Vilja reisa nýtt verslunarhúsnæði á bílaplaninu við Bauhaus

Fast­eigna­fé­lagið Lamb­haga­vegur vill fá leyfi til þess að reisa nýjan 3-4.000 fer­metra versl­un­ar­kjarna á bílaplan­inu við Bauhaus. Félagið gerir ráð fyrir því að þar gæti verið mat­vöru­verslun, auk ann­arrar þjón­ustu.

Fasteignafélagið sem á verslunarhúsnæði Bauhaus vill fá leyfi til að byggja nýjan verslunarkjarna á lóðinni, sem liggur meðfram Vesturlandsvegi.
Fast­eigna­fé­lagið sem á versl­un­ar­hús­næði Bauhaus vill fá leyfi til að byggja nýjan versl­un­ar­kjarna á lóð­inni, sem liggur með­fram Vest­ur­lands­vegi. Mynd: Úr erindi fasteignafélagsins til borgarinnar

Lamb­haga­vegur fast­eigna­fé­lag ehf., sem er eig­andi versl­un­ar­hús­næðis Bauhaus, fal­ast nú eftir því við Reykja­vík­ur­borg að fá heim­ild til þess að reisa hús­næði undir mat­vöru­verslun og aðra þjón­ustu á bílaplan­inu við Bauhaus.

Fast­eigna­fé­lagið telur að mat­vöru­verslun á þessum stað muni koma til móts við þarfir auk­ins fjölda íbúa í Úlf­arsár­dal, sem í dag þurfi að aka yfir í önnur hverfi til þess að gera stórinn­kaup til heim­il­is­ins.

Þetta kemur fram í inn­sendu erindi um breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­víkur, sem fast­eigna­fé­lagið fól lög­manns­stofu að senda til borg­ar­innar í ágúst­mán­uði. Þar segir að versl­un­ar­hús­næðið sem fast­eigna­fé­lagið sér fyrir sér að reisa sé um 3-4.000 fer­metrar og þar af yrði rými fyrir um 1.500 fer­metra mat­vöru­verslun.

[adspot]

Í erindi fast­eigna­fé­lags­ins segir að margt mæli með því að leyfi fáist til að setja upp mat­vöru­verslun á þessum stað. Auk þess sem þörf íbúa til þess að keyra út úr hverf­inu til þess að versla verði eytt sé stað­setn­ingin, á mörkum stofn­brautar og tengi­brautar innan hverfis, til þess fallin að stuðla að minni umferð innan hverf­is­ins, þar sem versl­unin sé „í leið­inni heim fyrir íbúa hverf­is­ins“.

„Annar aug­ljós kostur,“ segir í umsögn­inni, er sá að engin þörf verður á því að ryðja land undir og útbúa ný bíla­stæði, þar sem fyr­ir­huguð verslun muni nýta núver­andi stæði á lóð­inni.

Lambhagavegur verði eftirsóttur áfangastaður

Í erind­inu segir frá því fast­eigna­fé­lagið vinni nú að því að koma upp hleðslu­stæðum fyrir raf­bíla, sér­stökum stæðum fyrir deili­hag­kerfis-raf­skútur, hágæða hjóla­stæðum og grænum svæðum á lóð­inni, til að auð­velda aðgengi íbúa að svæð­inu og fjölga val­kostum í ferðum til og frá svæð­inu.

„Tillögur að fyr­ir­hug­aðri mat­vöru­verslun og öðrum sér­versl­unum með góðu og þægi­legu aðgengi hjólandi og gang­andi íbúa hverf­is­ins mun gera Lamb­haga­veg 2-4 að eft­ir­sóttum áfanga­stað í teng­ingu við fram­tíðar þjón­ustu­kjarna og/eða borg­ar­línu­stöð á Keldna­holti,“ segir í erindi fast­eigna­fé­lags­ins, þar sem óskað er eftir fundi með full­trúum borg­ar­innar til að gera frek­ari grein fyrir til­lög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár