Bjarni: „Lít ekki svo á að þessi atburður kalli á afsögn“

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir skilj­an­legt að að fólk verði fyrir von­brigðum með að hann hafi brotið gegn sótt­varna­reglum. Hann sjái eftir því en telur sig ekki þurfa að segja af sér. Verkefni rík­is­stjórn­ar­innar sé of stórt til þess.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist skilja von­brigði fólks með að hann hafi verið á stað þar sem sótt­varna­reglur hafi verið brotnar. „Það er ekki til eft­ir­breytni og ég sé mjög eftir því. Ég hins vegar lít ekki svo á að þessi atburður kalli á afsögn af minni hálfu.“

Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna sem birt er á Vísi. Þar segir hann enn fremur að sér líði þannig að hann sé í miðju verki. „Það reyndar vill þannig til, það er ekki mjög langt til kosn­inga, en við erum í miðju verki við að reisa efna­hag okkar við og vinna bug á þessum far­aldri og mér finnst þetta mál ekki vera til­efni fyrir mig til þess að stíga frá því verki. Það er ein­fald­lega of stórt og mikið verk­efni til þess að klára.“

[adspot]Hann seg­ist hafa rætt málið við for­menn hinna stjórn­ar­flokk­anna, Katrínu Jak­obs­dóttur og Sigurð Inga Jóhanns­son. Þá hafi hann einnig rætt það við heil­brigð­is­ráð­herra, sótt­varna­lækni og Víði Reyn­is­son. Bjarni segir í við­tal­inu við Vísi að hann skilji reiði fólks vegna þeirra aðstæðna sem hann kom sér í. „Ég hef alltaf litið þannig á, og reyni að breyta þannig, að þarna hafi ég gert mis­tök, að hegða mér þannig að ég valdi ekki öðrum hættu á að smit­ast. Og það er skilj­an­legt að fólk sé fyrir von­brigðum ef það sér ein­hvern mis­brest á því.“

Ráðherra í samkvæmi þar sem reglur voru þverbrotnar

Greint var frá því í dag­­bók lög­­regl­unnar í gær­morgun að ónefndur ráð­herra í rík­­­is­­­stjórn Íslands hefði verið á meðal 40 til 50 gesta sem voru í sam­­­kvæmi í sal í útleigu í mið­­­borg Reykja­víkur í gær­­­kvöldi.

[links]Upp­­lýst var síðar að sá salur var lista­safnið í Ásmund­­ar­­sal. Tölu­verð ölvun var í sam­­­kvæm­inu og eng­inn þeirra sem þar voru staddir voru með grímur fyrir and­lit­i.

Lög­reglan leysti upp sam­kvæmið vegna þess að það braut í bága við sótt­varna­reglur og greindi frá því í morgun að á meðal gesta hefði verið ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands.

Bjarni setti svo stöðu­upp­færslu á Facebook klukkan 10:39 í gær­morgun þar sem hann stað­festi að hann hefði verið umræddur ráð­herra. Þar sagði meðal ann­ars: „Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­­­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inn­i­­lega afsök­unar á þeim mis­­tök­­um.“

Katrín gerir ekki kröfu um afsögn

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði fyrr í dag við Vísi að hún geri ekki kröfu um að Bjarni segi af sér eftir að hann varð upp­vís af því að brjóta sótt­varna­reglur á Þor­láks­messu.

Þar sagði Katrín að hún hafi rætt við Bjarna í gær og tjáð honum óánægju sína með mál­ið. „Svona atvik skaðar traustið á milli flokk­anna og gerir sam­starfið erf­ið­ara. Sér­stak­lega vegna þessa að við stöndum í stór­ræðum þessa dag­ana, hins vegar er sam­staðan innan stjórn­ar­innar verið góð og ég tel okkur hafa náð miklum árangri í því sem við erum að vinna að. Við munum halda því ótrauð áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár