Segist hafa reynt að komast að því hvað konan vildi í gegnum tengilið – „Við náðum aldrei að ræða við hana“

Fyrr­ver­andi for­maður KSÍ segir að sam­bandið hafi frétt af meintu kyn­ferð­is­broti lands­liðs­manna í gegnum sam­fé­lags­miðla. Formleg ábend­ing hafi aldrei borist.

Guðni Bergsson fyrr­ver­andi for­maður KSÍ neitar því í sam­tali við Kjarnann að sam­bandið hafi fengið form­lega ábend­ingu um meint kyn­ferð­is­brot lands­liðs­manna. KSÍ hafi borist nafn­laust bréf þar sem meðal ann­ars var spurt hvort þau vildu „virki­lega að fyr­ir­myndir allra barna sem hafa áhuga á fót­bolta“ væru kyn­ferð­is­af­brota- og ofbeld­is­menn.

Í bréf­inu sem Kjarninn hefur undir höndum er ekki til­greint sér­stakt atvik eða nöfn þolenda eða ger­anda.

Kjarninn greindi frá því í morgun að KSÍ hefði fengið ábend­ingu í byrjun júní síð­ast­lið­ins um meint atvik eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn voru ásak­aðir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn ungrar konu. Hún hafði sjálf birt færslu um málið á sam­fé­lags­miðlum í maí án þess þó að nafn­greina lands­liðs­menn­ina.

Ómar Smárason, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar KSÍ, áréttar í sam­tali við Kjarnann í dag að KSÍ hafi borist ábend­ing um málið. Hann seg­ist ekki hafa vit­neskju um það hvort umrætt bréf hafi verið ábend­ingin en hann stað­festir í tvígang að ábend­ing hafi borist KSÍ í byrjun júní. „Það er alveg klárt mál.“

Sérstök nefnd mun fara yfir málið

[links]KSÍ sendi frá sér til­kynn­ingu í vik­unni og greindi frá því að stjórn sam­bands­ins hefði óskað eftir því við Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands (ÍSÍ) að sett yrði á stofn nefnd til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð sam­bands­ins vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands.

Samkvæmt ÍSÍ á nefndin að fara yfir þá atburða­rás sem leiddi til afsagnar for­manns og fyr­ir­hug­aðrar afsagnar stjórnar KSÍ í sept­em­ber ásamt því að bregð­ast við ásök­unum sem fram hafa komið.

Ómar segir að þau hjá KSÍ muni láta nefnd­ina fá allar þær upp­lýs­ingar sem til eru hjá sam­band­inu um málið.

Segir bréfið vera ábendinguna

Guðni Bergsson segir í sam­tali við Kjarnann að þessi ábend­ing sem Ómar talar um sé þetta til­tekna bréf. „Þetta er eina bréfið sem við fengum en við vorum með­vituð um frá­sögn á sam­fé­lags­miðlum. Það hefur komið fram. En við fengum enga form­lega ábend­ingu eða til­kynn­ingu um málið í raun og veru fyrr en 27. ágúst.“

Þannig að þú hafnar að það hafi komið inn ábend­ing í byrjun júní um málið?

„Við vissum um til­vist þessa máls í gegnum sam­fé­lags­miðla. Við vissum það. Það kom upp á yfir­borðið í júní­mán­uði en ég hefði ekki vit­neskju um það hvort þetta til­tekna nafn­lausa bréf beind­ist að þessu máli enda kemur það ekk­ert fram í bréf­inu.

Þarna erum við byrjuð að hengja okkur í eitt­hvað sem skiptir í raun og veru ekki máli. Þessi ábend­ing er bara nafn­laust bréf enda hefur komið fram hjá mér og okkur að við vorum með­vituð um frá­sögn á sam­fé­lags­miðlum.“

Segist ekki hafa náð að ræða við konuna

Hvernig brugð­ust þið við þess­ari vit­neskju um þessa frá­sögn á sam­fé­lags­miðlum?

„Við reyndum auð­vitað að átta okkur á því miðað við hvernig sú frá­sögn var án nafn­grein­ingar hvað væri í raun og veru hægt að gera í mál­inu. Við reyndum í sjálfu sér að fá það fram í gegnum tengilið hvað hún vildi við­haf­ast í mál­inu þar sem hún væri með for­ræði á því.“

Tókst ekki að ná þessu sam­bandi?

„Við náðum alla­vega aldrei að ræða við hana. Þol­and­inn ræddi aldrei beint við okkur, nei.“

Guðni segir að þessi til­tekna ábend­ing snúi ekki að kjarna máls­ins. „Það var vit­neskja um þetta mál og ég hef sagt frá því að þá vit­neskju fékk ég í raun og veru út frá færslu á sam­fé­lags­miðlum – þannig kom vit­neskjan til.“

Snýst þetta þá um ágrein­ing um hvað orðið „ábend­ing“ þýðir?

„Þetta mál kemur inn til okkar og við byrjum að eiga við það, bæði ég og fram­kvæmda­stjóri eða reyna að átta okkur á því í júní­mán­uði í sumar. Bréfið segir ekki neitt sem við fengum en það var auð­vitað þessi frá­sögn sem maður veit núna að svo margir vissu um á þessum til­tekna sam­fé­lags­miðli sem ég er reyndar ekki á en síðan frétti af.

Þannig kemur það til minnar vit­undar, þannig að þetta bréf hafi ekki gildi í þessu máli eins og það er orðað.“

Guðni seg­ist fagna því að nefnd ÍSÍ taki til starfa og skoði málið. „Það var líka það sem ég lagði til að byrja með að þetta færi til utan­að­kom­andi aðila og að þessi mál yrðu skoðuð. Ég bara fagna því.“

Heyrði af málinu í gegnum samfélagsmiðla – ekki vegna formlegrar ábendingar

Hvað segir þú þá um þá full­yrð­ingu KSÍ að sam­band­inu hefði borist ábend­ing um málið í júní?

„Þetta veltur allt á því að það fyrsta sem ég heyrði af mál­inu var af vett­vangi sam­fé­lags­miðla. Ég heyrði af því að frá­sögnin væri á sam­fé­lags­miðlum.“

Í byrjun júní?

„Já, í júní­mán­uði, eða ein­hvern tím­ann í kringum það. Svo berst þetta bréf sem nátt­úru­lega segir ekki neitt. Þessi færsla á sam­fé­lags­miðlum verður síðan á margra vit­orði þannig að það var auð­vitað eng­inn vilji til og stóð aldrei til að þagga eitt­hvað niður sem var á allra vit­orði þrátt fyrir að það væri ekki nafn­grein­ing.“

Hvað hefði verið eðli­legt að gera með þessa vit­neskju?

„Ég held að við þurfum bara að láta málið hafa sinn gang í gegnum þessa nefnd og fara yfir það. Það er auð­vitað alltaf hægt að líta í bak­sýn­is­speg­il­inn og velta því fyrir sér hvort eitt og annað hefði getað farið betur en málið var bara eins og það var vaxið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár