Sex fjölbýlishús við Hilton Nordica-hótelið?

Fast­eigna­fé­lagið Reitir er með hug­myndir um að byggja allt að 120 íbúðir í sex fjöl­býl­is­húsum á því sem í dag er að mestu bíla­stæði fyrir aftan Hilton Nordica-hót­elið við Suð­ur­lands­braut.

Hugmyndir eru uppi um að byggja sex fjölbýlishús á svæðinu fyrir aftan Hilton Nordica-hótelið við Suðurlandsbraut.
Hug­myndir eru uppi um að byggja sex fjöl­býl­is­hús á svæð­inu fyrir aftan Hilton Nordica-hót­elið við Suð­ur­lands­braut. Mynd: Skjáskot úr glærukynningu Friðjóns

Fast­eigna­fé­lagið Reitir er með hug­mynd um að skipu­leggja sex fjöl­býl­is­hús á reitum félags­ins á bak við Hilton Nordica-hót­elið við Suð­ur­lands­braut.

Þetta kom fram í kynn­ingu Friðjóns Sig­urð­ar­sonar, fram­kvæmda­stjóra þró­un­ar­sviðs hjá Reitum, á kynn­ing­ar­fundi um sam­göngu- og skipu­lags­mál, sem Reykja­vík­ur­borg stóð fyrir í síð­ustu viku.

Friðjón, sem hefur yfir­um­sjón með skipu­lags­verk­efnum og nýrri upp­bygg­ingu hjá Reitum, fór þar yfir þró­un­ar­verk­efni sem Reitir eru að vinna að með­fram svoköll­uðum sam­göngu- og þró­unar­ásum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á meðal verk­efna sem Reitir koma að og Friðjón fór yfir á fund­inum eru til dæmis vænt umbreyt­ing Skeif­unnar og fyr­ir­huguð upp­bygg­ing á svoköll­uðum Orkureit.

Fram kom í máli Friðjóns að Reitir hefðu nýlega keypt hús­næðið að Hall­ar­múla 2, þar sem Tölvutek var til húsa árum saman og að nú væri til skoð­unar hvernig mætti hugsa allan reit­inn fyrir aftan Nordica-hót­elið í heild sinni í nálægð við þennan sam­gönguás í borg­inni, en sem kunn­ugt er mun Borg­ar­lína fara um Suð­ur­lands­braut­ina innan fárra ára.

[adspot]

„Við erum að skoða hvort það færi betur á því að vera með íbúð­ar­upp­bygg­ingu þarna baka til á lóð­inni í stað hót­el­upp­bygg­ingar, eins og áform voru um áður,“ sagði Friðjón.

Hann sýndi síðan myndir sem hafa verið unnar í sam­starfi við arki­tekta­stof­una T.ark af mögu­legu útliti hús­anna og nýrri vist­götu á milli Hall­ar­múla og Lágmúla, sem þau myndu standa við.

Samkvæmt því sem sagt er í glæru­kynn­ingu Friðjóns er horft til þess að það væri hægt að koma fyrir allt að 120 íbúðum og 1.300 fer­metrum af atvinnu­hús­næði á þessu svæði.

Hér að neðan má sjá erindi Friðjóns af fund­inum í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár