Rúm 40 prósent vilja að Katrín verði áfram forsætisráðherra

Í nið­ur­stöðum könn­unar á vegum ÍSKOS kemur í ljós að lang­flestir vilja að Katrín Jak­obs­dóttir verði áfram for­sæt­is­ráð­herra. Athygli vekur að Bjarni Bene­dikts­son nýtur minni stuðn­ings í emb­ættið en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur í könn­unum.

Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir.
Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Rúm 40 pró­sent svar­enda í kosn­inga­bar­áttukönnun Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar (ÍSKOS) vilja sjá Katrínu Jak­obs­dóttur for­mann Vinstri grænna áfram á stóli for­sæt­is­ráð­herra eftir kosn­ingar.

Þetta kemur fram á vef sem Félag­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands hefur sett upp með nið­ur­stöðum úr könn­un­inni, en alls hafa 2.171 ein­stak­lingar svarað könn­un­inni und­an­farna 23 daga.

Næst­flestir vilja sjá Bjarna Bene­dikts­son for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, eða 16 pró­sent þeirra sem hafa tekið afstöðu til þess­arar spurn­ingar. Athygli vekur að það eru umtals­vert færri en telja að þeir komi til með að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn í kom­andi kosn­ingum.

Í þriðja sæti í könn­un­inni er svo Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sóknar, en 9,5 pró­sent vilja sjá hann taka við lyklunum að Stjórn­ar­ráð­inu. Þar á eftir koma þau Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata með 8,6 pró­sent og Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar með 8,2 pró­sent.

Á eftir þeim koma svo Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins með 6,6 pró­sent og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sem 5,8 pró­sent svar­enda vilja sjá taka við af Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra.

[adspot]

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins og Gunnar Smára Egilsson for­sprakki Sós­í­alista­flokks­ins njóta svo, hvort um sig, rúm­lega 2 pró­senta stuðn­ings til þess að taka við sem for­sæt­is­ráð­herra.

Lestina rekur svo Guð­mundur Franklín Jónsson for­maður Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins, en 0,2 pró­sent segj­ast vilja sjá hann leiða næstu rík­is­stjórn.

Könnun sem uppfærist á hverjum degi

Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands birti í gær nýja síðu með nið­ur­stöðum úr kosn­inga­bar­áttukönnun á vegum Íslensku kosn­inga­rann­sókn­innar um kosn­inga­ætlan almenn­ings og fleira. Þessar nýju nið­ur­stöður um for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn duttu inn á síð­una í dag. Nið­ur­stöð­urnar úr þess­ari könnun hvað varðar kosn­inga­ætlan í kom­andi kosn­ingum eru þegar byrj­aðar að vigta inn í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar.[links]

Þessi könnun er ólík öðrum sem eru í gangi núna fyrir kosn­ingar að því leyti að hún upp­fær­ist dag­lega, en á hverjum ein­asta degi er könn­unin send á 184 ein­stak­linga sem svara því hvað þeir myndu kjósa ef gengið væri til kosn­inga í dag. Hægt er að leika sér með töl­urnar og skipta nið­ur­stöðum upp eftir því hvort karlar eða konur svara eða eftir ald­urs­hópum.

Fylgi flokka og sömu­leiðis svörin við öðrum spurn­ingum sem birt­ast eru upp­færð á hverjum degi og þannig er hægt að merkja hvernig þró­unin er, sam­kvæmt mæl­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár