30 þúsund fermetra uppbygging í stað bensínstöðva

Samkvæmt sam­komu­lagi Festis við Reykja­vík­ur­borg á Festi bygg­ing­ar­rétt á lóðum þar sem til stendur að loka bens­ín­stöðvum N1. Félagið hyggst selja bygg­ing­ar­rétt­inn í stað þess að byggja. „Það er ekki okkar biss­ness, það eru aðrir í því,“ segir for­stjór­inn.

Eggert Þór Kristófersson forstjóri Festis segir félagið ekki ætla að reyna fyrir sér í byggingargeiranum.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri Festis segir félagið ekki ætla að reyna fyrir sér í bygg­ing­ar­geir­anum. Mynd: Samsett

Til stendur að ráð­ast í upp­bygg­ingu á íbúð­ar­hús­næði á nokkrum reitum þar sem Festi rekur í dag bens­ín­stöðvar undir merkjum N1 og dag­vöru­versl­anir undir merkjum Krón­unnar. Bygg­ing­ar­magnið á reit­unum gæti sam­tals orðið á milli 25 og 30 þús­und fer­metrar. Farið er yfir þessi áform í fjár­festa­kynn­ingu frá Festi sem dreift var í kjöl­far birt­ingar upp­gjörs félags­ins fyrir annan árs­fjórð­ung þessa árs. For­stjóri félags­ins segir að Festi ætli ekki að fara að hasla sér völl í bygg­ing­ar­geir­anum, heldur muni félagið selja bygg­ing­ar­rétt.

„Við ætlum ekki að byggja þarna,“ segir Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festis, í sam­tali við Kjarnann. „Við munum bara búa til deiliskipu­lag og selja bygg­ing­ar­að­ilum, við erum ekki að fara í bygg­ing­ar­brans­ann.“

Festi heldur á bygg­ing­ar­rétti á reit­unum sem um ræðir í kjöl­far sam­komu­lags sem félagið gerði við Reykja­vík­ur­borg sem fjall­aði um fækkun bens­ín­stöðva. Í fjár­festa­kynn­ing­unni er farið yfir helstu atriði sam­komu­lags­ins. Reykja­vík­ur­borg fellur frá því að rukka inn­viða­gjöld og bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld á þeim lóðum sem byggt verður upp á en gatna­gerð­ar­gjöld þarf að borga fyrir þá fer­metra umfram þá sem eru nú þegar byggðir. Þá gerir Reykja­vík­ur­borg kröfu um að 20 pró­sent af íbúð­unum verði leigu­í­búðir og þar af verði fimm pró­sent að félags­legum íbúðum.

N1 rekur í dag 11 bens­ín­stöðvar með 43 dælum með 82 bensín- og olíu byssum. Sam­komu­lagið felur í sér að N1 fækki byssum um 29 til 37 pró­sent. Upp­bygg­ing á reitum félags­ins er hluti af áformum um að fækka bens­ín­stöðvum. „Það er bara hluti af orku­skipt­unum að fækka stöðvum og styðja við sam­fé­lagið í því en við ætlum ekki að fara að byggja og selja íbúð­ar­hús­næði, það er ekki okkar biss­ness, það eru aðrir í því,“ segir Eggert Þór.

Setja upp bensíndælur við Krónuna á Granda

Í fjár­festa­kynn­ing­unni kemur fram að rekstri bens­ín­stöðvar N1 á Ægisíðu verði hætt eigi síðar en 1. jan­úar 2023, þó ekki síðar en tólf mán­uðum eftir að deiliskipu­lag fyrir lóð­ina sem og Fiski­slóð 15 til 21, hvar Festi rekur eina af versl­unum Krón­unnar. Áætlað bygg­ing­ar­magn á reitnum við Ægisíðu er á bil­inu 13 til 15 þús­und fer­metrar.

[adspot]

Lokun stöðv­ar­innar er að hluta til háð því að deiliskipu­lag við Fiski­slóð 13-15 verði sam­þykkt en Reykja­vík­ur­borg hefur heim­ilað félag­inu að setja þar upp sjálfs­af­greiðslu­stöð með tveimur elds­neyt­is­dælum sem munu geta þjón­u­stað fjóra bíla á sam­tímis. Félagið mun taka þær dælur í notkun eftir að rekstri á Ægisíðu verður hætt.

Gert er ráð fyrir að við Rofabæ 39, þar sem nú er ein af versl­unum Krón­unnar muni rísa rúm­lega fjögur þús­und fer­metrar af tveggja til fjög­urra hæða íbúð­ar­hús­næði og við Stóra­gerði er gert ráð fyrir tæp­lega þrjú þús­und fer­metrum af íbúð­ar­hús­næði á þremur til fjórum hæðum. Í dag er þjón­ustu­stöð N1 rekin við Stóra­gerði.

Þá er einnig gert ráð fyrir upp­bygg­ingu við Elliða­braut í Norð­linga­holti þar sem N1 er í dag með sjálfs­af­greiðslu­stöð. Þar er gert ráð fyrir að Krónan opni verslun auk þess sem N1 mun halda úti tveimur dælum fyrir fjóra bíla. Bygg­ing­ar­magn á reitnum við Elliða­braut er talið verða á bil­inu fjögur til fimm þús­und fer­metrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár