Benedikt vill leiða fyrir Viðreisn á Suðvesturhorninu á næsta ári

Fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar ætlar sér að verða odd­viti flokks­ins í einu þriggja kjör­dæma höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í þing­kosn­ingum eftir ár. Hann ætlar hins vegar ekki að bjóða sig fram til for­manns eða vara­for­manns á kom­andi lands­þingi.

Benedikt Jóhannesson var fjármála- og efnahagsráðherra um nokkurra mánaða skeið á árinu 2017.
Benedikt Jóhann­es­son var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nokk­urra mán­aða skeið á árinu 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar, ætlar að sækj­ast eftir að leiða lista flokks­ins í ein­hverju kjör­dæm­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í kom­andi þing­kosn­ingum, sem fara fram eftir rúm­lega ár. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem hann hefur birt á Facebook-síðu sinni.

Þar segir hann nokkrir flokks­menn hafi spurt sig að því hvort hann ætli sér að bjóða sig fram til for­manns eða vara­for­manns á kom­andi Lands­þingi Við­reisnar, sem hefst 25. sept­em­ber. „Mér þykir auð­vitað vænt um spurn­ing­una, en í stað þess að leggj­ast undir feld­inn fræga hef ég svarað því að ég hygg­ist áfram gefa kost á mér til stjórnar flokks­ins.“

Var fyrsti formaður Viðreisnar

Í apríl 2014 fór hópur Sjálf­stæð­is­manna að hitt­ast til að vinna að mótun nýs fram­boðs. Benedikt var þar á meðal. Fyrsti form­legi stefnu­mót­un­ar­fundur hins nýja stjórn­mála­afls var hald­inn 11. júní 2014. Um svipað leyti var til­kynnt að flokk­ur­inn myndi heita Viðreisn, eftir Við­reisn­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­flokks sem sat við völd á Íslandi frá 1959 og fram til árs­ins 1971.

Tæpu ári síðar, 17. mars 2015, var hald­inn fyrstu fundur stuðn­ings­manna flokks­ins. Flokk­ur­inn var loks form­lega stofn­aður á fundi í Hörpu 24. maí 2016 sem um 400 manns mættu á. Þar var Benedikt kjör­inn fyrsti for­maður hans.

Myndaði skammlífa ríkisstjórn

Benedikt leiddi svo lista Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kosn­ing­unum sem fram fóru haustið 2016, en það voru fyrstu kosn­ing­arnar sem flokk­ur­inn tók þátt. Viðreisn fékk 10,5 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn kjörna, þar á meðal Benedikt. Eftir lang­vinna stjórn­ar­kreppu og mýmargar til­raunir til að mynda stjórn þá varð til rík­is­stjórn undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar með þátt­töku Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Benedikt varð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn.

[adspot]Sú rík­is­stjórn náði að verða óvin­sælasta rík­is­stjórn lýð­veld­is­tím­ans og sat í ein­ungis átta mán­uði. Viðreisn fór ekki vel út úr þeirri stjórn­ar­setu. Þegar allt stefndi í að flokk­ur­inn myndi þurrkast út í aðdrag­anda kosn­inga 2017 hætti Benedikt sem for­maður og Þor­gerður Katrín tók við. Á end­anum náði flokk­ur­inn í 6,7 pró­sent atkvæða og hélt sér á lífi.

Í til­kynn­ing­unni segir Benedikt að þegar hann hafi leitt list­ann í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2016 hafi hann hugsað málin þannig að ef flokk­ur­inn ætti að geta komið að stjórn­ar­myndun yrði hann að ná þing­sætum í dreif­býl­inu og leggja tals­vert undir. „For­mað­ur­inn reyndi fyrir sér í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og vara­for­mað­ur­inn, Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, í Suð­ur­kjör­dæmi. Bæði náðu kjöri.“

Segir popúlista sækja fram

Benedikt segir að nú hafi aðstæður hins vegar ger­breyst. „Árin undir núver­andi rík­is­stjórn eru óhag­stæð okkar meg­in­bar­áttu­málum. Popúlistar sækja fram og ná þing­sætum. Viðreisn hefur verið meg­in­verk­efni mitt allt frá árinu 2014. Það hefur verið gæfa mín að starfa þar með mörgu afbragðs­fólki. Ég vil enn stuðla að því að mál­staður Við­reisnar eflist og flokk­ur­inn verði í aðstöðu til að mynda rík­is­stjórn að ári.

Aðeins þannig er von til þess að sækja í frels­isátt, sem ger­ist ekki nema við náum mjög góðum árangri á Suð­vest­ur­horn­inu. Ég nýt mín best þar sem bar­áttan er hörð­ust og vona að ég njóti trausts til að vera í fremstu víg­línu.“

Margir um oddvitasætin

Í síð­ustu könnun MMR, sem birt var í byrjun síð­ustu viku, mæld­ist Viðreisn með um tíu pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur að jafn­aði mælst vel yfir kjör­fylgi það sem af er yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

[links]Fyrr á þessu ári ákvað þáver­andi vara­for­maður Við­reisnar, Þor­steinn Víglunds­son, að hætta á þingi til að hverfa aftur til starfa hjá BM Vallá og tengdum félögum. Þor­steinn var odd­viti flokks­ins í Reykja­vík norður í síð­ustu kosn­ingum og því er að minnsta kosti eitt odd­vita­sæti laust. Fyrir liggur að Daði Már Krist­ó­fers­son, pró­fessor í hag­fræði, ætlar að sækj­ast eftir því að verða næsta vara­for­maður Við­reisnar á Lands­þingi Við­reisnar sem fer fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Nái hann því mark­miði má ætla að Daði Már muni einnig sækj­ast eftir að fá odd­vita­sæti á lista Við­reisnar. Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, sem tók sæti Þor­steins á þingi þegar hann hætti, þykir einnig lík­leg til að sækj­ast eftir því að vilja leiða lista. Nær öruggt er talið að Hanna Katrín Frið­riks­son, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík suður, muni vilja halda áfram sínu starfi þar í kom­andi kosn­ingum og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi er á fleti Þor­gerður Katrín, for­maður flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár