Ásmundur Friðriksson: „Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna?“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir flótta­menn sem hafi komið til lands­ins nýverið muni „þyngja yfir­lestað heil­brigð­is­kerfi“. Hann segir að fiski­sagan um að á Íslandi fái fólk hæli hafi fengið byr undir báða vængi. Engar tölur styðja afstöðu þing­manns­ins.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Í Flug­stöð­inni bíða nú 17 hæl­is­leit­endur sem voru að koma til lands­ins í dag eftir flutn­ingi til Reykja­víkur. Fiski­sagan um að á Íslandi sé fólki veitt hæli fær byr undir báða vængi. Allt þetta fólk þarf að kom­ast í ein­angrun til Reykja­víkur. Það þarf að gera í mörgum ferðum á bílum því fólkið má ekki vera saman nema hjón eða fjöl­skyldur. Þá taka 17 manns í ein­angrun eða sótt­hví tölu­vert hús­rými og þyngja yfir­lestað heil­brigð­is­kerfi. Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna.“

Þetta skrifar Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, á Facebook í gær­kvöldi.

Ásmundur útskýrir ekki í stöðu­upp­færsl­unni hvað hann sé að vísa í þegar hann segir að fiski­sagan um að á Íslandi fái fólk hæli hafi fengið byr undir báða vængi en und­an­farið hefur mál hinnar egyp­sku Khedr-­fjöl­skyldu verið í brennid­epli. Hún fékk dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða í fyrra­dag, eftir að hafa farið í felur þegar vísa átti henni úr landi átta dögum áður. Það gerð­ist í kjöl­far þess að kæru­nefnd útlend­inga­mála féllst á sjón­ar­mið fjöl­skyld­unnar um end­ur­upp­töku.

Þá til­kynnti rík­is­stjórn Íslands, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er aðili að, í gær um að hún hafi sam­þykkt að Ísland taki á móti flótta­fólki frá Lesbos á Grikk­landi, með áherslu á sýr­lenskar fjöl­skyldur í við­kvæmri stöðu.

[adspot]Fjöl­skyld­urnar bjuggu áður í flótta­manna­búð­unum Moria sem eyðilögð­ust í elds­voða fyrr í mán­uð­inum. Um er að ræða allt að 15 manns, sem munu bæt­ast í hóp þeirra 85 kvótaflótta­manna sem Ísland tekur á móti í ár. Því verða kvótaflótta­menn allt að 100 tals­ins í ár, sem er mesti fjöldi sem Ísland hefur nokkru sinni tekið á móti frá því að íslensk stjórn­völd hófu að taka á móti flótta­fólki í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Um síð­ustu ára­mót höfðu íslensk ­stjórn­völd ­tekið á móti 695 kvótaflótta­mönnum á 62 árum.

Dómsmálaráðherra sagði „átakanlegt“ að vera í sama flokki og Ásmundur

Ásmundur Frið­riks­son hefur áður vakið athygli fyrir ummæli sín um útlend­inga og flótta­fólk.

Snemma árs 2015, í kjöl­far árása á skrif­­stofu Charlie Hebdo í Frakk­landi, birti hann stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann velti því fyrir sér hvort bak­grunnur þeirra 1.500 múslima sem bjuggu á Íslandi hefði verið kann­aður. Það hefði átt að gera með það að leið­­­ar­­­ljósi að kom­­­ast að því hvort þeir hefðu „farið í þjálf­un­­­ar­­­búðir hryðju­verka­­­manna eða barist í Afganistan, Sýr­land eða öðrum löndum þar sem óöld ríkir meðal múslima.“ Ásmundur við­­­ur­­­kenndi síðar að hann þekkt­i ­sam­­­fé­lag múslima „nán­­­ast ekki neitt“.

Öll þáver­andi for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­rýndi Ásmund harð­lega fyrir ummæli hans. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, núver­andi dóms­mála­ráð­herra og sem fer með mál­efni flótta­manna í rík­is­stjórn, sagði meðal ann­ars að það væri „væg­ast sagt átak­an­legt að vera í sama flokki og Ásmundur Frið­riks­son. For­­dómar og fáfræði ein­­kenna ummæli hans og passa engan veg­inn við þær frelsis og frjáls­­lynd­is­hug­­myndir sem ég trúi að meiri­hluti Sjálf­­stæð­is­­manna standa fyr­­ir. Velti fyrir mér hvort hann eigi ekki betur heima í öðrum flokki sem hefur gælt við þessar skoð­­anir áður með mjög ósmekk­­legum hætt­i."

Vildi skoða að snúa flóttamönnum við í Keflavík

Í mars 2016 sagði hann í umræðum á Alþingi: „Það er mik­il­vægt að við skoðum það hvort það sé nauð­syn­legt á þess­ari stundu að flótta­mönn­um, eða hæl­is­leit­end­um, sé snú­ið við í Kefla­vík og þeir sendir aftur til síns heima.“

Um mán­uði fyrir þing­kosn­ingar 2016 gagn­rýndi Ásmundur, úr pontu Alþingis, að fjár­fram­lög til Útlend­inga­stofn­unar hefðu auk­ist vegna fjölg­unar hæl­is­leit­enda hér á landi og fjölgun hæl­is­leit­enda. Hann sagði að fyrir sömu fjár­hæðir og fara í að standa straum af kostn­aði við hæl­is­leit­endur væri hægt að halda úti skurð­stofu á sjúkra­hús­inu í Vest­manna­eyj­u­m. „Hæl­is­leit­end­ur er annar flokkur flótta­manna sem stöðugt sækir til lands­ins og er að mestu sam­an­settur af ungum karl­mönnum sem koma hing­að ­vega­bréfa­lausir. Í nýsam­þykktum lögum um útlend­inga eru skila­boð Alþingis skýr til þessa hóps og eru að skila sér.“

Sagði að kostnaður gæti orðið 220 milljarðar á ári

Tveimur vikum fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar, haustið 2017, birti Ásmundur aðsenda grein í Morg­un­blað­inu þar sem hann hélt ýmsu fram um flótta­fólk. Þar sagði meðal ann­ars að flótta­fólk sem óskaði eftir vernd á Íslandi, sem hann kall­aði hæl­is­leit­endur, gætu orðið allt að tvö þús­und á Íslandi á árinu 2017.

Sú fjölgun myndi koma „í kjöl­far ákvörð­unar Alþingis um að taka hags­muni ein­stak­linga fram yfir hags­muni heild­ar­inn­ar.“

Ásmundur skrif­aði síðan að fram hefðu verið settar sviðs­myndir sem sýndu að hæl­is­leit­endur hér­lendis gætu orðið tug þús­undir á næstu árum og að kostn­að­ur­inn á hverju ári gæti orðið 220 millj­arðar króna. Hann sagði að kostn­aður við mót­töku hæl­is­leit­enda stefndi í sex millj­arða króna. „Þreng­ingar eru á hús­næð­is­mark­aði. Heima­fólk er sett á göt­una á meðan margar íbúð­ir, gisti­heim­ili og gamlir skólar eru setin hæl­is­leit­end­um. Nábýlið við suma þeirra er svo eld­fimt að það dugar ekki minna en sér­sveit lög­regl­unnar ef stilla þarf til frið­ar.“

Ásmundur spurði svo hvort sann­gjarnt væri:

„Að hæl­is­leit­endur fái í mörgu betri fram­færslu en eldri borg­arar og öryrkjar?

Að hæl­is­leit­endur fá frítt hús­næði þegar eldri borg­urum og fötl­uðum stendur það ekki til boða.

Að heima­menn búi á sama tíma í tjöldum vegna hús­næðiseklu?

[adspot]Að hæl­is­leit­endur fái ókeypis sál­fræð­i-, lækn­is- og tann­lækna­þjón­ustu þegar eldri borg­urum og fötl­uðum stendur það ekki til boða?

Er rétt­látt að verja sex þús­und millj­ónum til mót­töku hæl­is­leit­enda þegar við neitum Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja, Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands á Sel­fossi og í Vest­manna­eyjum og Ísa­firði um örugg­ari fæð­ing­ar­þjón­ustu í heima­byggð sem sam­tals kostar um einn millj­arð á ári?“

Í andstöðu við tölur

Efn­is­lega var allt sem Ásmundur hélt fram hrakið opin­ber­lega af fólki sem starfar við mót­t­töku flótta­fólks eða með raun­tölum um fjölda flótta­manna sem sækj­ast eftir vernd hér­lendis, og kostn­aði við mót­töku þeirra, sem er fjarri því sem Ásmundur hélt fram að hann gæti orðið. Umsóknir um alþjóð­lega vernd voru 867 á síð­asta ári, sam­kvæmt Útlend­inga­stofn­un, og fjölg­aði um 67 milli ára en flestir umsækj­endur komu frá Venes­ú­ela og Írak. Í heild fengu 531 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi árið 2019.

Um miðjan sept­em­ber­mánuð höfðu borist 433 umsóknir um vernd hér­lendis það sem af er ári. Alls höfðu 368 manns fengið alþjóð­lega vernd. við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. Þar af voru 125 frá Venes­ú­ela og 32 frá Írak, en Ísland er skuld­bundið til að veita öllum vernd sem koma frá þeim löndum ef Ísland er stað­ur­inn sem þeir sækj­ast eftir slíku í Evrópu.

Kostn­aður við rekstur þess mála­flokks sem kall­ast útlend­inga­mál var 4,2 millj­arðar króna í fyrra. Árið áður, 2018, var hann 4,1 millj­arður króna. Þetta má lesa úr árs­skýrslu dóms­mála­ráð­herra fyrir sitt hvort árið.

Þá liggja fyrir tölur frá Hagstofu Íslands um að inn­flytj­endur, sem er mengi sem nær yfir þá erlendu rík­is­borg­ara sem flytja hingað til að starfa, þá sem sækja um alþjóð­lega vernd og þá sem koma hingað til lands sem kvótaflótta­menn, um að hóp­ur­inn þiggi mun minna af félags­legri fram­færslu en inn­lendir. Samhliða mik­illi fjölgun inn­flytj­enda á síð­ustu árum hafa með­al­tals­greiðslur til þeirra dreg­ist saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár