Hringtorg kveðja og vinstri beygjur víða gerðar ómögulegar

Lagt er til að tvö stór hring­torg verði ljósagatna­mót og vinstri beygjum í kringum borg­ar­línu­leiðir verði fækkað veru­lega, í fyrstu til­lögum að útfærslu alls 79 gatna­móta sem eru í fyrstu lotu Borg­ar­línu.

Til vinstri má sjá núverandi hringtorg á Hringbraut og tillöguna þar fyrir neðan og til hægri má sjá núverandi hringtorg á Suðurlandsbraut og tillögu að gatnamótum þar fyrir ofan.
Til vinstri má sjá núver­andi hring­torg á Hring­braut og til­lög­una þar fyrir neðan og til hægri má sjá núver­andi hring­torg á Suð­ur­lands­braut og til­lögu að gatna­mótum þar fyrir ofan. Mynd: Samsett

Í frum­drögum að fyrstu lotu Borg­ar­línu er gert ráð fyrir því að tvö fjöl­farin hring­torg í gatna­kerfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins heyri brátt sög­unni til og verði leyst af hólmi með ljósagatna­mótum.[links]

Þetta er ann­ars vegar hring­torgið mikla sem markar inn­gang að Vest­ur­bænum á gatna­mótum Hring­brautar og Suð­ur­götu og hins vegar hring­torgið á mótum Suð­ur­lands­brautar og Skeið­ar­vogs.

Öll gatna­mót í fyrstu lotu Borg­ar­lín­unnar verða því ýmist T-gatna­mót eða kross­gatna­mót, en alls er um að ræða 79 gatna­mót á þeirri 14,5 kíló­metra leið sem fyrsta lota Borg­ar­línu nær til. Tillögur að þeim öllum eru teikn­aðar upp í frum­draga­skýrsl­unni sem kynnt var í gær.

Í umfjöllun um gatna­mót í skýrsl­unni kemur fram að sjald­gæft sé að gatna­mót séu útfærð með hring­torgum þar sem almenn­ings­sam­göngur í sér­rými fari um, þrátt fyrir að dæmi séu til um það, til dæmis í Noregi og Frakk­landi.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er lagt til að láta hring­torgin víkja, ekki síst til þess að greiða leið gang­andi og hjólandi veg­far­enda um umrædd gatna­mót, en kross­gatna­mót með ljósum henta þeim mun betur en hring­torg. Gangandi og hjólandi þurfa ekki að leggja lykkju á leið sína til að kom­ast í gegn, óhað því í hvaða átt á að fara.

Í dag er ekki gert ráð fyrir því að gang­andi eða hjólandi fólk fari bein­ustu í gegnum hring­torgið á Suð­ur­lands­braut nema að tak­mörk­uðu leyti. Und­ir­göng ætluð gang­andi eru undir göt­una þar sem Skeifan mætir Mörkinni.

[adspot]

Þeir sem leggja leið sína gang­andi um hring­torgið á mótum Hring­brautar og Suð­ur­götu finna síðan vel fyrir því að þar eru þeir ekki í for­gangi og ekki er hugað að göngu­þver­unum í allar áttir. Þetta mun breyt­ast, sam­kvæmt til­lög­unum sem lagðar hafa verið fram.

Vinstri beygjum sleppt þar sem kostur er

Fleiri gatna­mót breyt­ast en ein­göngu þau sem verða ekki lengur útfærð með hring­torgum. Í skýrsl­unni er lagt til að sleppa vinstri beygjum víða, til að þver­anir almennrar umferðar yfir sér­rými Borg­ar­línu verði í lág­marki.

Lagt er til að sleppa vinstri beygjum á kross­gatna­mótum eins og unnt er, en með vinstri­beygju­banni verða gatna­mótin í raun að tvennum T-gatna­mótum. Þessu er ætlað tryggja greið­færni Borg­ar­lín­unnar og fækka svoköll­uðum bága­punktum, en með því orði er átt við staði þar sem umferð­ar­straumar sker­ast. Færri bága­punktar auka umferð­ar­ör­yggi.

Dæmi um gatna­mót þar sem lagt er til að ekki lengur heim­ilt að beygja til vinstri á bíl er þegar komið verður út úr Faxafeni og inn á Suð­ur­lands­braut­ina. Hið sama mun eiga við þegar komið verður akandi út úr bæði Álf­heimum og Vegmúla og inn á Suð­ur­lands­braut. Vinstri beygja af Suð­ur­lands­braut, yfir sér­rýmið og inn í Lágmúla verður heldur ekki mögu­leg, sam­kvæmt þessum fyrstu til­lögum.

Það sama er uppi á ten­ingnum á gatna­mótum Banka­strætis og Lækj­ar­götu, en ekki er gert ráð fyrir að bílar geti beygt til vinstri þegar niður í Lækj­ar­götu er komið.

Í umfjöllun um umferð­ar­ör­yggi í skýrsl­unni segir að þar sem vinstri beygjur verði ekki lengur mögu­legar muni hluti bíla­um­ferðar finna sér nýjar leiðir og leita í nær­liggj­andi götur. Því sé mik­il­vægt að huga að umferð­ar­ör­yggi í þeim líka.

Kenna þurfi Íslendingum að nálgast borgarlínubrautirnar

Í umfjöllun í skýrsl­unni segir einnig að Íslend­ingar þekki sér­reinar fyrir almenn­ings­sam­göngur sem séu úti í jaðri gatna en ekki borg­ar­línu­brautir og -reinar sem verði fyrir miðju. Því sé mik­il­vægt að kynna vel fyrir fólki hvernig Borg­ar­línan muni virka.

Reynslan sýni til dæmis að óvönum veg­far­endum geti fund­ist rugl­andi að ekið sé í báðar áttir á mið­lægri borg­ar­línu­braut, þegar þeir þvera þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár