Skólar áfram opnir en grímuskylda hjá eldri nemendum ef þeir geta ekki tryggt fjarlægð

Ný reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­anir á skóla­starfi til að berj­ast gegn kór­ónu­veiru­far­aldr­inum tekur gildi á þriðju­dag.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ný reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um sótt­varnir í skóla­starfi tekur gildi 3. nóv­em­ber, eða á þriðju­dag. Samkvæmt henni verða skólar áfram opnir en grímu­skylda verður hjá nem­endur í 5-10 bekk þar sem ekki verður hægt að virða tveggja metra regl­una.

Í leik­skólum gildir tveggja metra reglan um kenn­ara og starfs­fólk, en þar sem lág­marks­fjar­lægð verður ekki komið við er starfs­fólki skylt að bera and­lits­grímur. Hámarks­fjöldi full­orð­inna í hverju rými eru tíu í leik­skólum, nálægð­ar­tak­mörk gilda ekki um börn á leik­skóla­aldri, en fjöldi barna í hverju sótt­varna­rými skal að hámarki vera 50.

Reglu­gerðin gildir um allt skóla­starf á land­inu, en nær einnig til frí­stunda­heim­ila, félags­mið­stöðva og íþrótta- og tóm­stunda­starfs barna og ung­menna. Víðtækt sam­ráð var haft við skóla­sam­fé­lagið við und­ir­bún­ing reglu­gerð­ar­innar, meðal ann­ars við full­trúa allra skóla­stiga, Kenn­ara­sam­bands Íslands, skóla­stjórn­endur og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Helstu breytingar sem reglugerðin felur í sér eru eftirfarandi:

Leikskólar:

Í leik­skólum gildir tveggja metra reglan um kenn­ara og starfs­fólk, en þar sem lág­marks­fjar­lægð verður ekki komið við er starfs­fólki skylt að bera and­lits­grímur. Hámarks­fjöldi full­orð­inna í hverju rými eru 10. Nálægð­ar­tak­mörk gilda ekki um börn á leik­skóla­aldri, en fjöldi barna í hverju sótt­varna­rými skal að hámarki vera 50.

For­eldrar og aðstand­endur skulu almennt ekki koma inn í skóla­bygg­ingar nema brýna nauð­syn beri til. Gestir sem koma í leik­skóla­bygg­ingar, svo sem starfs­fólk skóla­þjón­ustu eða vegna vöru­flutn­inga, skulu gæta að 2 metra nálægð­ar­tak­mörkun og bera and­lits­grímur.

Skipu­lagt íþrótta-, æsku­lýðs- og tóm­stunda­starf barna á leik­skóla­aldri er óheim­ilt á meðan reglu­gerðin er í gildi.

Grunnskólar og frístundastarf á grunnskólastigi:

Tveggja metra reglan gildir um kenn­ara og starfs­fólk í grunn­skólum, en nota skal and­lits­grímu þar sem ekki er hægt að tryggja lág­marks­fjar­lægð. Hámarks­fjöldi full­orð­inna í hverju sótt­varna­rými í grunn­skólum er 10, en starfs­fólki er heim­ilt að fara milli hópa til að sinna kennslu og veita aðra nauð­syn­lega þjón­ustu.

[adspot]Nemendur í 1.-4. bekk eru und­an­þegnir tveggja metra reglu og grímu­skyldu. Hámarks­fjöldi þeirra í hverju sótt­varna­rými eru 50.

Nemendur í 5.-10. bekk þurfa að fylgja tveggja metra reglu, en ef víkja þarf frá henni ber nem­endum að nota grímu. Að hámarki mega 25 nem­endur í 5.-10. bekk vera í hverju sótt­varna­rými.

Í sam­eig­in­legum rýmum skóla­bygg­inga, svo sem við inn­ganga, í and­dyri, á sal­erni og göngum, er heim­ilt að víkja frá fjölda­tak­mörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nem­endur í 5.-10. bekk og starfs­fólk noti and­lits­grímu. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að fram­fylgja nálægð­ar­tak­mörkun, svo sem í verk­legri kennslu og list­kennslu, skulu kenn­arar og nem­endur í 5.-10. bekk nota grímur.

For­eldrar og aðstand­endur skulu almennt ekki koma inn í skóla­bygg­ingar nema brýna nauð­syn beri til. Aðrir sem þurfa að koma í skóla­bygg­ingar, svo sem starfs­fólk skóla­þjón­ustu, kenn­arar tón­list­ar­skóla eða starfs­fólk í vöru­flutn­ingum, skulu gæta að 2 metra nálægð­ar­tak­mörkun og bera and­lits­grímur.

Halda skal þeirri hópa­skipt­ingu nem­enda sem er í grunn­skóla­starfi á frí­stunda­heim­ilum þannig að þar verði ekki blöndun á milli nem­enda­hópa.

Skipu­lagt íþrótta-, æsku­lýðs- og tóm­stunda­starf barna á grunn­skóla­aldri, þ.m.t. starf félags­mið­stöðva, er óheim­ilt á meðan reglu­gerðin er í gildi.

Tónlistarskólar:

Tón­list­ar­skólum er heim­ilt að sinna ein­stak­lings­kennslu með 2 metra nálægð­ar­tak­mörkun milli starfs­fólks og nem­enda. Að hámarki mega 10 ein­stak­lingar vera í sama rými, en tryggja þarf að blöndun hópa verði ekki önnur en í almennu skóla­starfi. And­lits­grímur skulu not­aðar í öllu starfi með nem­endum þar sem því verður við komið.

For­eldrar og aðstand­endur skulu almennt ekki koma í tón­list­ar­skóla nema brýna nauð­syn beri til. Gestir sem þurfa að koma í skóla­bygg­ingar, svo sem starfs­fólk skóla­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga eða vegna vöru­flutn­inga, skulu gæta að 2 metra nálægð­ar­tak­mörkun og bera and­lits­grímur.

Framhaldsskólar og menntastofnanir sem kenna á framhaldsskólastigi:

Skóla­starf er heim­ilt ef nem­endur og starfs­fólk geta haft minnst 2 metra fjar­lægð sín á milli og fjöldi nem­enda og starfs­manna fer ekki yfir 10 í hverju rými. Í áföngum á fyrsta náms­ári mega allt að 25 ein­stak­lingar deila sama rými, svo fremi sem tveggja metra fjar­lægð milli ein­stak­linga er tryggð. Blöndun nem­enda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfs­fólki er heim­ilt að fara á milli hópa.

Í sam­eig­in­legum rýmum, svo sem við inn­ganga, í and­dyri, á sal­erni og göngum, er heim­ilt að víkja frá fjölda­tak­mörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að not­ast sé við and­lits­grímu.

Við aðstæður þar sem ekki er hægt að fram­fylgja nálægð­ar­tak­mörkun, svo sem í verk­legri kennslu, list­kennslu, klínísku námi og kennslu nem­enda á starfs­brautum, skulu nem­endur, sé þess kostur, og kenn­arar nota and­lits­grímu.

Aðrir við­burðir sem ekki telj­ast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skóla­bygg­ingum. Takmarka skal gesta­komur í skóla­bygg­ingar.

Heimilt er að halda þýð­ing­ar­mikil próf fyrir allt að 30 ein­stak­linga í vel loft­ræstum rýmum, að upp­fylltri 2 metra nálægð­ar­tak­mörkun og ýtr­ustu sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Háskólar:

Skóla­starf er heim­ilt ef nem­endur og starfs­fólk geta haft minnst 2 metra fjar­lægð sín á milli og hámarks­fjöldi nem­enda í hverri kennslu­stofu fer ekki yfir 10. Blöndun nem­enda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfs­fólki og kenn­urum er heim­ilt að fara á milli hópa.

Í sam­eig­in­legum rýmum, svo sem við inn­ganga, í and­dyri, á sal­erni og göngum, er heim­ilt að víkja frá fjölda­tak­mörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að not­aðar séu and­lits­grímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að fram­fylgja nálægð­ar­tak­mörkun, svo sem í verk­legri kennslu, list­kennslu og klínísku námi, er skóla­starf heim­ilt með því skil­yrði að nem­endur og kenn­arar noti and­lits­grímu.

Aðrir við­burðir sem ekki telj­ast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skóla­bygg­ingum. Takmarka skal gesta­komur í skóla­bygg­ingar.

Heimilt er að halda sam­keppn­is­próf, þýð­ing­ar­mikil loka­próf og stað­bundnar námslotur fyrir allt að 30 ein­stak­linga í vel loft­ræstum rýmum, að upp­fylltri 2 metra nálægð­ar­tak­mörkun og ýtr­ustu sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár