Benedikt afþakkar neðsta sæti á lista Viðreisnar

Fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar hefur tekið þá ákvörðun að bjóða ekki fram krafta sína fyrir Viðreisn fyrir kom­andi kosn­ingar eftir að hafa verið boðið neðsta sæti á lista flokks­ins.

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhann­es­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Upp­still­ing­ar­nefnd Við­reisnar bauð Benedikt Jóhann­essyni, fyrr­ver­andi for­manni flokks­ins, neðsta sæti á lista á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur hann afþakkað það. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í dag.

Benedikt sótt­ist eftir því síð­ast­liðið haust að leiða lista í ein­hverju kjör­dæm­inu á Suð­vest­ur­horn­inu í kom­andi þing­kosn­ingum. Í færslu sinni á Facebook segir hann að fljót­lega hafi orðið ljóst að fleiri vildu sitja í efstu sætum en sætin voru.

„Ég taldi að í flokki sem legði áherslu á opið og gagn­sætt ferli væri eðli­leg­ast að efna til próf­kjörs, þegar margir sækt­ust eftir að leiða lista. Ég lagði það til. Reykja­vík­ur­ráð flokks­ins valdi annan kost og upp­still­ing­ar­nefnd valin. Hún hefur verið að störfum frá því í byrjun febr­úar,“ skrifar hann.

Einróma niðurstaða nefndarinnar að bjóða Benedikt neðsta sæti listans

Greinir Benedikt frá því að Þor­steinn Pálsson, for­maður upp­still­ing­ar­nefndar, hafi beðið hann að hitta sig síð­ast­lið­inn þriðju­dag.

„Á fundi okkar sagði hann mér, að það væri ein­róma nið­ur­staða nefnd­ar­innar að bjóða mér neðsta sæti list­ans. Af aug­ljósum ástæðum afþakk­aði ég það.

Þar með er útséð um að ég verði í fram­boði fyrir Viðreisn að þessu sinni, en ég held áfram í póli­tík og styð nú sem fyrr grunn­stefnu Við­reisnar, enda hygg ég að ég hafi skrifað megnið af henni. Sjaldan hefur verið brýnni þörf fyrir ein­beitta, frjáls­lynda rödd í sam­fé­lag­inu og ég mun ekki láta mitt eftir liggja,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár