágrannar lóð­ar­innar við Ægisíðu segja í erindi sínu til borg­ar­innar að út frá sam­komu­lagi borg­ar­innar við Festi, aug­lýstri til­lögu um aðal­skipu­lagið og yfir­lýs­ingum for­stjóra Festis blasi við að ætl­unin sé að „full­nýta ítr­ustu heim­ildir til upp­bygg­ingar á lóð­inni“.

Furða sig á því að Festi fái byggingarréttinn

Auk þess sem íbú­unum hrýs hugur við því mikla bygg­ing­ar­magni sem fyr­ir­hugað er, sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu Festi, furða þeir sig á því að bygg­ing­ar­rétt­ur­inn á þessum reit, sem þeir áætla að sé rúm­lega millj­arðs króna virði, renni til Festis yfir höfuð.

[adspot]

„Það vekur furðu að þetta sé gert þegar haft er í huga að núgild­andi lóð­ar­leigu­samn­ingur Festi vegna Ægisíðu 102 rennur út árið 2027. Í 6. gr. samn­ings­ins kemur fram að vilji borg­ar­stjórnin ekki að loknum leigu­tíma samn­ings­ins fram­lengja leigu­samn­ing­inn skuli hún greiða leigu­taka sann­virði mann­virkja sem á lóð­inni standa. Í þessu felst að Festi á engan rétt til lóð­ar­innar eftir árið 2027 og rekstri bens­ín­stöðvar þar sjálf­hætt nema vilji Reykja­vík­ur­borgar stæði til þess að fram­lengja samn­ing­inn,“ segja íbú­arnir.

Þeir bæta því við að með vísan til þessa hefði mátt ætla að borgin myndi að minnsta kosti setja lóð­ar­haf­anum við Ægisíðu 102 „skýrar skorður varð­andi þá upp­bygg­ingu sem til álita geti þar komið“ og gæta þannig almanna­hags­muna.

Íbúarnir telja að Reykja­vík­ur­borg bæri að kynna sér­stak­lega fyrir íbúum vest­ur­bæjar sam­komu­lag sitt við Festi og útskýra hvernig borgin telji hags­munum hverf­is­ins best borgið með því að afhenda Festi skipu­lags­gerð og bygg­ing­ar­rétt vegna lóðar sem Reykja­vík­ur­borg muni hafa fullan umráða­rétt yfir eftir sex ár, gegn minni­háttar upp­gjöri við lóð­ar­hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár