Þingmennirnir Hanna Katrín Friðriksson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir munu leiða lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur í kosningunum í haust. Hanna Katrín, sem er þingflokksformaður Viðreisnar, mun áfram leiða í Reykjavíkurkjördæmi suður líkt og hún gerði 2017 en Þorbjörg Sigríður, sem tók sæti Þorsteins Víglundssonar á þingi þegar hann ákvað að hverfa til annarra starfa, tekur við af honum sem oddviti í Reykjavíkurkjördæmi norður. Þorsteinn situr í neðsta sæti listans í ár, sem er svokallað heiðurssæti.
[links]Það þýðir að Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði sem kjörinn var varaformaður Viðreisnar í fyrra, mun ekki leiða lista flokksins í komandi kosningum. Hann verður í öðru sæti á lista flokksins í Reykjavík suður. Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, er í 2. sæti á lista flokksins í Reykjavík norður og færir sig því um kjördæmi. Hann var í öðru sæti, á eftir flokksformanninum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, í Kraganum í kosningunum 2017.
Uppstillingarnefnd Viðreisnar bauð Benedikt Jóhannessyni, fyrrverandi formanni flokksins sem sóttist eftir að leiða fyrir Viðreisn á höfuðborgarsvæðinu, neðsta sæti á lista á höfuðborgarsvæðinu en hann afþakkaði það boð.
]María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, er í 3. sæti listans í Reykjavíkurkjördæmi suður og Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lögfræðingur, er í því fjórða.
Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, sálfræðinemi og frístundaleiðbeinandi, skipar 3. sæti listans í Reykjavíkurkjördæmi norður og Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, er í 4. sæti.
[adspot]Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan. Formaður uppstillinganefndar var Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sem hefur starfað innan Viðreisnar frá stofnun og gengt þar ýmsum trúnaðarstörfum.
Listi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður:
- Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar
- Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði og varaformaður Viðreisnar
- María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar
- Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lögfræðingur
- Heiða Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands
- Gunnar Björnsson, formaður Skáksambands Íslands
- Tinna Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri
- Sverrir Kaaber, skrifstofustjóri og formaður öldungaráðs Viðreisnar
- Eyrún Þórðardóttir, verkefnastjóri
- Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður
- Rhea Juarez, í fæðingarorlofi
- Stefán Andri Gunnarsson, kennari
- Kristín Hulda Gísladóttir, sálfræðingur á móttökugeðdeild
- Aron Eydal Sigurðarson, þjónustufulltrúi
- Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Reynir Hans Reynisson, sérnámslæknir
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, rannsakandi hjá skattrannsóknarstjóra Skattsins
- Samúel Torfi Pétursson, verkfræðingur
- Margrét Ósk Gunnarsdóttir, laganemi
20. Geir Finnsson, varaborgarfulltrúi Viðreisnar og varaforseti LUF
21. Ásdís Rafnar, hæstaréttarlögmaður
22. Pawel Bartoszek, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur
Listi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður:
- Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður
- Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður
- Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, sálfræðinemi og frístundaleiðbeinandi
- Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna
- Marta Jónsdóttir, lögfræðingur
- Geir Sigurður Jónsson, forritari og frumkvöðull
- Þórunn Sif Böðvarsdóttir, kennari
- Borgþór Kjærnested, framkvæmdastjóri
- Dóra Sif Tynes, lögmaður
- Einar Karl Friðriksson, efnafræðingur
- Aðalbjörg Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Einar Torfi Einarsson Reynis, verkfræðingur
- Emilía Björt Írisardóttir, stjórnmálafræðinemi
- Kristján Ingi Svanbergsson, meistaranemi í fjármálum
- Þuríður Elín Sigurðardóttir, leikkona
- Halldór Pétursson, byggingarverkfræðingur
- Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Sveinbjörn Finnsson, sérfræðingur í orkumálum
- Sigrún Helga Lund, stærðfræðingur
20. Hákon Guðmundsson, markaðsfræðingur
21. Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, kennari og tónlistarkona
22. Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir