Lýsa áhyggjum af „skuggasundum“ og dimmum íbúðum á Heklureit

Tveir arki­tektar gagn­rýna þétt­leika byggðar á hinum svo­kall­aða Heklu­reit við Laugaveg og segja athuga­semdir sínar raunar geta átt við um fleiri þétt­ing­ar­reiti í borg­inni. Þeir segja þétt­ingu byggðar með­fram legu Borg­ar­línu ekki mega bitna á gæðum íbúða.

Á hinum svokallaða Heklureit sem stendur við Laugaveg stendur til að byggja fjölmargar íbúðir á næstu árum.
Á hinum svo­kall­aða Heklu­reit sem stendur við Laugaveg stendur til að byggja fjöl­margar íbúðir á næstu árum. Mynd: Yrki/Úr deiliskipulagstillögu

Tveir arki­tektar hjá arki­tekta­stof­unni Glámu Kími segja að það sé „ekki við hæfi á 100 ára afmæl­is­ári fyrstu skipu­lags­lag­anna að stað­festa við­mið líkt og þau sem sett eru fram í deiliskipu­lags­til­lögu fyrir Heklu­reit“ og gera við skipu­lagið all­nokkrar athuga­semdir. Þeir segja fyr­ir­hug­aðan þétt­leika íbúða­byggðar of mik­inn og fyrir það muni gæði íbúða og götu­rýmis líða.

Þetta má lesa í umsögn þeirra Jóhann­esar Þórð­ar­sonar og Sig­björns Kjart­ans­sonar við breyt­ingar sem verið er að gera á aðal­skipu­lagi Reykja­víkur fram til árs­ins 2040, en umsagn­ar­frestur við skipu­lags­breyt­ing­arnar rann út í lok ágúst og fékk Kjarninn þær afhentar fyrir skemmstu.

Athugasemdir geti átt við um fleiri reiti

Arki­tekt­arnir tveir segja að þrátt fyrir að athuga­semd­irnar sem þeir setji fram lúti að Heklu­reitnum sér­stak­lega, gætu mörg atriði einnig átt við Orku­reit­inn svo­kall­aða á mörkum Suð­ur­lands­brautar og Grens­ás­vegs og einnig nokkur svæði í nýjum borg­ar­hluta í Elliða­ár­vogi og Ártúns­höfða, sem á að verða eitt helsta vaxt­ar­svæði Reykja­vík­ur­borgar á kom­andi árum, með þéttri byggð í grennd við borg­ar­línu­stöðvar.

„Und­an­farin ár hefur verið bent á galla sem hafa komið fram við upp­bygg­ingu fjöl­býl­is­húsa á þétt­ing­ar­reitum hér og þar í borg­inni. Þar virð­ist sem alúð og metnað skorti við að ná fram lág­marks­þörfum um sól­ar­ljós og dags­birtu svo öllum sé gert jafn­hátt undir höfði. Það hafa byggst upp íbúð­ar­kjarnar þar sem stór hluti gólf­flatar margra íbúða fær litla dags­birtu og sólar nýtur jafn­vel ekki við. Skuggi frá aðliggj­andi húsum eða hús­hlutum móta dimm inni­rými sem geta ekki talist við­un­andi. Götur eru nán­ast án sól­ar­ljóss með til­heyr­andi yfir­bragði og drunga. Léleg­ustu íbúð­irnar lenda oftar en ekki hjá þeim sem minnst hafa fjár­ráð og minnsta mögu­leika eiga á að eign­ast eða búa í íbúðum sem geta talist góðar. Slíkt fellur ekki undir félags­legan jöfnuð,“ segir í umsögn arki­tekt­anna.

Borgarlína skálkaskjól?

Í umsögn­inni velta arki­tekt­arnir því upp hvort Reykja­vík­ur­borg sé að fjölga íbúðum og byggðum fer­metrum á hvern hekt­ara á þétt­ing­ar­reitum til að fjár­magna strax þann útlagða kostnað sem Borg­ar­lína krefst. Þeir Jóhannes og Sigbjörn segja mik­il­vægt að í aðal­skipu­lag­inu sé skil­greindur rammi fyrir þróun vist­vænna sam­gangna, en það megi ekki vera „á kostnað gæða borg­ar­rýma og íbúða“.

„Í seinni tíð hefur mikið verið talað um hvernig einka­bíl­ism­inn hafði mót­andi áhrif á aðal­skipu­lag Reykja­víkur upp úr miðri síð­ustu öld og leiddi af sér ofvaxin gatna­kerfi, óáhuga­verð borg­ar­rými og lélega land­nýt­ingu. Tímabært er að snúa frá þeirri stefnu; en það væri illa ráðið að nota fyr­ir­hug­aða bygg­ingu Borg­ar­línu sem skálka­skjól til að heim­ila upp­bygg­ingu lélegra íbúða- og borg­ar­rýma í þeim til­gangi að auka arð­semi af fjár­fest­ingum við hana,“ segir í umsögn arki­tekt­anna tveggja.

[adspot]

Þeir Jóhannes og Sigbjörn segja að „því miður virð­ist sem að sé hið háa bygg­ing­ar­magn sem sett er fram á Heklu­reit sé rétt­lætt með því að greiða þurfi fyrir Borg­ar­línu með miklu bygg­ing­ar­magni“ og vísa í því sam­hengi til við­tals við einn höf­unda deiliskipu­lags­ins í útvarps­þætt­inum Flakk á Rás 1 í sumar.

Þar sagði arki­tekt hjá Yrki arki­tektum, sem stóðu að gerð deiliskipu­lags­ins, að mikið væri lagt upp úr þétt­leik­anum á reitnum af hálfu borg­ar­innar til þess að að borgin geti „rekið þessa Borg­ar­línu,“ og svo tryggja mætti að hið nýja sam­göngu­kerfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bæri sig.

Þröngar og skuggsælar götur

Í erindi þeirra Jóhann­esar og Sig­björns til borg­ar­innar lýsa þeir því að breidd gatna á jarð­hæð Heklu­reits­ins verði frá 9,5 metrum upp í 10 metra, með einni und­an­tekn­ingu þar sem gatan verði um 12,6 metrar. Þetta segja arki­tekt­arnir að segi þó ekki alla sög­una, þar sem skil­málar í deiliskipu­lagi heim­ili allt að tveggja metra útkrag hús­hliða sem snúa að götum.

„Í raun getur það þýtt að það verði 5,5 til 8,5 metrar á milli húsa fyrir ofan aðra hæð. Svo mjó gata milli hárra húsa verður skugga­sund á okkar breidd­argráðu,“ segir í erindi arki­tekt­anna, þar sem einnig segir að svo virð­ist sem „ekk­ert fag­legt mat hafi verið lagt á áhrif vinds (einkum norð­an­áttar) á hverfið og gæði mann­lífs í götu­hæð“, einkum á göt­unum sem liggja norður-suður og við Laugaveg.

„Það ber að harma,“ skrifa Jóhannes og Sigbjörn, og bæta því við að birtu­skil­yrði í göt­unum bendi ekki til þess að gróður komi þar með að búa við kjörað­stæður, en honum sé sam­kvæmt grein­ar­gerð með skipu­lag­inu ætlað að slá á vind­hviður.

Gagnrýna að gömul hús verði látin hverfa

Arki­tekt­arnir segja einnig að í húsa­könnun fyrir Heklu­reit­inn hafi verið ein­dregið mælt með því að nokkur mann­virki fengju að njóta verndar, en þrátt fyrir það sé stefnt að nið­ur­rifi þeirra, án þess að nokkur rök séu sett fram fyrir því í deiliskipu­lags­til­lög­unni.

Þetta segja þeir reyndar að hafi „í mörgum til­vikum verið til siðs, og jafn­vel þótt sjálf­sagt“ við útfærslu þétt­ingu byggðar, einkum á reitum þar sem fyrir var iðn­aður eða atvinnu­starf­semi.

Í nið­ur­lagi umsagnar sinnar segja þeir Jóhannes og Sigbjörn að þétt­ing­ar­stefnan verði að snú­ast um „lífs­gæði, bætt almenn­ings­rými, metn­að­ar­fulla hönnun, félags­legan jöfnuð og ábyrga umhverf­is­stefnu“ en mega ekki vera frítt spil fyrir fjár­festa og bygg­ing­ar­verk­taka né snú­ast um að fjár­magna Borg­ar­línu á kostnað gæða.

„Við hvetjum til þess að við hönnun nýrra hverfa verði tekið mið af sögu stað­ar­ins, veð­ur­fari, vist­kerfi og bygg­ing­ar­hefðum,“ skrifa þeir Jóhannes og Sigbjörn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár