Álverin ekki að borga of hátt verð fyrir íslenska raforku

Í úttekt á sam­keppn­is­hæfni stórnot­enda á raf­orku hér­lendis kom í ljós að þeir eru ekki að greiða of hátt verð þegar raf­orku­samn­ingar þeirra eru bornir saman við önnur Vest­ur­lönd með umfangs­mikla stór­iðju­starf­semi.

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straums­vík. Mynd: Af vef Landsvirkjunar

Raf­orku­kostn­aður stórnot­enda á raf­orku á Íslandi skerðir ekki sam­keppn­is­hæfni þeirra gagn­vart Noregi, Kanada og Þýska­landi. Í tveimur fyrr­nefndu lönd­unum stendur stór­iðja einna best að vígi í alþjóð­legum sam­an­burði og er álf­ram­leiðsla hvergi meiri á Vest­ur­löndum en þar.

Álver á Íslandi eru sam­keppn­is­hæf við Kanada og Noreg þegar kemur að raf­orku­kostn­aði en greiða minna en slík í Þýska­landi. Gagnaver greiða almennt þrisvar sinnum lægra verð fyrir raf­orku hér­lendis en í Þýska­landi, svipað verð og í Noregi en heldur hærra en í Kanada þó sumir samn­ingar hér­lendis kunni að vera svip­aðir og í Kanada. Raf­orku­kostn­aður ann­arra stórnot­enda á Íslandi er ívið lægri en í Þýska­landi en ívið hærri en í Noregi og Kanada en fremur fá dæmi eru þó á bak­við þann sam­an­burð.

[adspot]Þetta er nið­ur­staða úttektar sem þýska fyr­ir­tækið Fraun­hofer hefur gert að beiðni atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins á sam­keppn­is­hæfni stór­iðju á Íslandi með teknu til­liti til raf­orku­kostn­aðar. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra mála­flokks­ins, óskaði eftir úttekt­inni í febr­úar síð­ast­liðnum. Hægt er að lesa skýrsl­una í heild sinni hér.

Veittu aðgang að upplýsingum um raunverulegt orkuverð

Úttektin er ein­stök í ljósi þess að hún byggir á aðgangi að trún­að­ar­upp­lýs­ingum um raun­veru­legt orku­verð í ein­stökum orku­sölu­samn­ingum, en stór­kaup­endur á raf­orku á Íslandi á borð við álver hafa ekki viljað gera þá samn­inga opin­bera. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu vegna úttekt­ar­innar segir að Fraun­hofer hafi fengið „aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum um raf­orku­samn­inga orku­fram­leið­enda og stórnot­enda á Íslandi. Lang­flestir aðilar sem leitað var til veittu aðgang að umbeðnum upp­lýs­ingum og allir stórnot­endur utan einn veittu upp­lýs­ingar um raf­orku­verð sitt. Samið var um trúnað við veit­ingu upp­lýs­ing­anna og sam­ráð var haft við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um verk­lagið.“

Samráð var haft við aðila samn­ing­anna við fram­setn­ingu nið­ur­staðna og í því sam­ráði komu fram athuga­semdir við fyr­ir­hug­aða fram­setn­ingu á orku­kostn­aði álvera og var tekið til­lit til þeirra.

Þórdís Kolbrún segir mik­il­vægt að fá fram að raf­orku­kostn­aður stórnot­enda á Íslandi sé almennt sam­bæri­legur eða lægri en í sam­an­burð­ar­lönd­unum. „Við vitum að stór­iðja á Vest­ur­löndum hefur átt undir högg að sækja gagn­vart öðrum heims­hlutum, auk þess sem aðstæður á heims­mark­aði hafa verið erf­iðar. Það dettur engum í hug að gera lítið úr þeim áskor­unum. Auk þess eru orku­samn­ingar ólíkir og mis­jafn­lega hag­felldir kaup­endum. En það er jákvætt að raf­orku­kostn­aður stórnot­enda hér er almennt sam­keppn­is­hæfur, jafn­vel þegar miðað er við þau lönd sem þykja bjóða upp á eitt­hvert hag­felldasta starfs­um­hverfi á Vest­ur­löndum.“

Hótuðu að loka álverinu í Straumsvík

Um 80 pró­sent af allri orku sem fram­leidd er á Íslandi fer til stórnot­enda, aðal­lega þriggja álvera og einnar járn­blendi­verk­smiðju sem eru í eigu Rio Tinto, Alcoa, Century Aluminum (stærsti eig­andi þess er Glencore) og Elkem.

Ástæða þess að ráð­herr­ann bað um úttekt­ina var sú að í upp­hafi árs hót­aði Rio Tinto að loka álveri sínu í Straums­vík og bar fyrir sig að raf­orku­verð á Íslandi væri ekki sam­keppn­is­hæft.

[links]Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar sem selur álver­inu raf­orku, brást við og benti á að það væri mikil ein­földun hjá Rio Tinto að tengja stöðu mála í rekstri þess ein­göngu við það raf­orku­verð sem það greiðir til Lands­virkj­un­ar. Vitað hafi verið í nokkurn tíma að þróun á mörk­uðum fyrir ál og rekstr­ar­vandi álvers­ins gerði stöðu Rio Tinto á Íslandi erf­iða. „Þess vegna höfum við ákveðið að setj­ast niður með þeim og skoða þeirra stöðu. En ég tel það mikla ein­földun að tengja þessa stöðu ein­göngu við raf­orku­verð­ið. Það eru miklu stærri áhrifa­valdar henni tengd­ir. Til dæmis álverð á heims­mark­aði, verð­þróun á þeirri vöru sem álverið fram­leið­ir, hátt súráls­verð og það að missa út þriðj­ung af starf­sem­inni í fyrra.“

Gild­andi raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar og álvers­ins í Straums­vík var gerður í júní 2010. Hann gildir til árs­ins 2036 og um er að ræða fyrsta samn­ing­inn sem Lands­virkjun gerði við álf­ram­leið­anda hér­lendis þar sem að teng­ing við álverð var afnum­in. Með því færð­ist mark­aðs­á­hættan af þróun á álm­ark­aði frá selj­and­anum yfir á kaup­and­ann.

Norðurál vill aflétta trúnaði

Norðurál, sem er í eigu Century Aluminum og rekur álver á Grund­ar­tanga, segir í til­kynn­ingu að það telji að skýrsla Fraun­hofer um sam­keppn­is­hæfni íslenskrar stór­iðju sé um margt góð og fagnar því að ráð­herr­ann skuli hafa tekið það skref að láta óháðan aðila meta sam­keppn­is­hæfni stór­iðju á Íslandi, með til­liti til raf­orku­verðs. 

Hvað varði nið­ur­stöðu Fraun­hofer skýrsl­unnar þá telur Norðurál hana stað­festa það sem fyr­ir­tækið hafi bent á, að með­al­verð raf­orku hafi verið sam­keppn­is­hæft. „Skýrslan stað­festir einnig að það raf­orku­verð sem nú stendur til boða á Íslandi er ekki sam­keppn­is­hæft við það sem stendur til boða í Noregi og Kanada. Norðurál tekur heils hugar undir með skýrslu­höf­undum um að þörf sé á meira gagn­sæi á íslenskum orku­mark­aði. Norðurál hefur því óskað eftir því við orku­sala að trún­aði verði aflétt af lang­tíma orku­sölu­samn­ingum milli fyr­ir­tækj­anna eins fljótt og auðið verður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár