Njáll verður oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Njáll Trausti Frið­berts­son verður odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Í öðru sæti í próf­kjöri flokks­ins varð Berglind Ósk Guð­munds­dóttir lög­fræð­ingur á Akureyri.

Njáll Trausti Friðbertsson, hér ásamt Bryndís Haraldsdóttur samflokkskonu sinni, leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í haust.
Njáll Trausti Frið­berts­son, hér ásamt Bryndís Har­alds­dóttur sam­flokks­konu sinni, leiðir lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í haust. Mynd: Bára Huld Beck

Njáll Trausti Frið­berts­son varð hlut­skarpastur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem lauk í dag. Hann verður því odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu í kom­andi kosn­ingum og tekur við því kefli af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sem ætlar að segja skilið við stjórn­málin að kjör­tíma­bil­inu loknu.

Í öðru sæti í próf­kjöri flokks­ins varð Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, lög­fræð­ingur og vara­bæj­ar­full­trúi á Akureyri.

Í þriðja sæti varð Gauti Jóhann­es­son, for­seti bæj­ar­stjórnar í Múla­þingi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Djúpa­vogi, sam­kvæmt því sem segir á vef Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Gauti hafði sóst eftir því að leiða list­ann í kjör­dæm­inu, rétt eins og Njáll Trausti. Í frétt á vef Akureyri.net segir að Gauti hafi ekki enn ákveðið hvort hann muni þiggja 3. sætið á lista flokks­ins, úrslit próf­kjörs­ins hafi verið honum von­brigði.

Greidd atkvæði í próf­kjör­inu voru 1.570 tals­ins og þar af voru 1499 atkvæði gild. 71 atkvæði voru auð eða ógild.

Úrslitin í prófkjörinu voru sem hér segir:

  1. Njáll Trausti Frið­berts­son með 816 atkvæði í 1. sæti
  2. Berglind Ósk Guð­munds­dóttir með 708 atkvæði í 1. - 2. sæti
  3. Gauti Jóhann­es­son með 780 atkvæði í 1. - 3. sæti
  4. Berglind Harpa Svav­ars­dóttir með 919 atkvæði í 1. - 4. sæti
  5. Ragnar Sig­urðs­son með 854 atkvæði í 1. - 5. sæti

[adspot]


Njáll Trausti þakk­aði stuðn­ings­mönnum sínum traustið í færslu á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár