„Flokkarnir voru að þvælast fyrir hvorum öðrum“ og niðurstaðan varð núll

Smára McCarthy frá­far­andi þing­manni Pírata finnst sem und­an­farin fjögur ár hafi lit­ast af því að lítið ráð­rúm hafi verið til þess að ræða póli­tík, þar sem stjórn­ar­flokk­arnir eru ósam­mála um mörg grund­vall­ar­mál­efni.

Smári McCarthy er að hætta á þingi og ætlar í kjölfarið að láta reyna á sitt eigið hugvit í tengslum við loftslagsbreytingar.
Smári McCarthy er að hætta á þingi og ætlar í kjöl­farið að láta reyna á sitt eigið hug­vit í tengslum við lofts­lags­breyt­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Smári McCarthy frá­far­andi þing­maður Pírata segir liðið kjör­tíma­bil hafa ein­kennst af því breiða stjórn­ar­mynstri frá vinstri til hægri sem er ráð­andi. Fá tæki­færi hafi verið til þess að ræða um alvöru póli­tík. „Þetta hefur verið pínu frústrer­andi tíma­bil, því þessi rík­is­stjórn sem núna hefur verið við völd í fjögur ár, reyndi svo mikið að mála sig upp sem lausn allra vanda­mála,“ segir Smári í sam­tali við Kjarnann.

Núna á fyrstu metrum kosn­inga­bar­átt­unnar segir Smári, sem ákvað rétt eins og tveir aðrir þing­menn Pírata að gefa ekki kost á sér til end­ur­kjörs, að ótrú­lega lítið hafi í raun gerst á kjör­tíma­bil­inu. Talað hafi verið um Hálend­is­þjóð­garð og miklar umbætur á heil­brigð­is­kerf­inu, mennta­kerf­inu og vel­ferð­ar­kerf­inu almennt í upp­hafi kjör­tíma­bils.

„COVID er búið að flækja málin hell­ing og það er alveg hægt að gefa fólki séns fyrir það, en ef það hefði verið lagt af stað í meiri og stærri og alvar­legri aðgerðir í upp­hafi værum við kannski í betri stöðu núna,“ segir Smári.

Hann telur sam­setn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar rót vand­ans. „Flokk­arnir voru að þvæl­ast fyrir hvorum öðrum, hægri­mennskan of mikið til hægri fyrir VG og vinstri­mennskan of mikið til vinstri fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og nettó nið­ur­staðan varð bara núll.“

„Það er ekki þar með sagt að ekk­ert hafi gerst, en ótrú­lega lítið. Það segir manni að þetta til­tekna stjórn­ar­form hafi kannski verið jafn­glatað og margir sögðu að það myndi verða,“ segir Smári. Hann segir að á kjör­tíma­bil­inu hafi lítið talað um póli­tík en þeim mun meira vísað til þess að mál væru í „ferli,“ „vinnslu“ og heilt yfir ætti bara að treysta rík­is­stjórn­inni fyrir hlut­unum.

[links]

Lítið ráð­rúm hafi á sama tíma verið til umræðna um af hverju verið væri að gera hlut­ina á til­tekna vegu. „Rík­is­fjár­málin eru ennþá í raun­inni bara í örmum Thatcherisma þrátt fyrir að það konsept sé úrelt alls staðar ann­ars staðar. Það má aldrei tala um þessa hluti af neinni alvöru,“ segir Smári.

Hann kveðst ánægður með fram­lag sam­flokks­manna sinna á þingi und­an­farin fjögur ár. „Ef maður lítur bara á pjúra töl­fræði náðum við að koma ótrú­lega mörgu í gegn miðað við flesta aðra þing­flokka. Ég er mjög stoltur af okkar árangri, við gerðum margt, ekki bara í að koma okkar eigin málum í gegn heldur líka við að móta mál rík­is­stjórn­ar­innar og hafa góð og jákvæð áhrif. Hins vegar er þó ekki hægt að segja að þau hafi verið neitt rosa­lega sam­vinnu­þýð og oft var maður að ham­ast og ham­ast til þess að reyna að koma í gegn ótrú­lega aug­ljósum og auð­veldum og jákvæðum breyt­ingum sem var eng­inn hljóm­grunnur fyrir vegna þess að þau höfðu ekki verið sam­þykkt inni í ráðu­neyti. Það var yfir­leitt við­kvæðið,“ segir Smári, sem er hugsi yfir því við­móti.

„Á ýmsum augna­blikum kom fram góð hug­mynd frá okkur eða jafn­vel öðrum, jafn­vel stjórn­ar­þing­manni, og þá þurfti að bera það undir sér­fræð­ing­ana í ráðu­neyt­inu til að það mætti fram­kvæma það. Eins og Alþingi hafi ekki sjálf­stætt vald til að setja lög,“ segir þing­mað­ur­inn.

Vonast til þess að langtímahugsun móti kosningabaráttuna í stað galinna loforða

Komandi kosn­inga­bar­átta leggst vel í Smára. „Við erum að skipta út þremur af okkar þing­flokki og það er ekki sjálf­gefið að það sé auð­velt, en við erum allir að fara frá vilj­andi og lítum svo á að okkar tími sé búinn, við viljum fara að gera aðra hluti og hleypa öðru fólki að. Það fólk sem er að koma inn fyrir okkur og fylla efstu sætin á okkar listum er allt hávandað fólk sem hefur eitt­hvað til brunns að bera. Ég held að Píratar muni standa sig hel­víti vel núna á næst­unni og kosn­inga­bar­áttan er aðeins byrjuð að lit­ast af því að við erum með gott fólk í brúnni,“ segir Smári.

Hann kveðst þó ekki alveg átta sig á því hvað nákvæm­lega kosn­ing­arnar muni snú­ast um. „Það er ákveðin hefð fyrir því að ein­hverjir flokkar komi fram með ein­hvers­konar sprengjur og lofi ein­hverju sem er annað hvort algjör­lega galið eða algjör­lega óraun­hæft að standa við og það yfir­leitt er til­fellið svo þegar upp er staðið, en það hefur ekk­ert stórt svona móment komið ennþá.“

Smári von­ast raunar til þess að sleppa alfarið við slík móment. „Ég per­sónu­lega er að vona að þessi kosn­inga­bar­átta fari að snú­ast um ein­hver lyk­il­at­riði í því hvernig við ætlum að reka þetta sam­fé­lag í stað­inn fyrir að flokkar lofi fast­eigna­lánum með svona miklum afslætti eða lofi upp í erm­ina á sér um hvað skuli gera fyrir heil­brigð­is­kerfið á næstu tveimur árum.

Hvað um að við horfum aðeins lengra, 30-40 ár inn í fram­tíð­ina og segjum hvernig sam­fé­lag við viljum vera þá og hvað við þurfum að gera á næstu fjórum árum til að það sé raun­hæft, til þess að leggja grunn­inn að því,“ segir Smári.

Hvað um að við horfum aðeins lengra, 30-40 ár inn í fram­tíð­ina og segjum hvernig sam­fé­lag við viljum vera þá og hvað við þurfum að gera á næstu fjórum árum til að það sé raun­hæft, til þess að leggja grunn­inn að því,“ segir Smári.

Píratar „stöðugur fasti í íslenskri pólitík“

Nýleg könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið mældi Pírata með 13,3 pró­sent fylgi og mælist flokk­ur­inn þar, rétt eins og víða ann­ars­staðar, sem næst stærsta stjórn­mála­afl lands­ins. Smári segir Pírata á svip­uðum stað og síð­ustu tvö til þrjú ár, en að þeir stefni að því að spýta í lóf­ana og stækka.

„Við erum að gera eitt­hvað sem er að virka og við erum orðin nokkuð stöð­ugur fasti í íslenskri póli­tík, alla­vega í bili. Nú er bara að nýta stöð­una eins og við getum og vona að það mæti nógu mikið af kjós­endum okkar á kjör­stað. Það er það erf­iða hjá okkur, við mæl­umst alltaf betur í könn­unum en það sem kemur upp úr kjör­köss­unum,“ segir Smári.

Ætlar að láta reyna á eigið hugvit

Spurður út í það hvað taki nú við, hjá ungum manni sem setið hefur á þingi í hálfan ára­tug, seg­ist Smári vera með nokkrar hug­myndir. Hann segir það hafa farið í taug­arnar á sér und­an­farin ár að miðað við mikla umræðu um lofts­lags­breyt­ingar og við­brögð við þeim sé lítið um að fólk reyni að gera eitt­hvað upp­byggi­legt hvað lofts­lags­mál varðar.

Smári seg­ist vera með „ákveðna hug­mynd“ að verk­efni sem hann ætli sér að hleypa af stokk­unum og muni geta tjáð sig meira um síðar. „Ég er ekki bara að fara í ein­hverja fancy stöðu ein­hvers­staðar heldur er ég að fara að reyna á mitt eigið hug­vit,“ segir Píratinn að lokum.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár