Fara fram á að nýbyggingar í Mjóddinni verði ekki hærri en fimm hæðir

Margir íbúar í Neðra-Breið­holti mót­mæla skil­greindri við­mið­un­ar­hæð nýrrar byggðar í Mjódd og Norður-Mjódd í breyttu aðal­skipu­lagi Reykja­víkur. Íbúarnir segj­ast margir ótt­ast að kvöldsól og útsýni muni heyra sög­unni til, rísi háreist byggð á svæð­inu.

Mjódd og Norður-Mjódd verða að óbreyttu skilgreind sem uppbyggingarsvæði þar sem ráð er gert fyrir að hús geti verið 5-8 hæðir. Íbúar í Neðra-Breiðholti eru ekki par sáttir við það.
Mjódd og Norður-Mjódd verða að óbreyttu skil­greind sem upp­bygg­ing­ar­svæði þar sem ráð er gert fyrir að hús geti verið 5-8 hæðir. Íbúar í Neðra-Breið­holti eru ekki par sáttir við það. Mynd: Úr aðalskipulagstillögum

Fjöl­margir íbúar í Neðra-Breið­holti mót­mæla því að fyr­ir­huguð íbúa­byggð í Mjódd og Norður-Mjódd verði að jafn­aði 5-8 hæðir og segja að um „stökk­breyt­ingu í byggða­mynstri“ og „for­sendu­brest í skipu­lagi“ væri að ræða verði aðal­skipu­lag Reykja­víkur sam­þykkt í þeirri mynd sem til­lögur gera ráð fyrir. Fara íbú­arnir fram á að við­mið­un­ar­hæð bygg­inga á svæð­inu verði ekki meiri en fimm hæðir.

Þetta má lesa í all­mörgum athuga­semdum sem bár­ust við upp­færslu á aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar fram til árs­ins 2040, sem nú er til með­ferðar í stjórn­kerfi borg­ar­innar. Athuga­semda­frestur við skipu­lags­breyt­ing­arnar var til 31. ágúst s.l. og fékk Kjarninn allar umsagnir og athuga­semdir afhentar fyrir skemmstu.

Umsagnir þeirra sem hafa áhyggjur af hæð byggð­ar­innar sem til stendur að rísi í Mjódd­inni, meðal ann­ars á hinum svo­kall­aða Garð­heimareit, eru margar sam­hljóða. Í þeim segir að áætluð mikil fjölgun íbúða frá núgild­andi heim­ildum aðal­skipu­lags sé stökk­breyt­ing á byggða­mynstri og for­sendu­brestur á því skipu­lagi sem eign­irnar sem standa ofar í hverf­inu séu hann­aðar út frá.

Vert er að taka fram að í gild­andi aðal­skipu­lagi Reykja­víkur er Mjóddin skil­greind sem svæði þar sem hús geti verið 9 hæðir eða hærri, sökum þess að dæmi eru um hús af þeirri hæð þar. En nú stendur til að byggja íbúð­ar­hús­næði á reitum í Mjódd­inni og þrátt fyrir að með upp­færðu aðal­skipu­lagi sé verið að lækka við­miðið á hæðum húsa á þessum slóðum niður í 5-8 hæðir virð­ast íbúar ótt­ast að sá hæð­ar­rammi verði nýttur til fulls er reit­irnir verða nánar útfærðir í deiliskipu­lagi.

Hug­myndir hafa verið viðr­aðar um yfir 700 íbúðir á hinum svo­kall­aða Garð­heimareit, sem er í eigu Haga. Borgin sjálf gerir ráð fyrir 800 nýjum íbúðum í Mjódd í nýj­ustu hús­næð­is­á­ætlun sinni.

[adspot]

„Hæstu hús í Neðra-Breið­holti eru þrjár hæðir (fyrir utan eina und­an­tekn­ingu, Þang­bakka). Er það okkar mat að 5-8 hæða hús skerði útsýni og hafi mikil áhrif á skugga­varp á öll húsin í vest­ur­hluta hverf­is­ins. Hverfið var byggt þannig að lágreistu húsin eru neðst í jaðri Neðra-Breið­holts og þriggja hæða blokkir fyrir ofan þannig að allir hafa gott útsýni. Með því að byggja 5-8 hæða hús í Mjódd og Norður-Mjódd er verið að fara gegn því góða skipu­lagi sem hverfið er þekkt fyrir. Húsin eru hönnuð út frá núgild­andi skipu­lagi þar sem útsýnis og kvöldsólar nýtur. Tillaga að bygg­ingu allt að 8 hæða sam­felldrar byggðar vestan við byggð­ina, með mögu­leika á 10 hæðum að hluta, er því for­sendu­brestur frá núver­andi skipu­lagi,“ segir í fleiri en einni umsögn frá íbúum í Neðra-Breið­holti.

Skert gæði og virði húsnæðis

Í einni umsögn frá íbúum, sem er að mestu sam­hljóða því sem segir hér að ofan, er sér­stak­lega fjallað um hvernig bygg­ing 8 hæða sam­felldrar byggðar vestan við byggð­ina myndi að mati íbú­anna rýra veru­lega gæði heim­ilis þeirra við Ósabakka. Íbúarnir segja að þeir myndu í kjöl­far slíkrar upp­bygg­ingar ekki njóta sól­ar­ljóss nema mjög tak­mark­aðan hluta dags­ins og að það myndi draga úr gæðum og nota­gildi hús­næð­is­ins.

„Sömu­leiðis skerðir það útsýnið sem við njótum frá heim­ili okkar. Það yrði okkur einnig umtals­vert fjár­tjón þar sem slíkar fram­kvæmdir koma til með að hafa áhrif til lækk­unar á fast­eigna­verði hjá okkur sökum mik­illar skerð­ingar á gæðum sem hús­næðið skartar í dag sem er fjöldi sól­ar­stunda í stofu og bak­garði húss­ins og gott útsýni úr stof­unni,“ segir umsögn þess­ara íbúa.

Gengið í hús og nær allir skrifuðu undir mótmæli

Samkvæmt einni umsögn frá íbúum í hverf­inu var ráð­ist í und­ir­skrifta­söfnun á meðal íbúa í rað­hús­unum fyrir ofan Mjóddina og í vest­an­verðum Stekkjum, gegn því að byggð yrði hærri en fimm hæðir í Mjódd­inni.

Þar segir að 96 pró­sent þeirra sem voru heima er und­ir­skrifta­söfn­unin fór fram hafi verið til­búin að skrifa undir mót­mælin, eða íbúar í 133 húsum af 147 sem voru heim­sótt.

Í sömu umsögn segir einnig að með jafn mik­illi fjölgun íbúða í hverf­inu og gert sé ráð fyrir muni álag á inn­viði aukast og er þar rætt um grunn­skóla og heilsu­gæslu, „svo ekki sé minnst á gatna­kerfið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár