Samstarf með Sjálfstæðisflokknum ekki „endilega eitthvað sem menn ættu að horfa á til langrar framtíðar“

Stein­grímur J. Sig­fús­son segir að hann hafi per­sónu­lega ekk­ert á móti því ef hér á landi mynd­að­ist það sem kalla mætti sterka minni­hluta­stjórn. „Ég hef lengi verið þeirrar skoð­unar að það gæti verið hollt, sér­stak­lega fyrir þing­ræðið.“

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis og þing­maður VG, segir að rík­is­stjórn­ar­sam­starf VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé ekki endi­lega eitt­hvað sem menn ættu að horfa á til langrar fram­tíðar þegar hann er spurður út í það hver sé draumarík­is­stjórn VG. „Það getur vel verið að það sé nauð­syn­legt að leyfa stjórn­mál­unum svo­lítið að þroskast og takast á með hefð­bundn­ari hætti, að minnsta kosti inn á milli, þannig að sam­stæð­ari flokkar, hug­mynda­fræði­lega séð, myndu vinna saman í annað hvort minni­hluta eða meiri­hluta.“

Þetta segir Stein­grímur í ítar­legu við­tali við Kjarnann sem birt­ist um helg­ina.

Telur hann enn fremur að öllum sé hollt að velta fyrir sér því sem kallað er á skand­in­av­ísku „kon­sensus“-stjórn­mál. Hann seg­ist alltaf hafa verið hallur undir að það væri að mörgu leyti gott fyrir sam­fé­lög að stjórn­málin virk­uðu sem sam­stöðu­stjórn­mál. Það þýði að menn geri mála­miðl­anir.

Nú hefur þú aldeilis tek­ist á við aðra í stjórn­málum.

„Ég hef ekk­ert verið feim­inn við það og það eiga menn líka að gera. Það er hluti af þessu og svo tefla menn fram mynd­ug­lega, og af hörku, sínum áherslum en þeir eiga að sjálf­sögðu að gera það með rökum – og lúta svo lýð­ræð­is­legum nið­ur­stöðum. Það er mjög mik­il­vægt að menn gleymi því aldrei, að það er lýð­ræð­is­meiri­hlut­inn sem á að ráða nið­ur­stöð­unum í hverju máli og ef menn skrifa upp á lýð­ræðið á annað borð þá verða þeir að meina það. Ekki bara þegar hentar þeim. Stundum verða menn að sætta sig við það að lenda í minni­hluta og taka því.“

Hefði ekkert á móti því að hér myndaðist sterk minnihlutastjórn

[links]Stein­grímur veltir því fyrir sér hvernig stjórn­málin muni þró­ast. Hvort hreinni línur muni mynd­ast þannig að hægt verði að mynda sterka rík­is­stjórn meira á annan hvorn væng­inn. Vænt­an­lega verði ein­hver mið­læg öfl með í því. „Síðan hefði ég ekk­ert per­sónu­lega á móti því ef hér mynd­að­ist það sem kalla mætti sterka minni­hluta­stjórn. Það er að segja vel mann­aða og öfl­uga stjórn þó að ekki væru allir flokk­arnir með í rík­is­stjórn­inni sem væru í hennar bak­landi. Ég hef lengi verið þeirrar skoð­unar að það gæti verið hollt, sér­stak­lega fyrir þing­ræðið. Það er almenn kenn­ing að tíma­bil með minni­hluta­stjórnum styrki þjóð­þingið því þá þurfa menn meira að semja um sín mál.“

Telur hann mik­il­vægt að þingið sé sterkt. „Þingið er kjarn­inn í lýð­ræð­is­kerf­inu. Full­trúa­sam­koma.“ Telur Stein­grímur að sam­vinna með minni­hluta­stjórn myndi ýta stjórn­mál­unum í átt til sam­ræðu­stjórn­mála.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár