Ásmundur vill skoða hvort snúa eigi hælisleitendum við í Keflavík

Ásmundur Frið­riks­son vill að landa­mæri Íslands verði lok­aðri vegna flótta­manna­straums­ins. Hann segir góða fólkið og fjöl­miðla rífa fólk í sig fyrir að hafa skoðun á mál­inu.

„Það er mik­il­vægt að við skoðum það hvort það sé nauð­syn­legt á þess­ari stundu að flótta­mönnum, eða hæl­is­leit­endum, sé snúið við í Keflavík og þeir sendir aftur til síns heima.“ Þetta sagði Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Alþingi í dag.

Ásmundur sagði að fréttir af því að hæl­is­leit­andi á Kjal­ar­nesi hafi hótað að kveikja í sér í gær hafi vakið með honum óhug. „Flótta­manna­straum­ur­inn er stór­kost­legt vanda­mál eins og við höfum heyrt á und­an­förnum mán­uðum. Svíar og Danir hafa lokað landa­mærum sínum til að tak­marka komu flótta­manna og til að geta fylgst með því hverjir koma til lands­ins. Aust­ur­rík­is­menn og Balk­an­löndin hafa fundað sér­stak­lega vegna vanda Schengen-svæð­is­ins en Grikk­land er galopið og þar streymir flótta­fólk inn sem aldrei fyrr og á þá greiða leið inn í Schengen-löndin.“

Hann spurði því næst hvort Íslend­ingar ættu að fara að ráðum Svía og Dana og tak­marka aðgengi fólks til lands­ins eins og var fyrir til­komu Schengen.

„Ég auð­vitað þekki það af eigin raun hvað það er erfitt að taka þátt í þess­ari umræðu. Maður er rif­inn í sig af góða fólk­inu og fjöl­miðlum ef maður þorir að opna munn­inn og hafa skoðun. Fólkið í land­inu þorir ekki að opin­bera skoðun á þessum málum,“ sagði Ásmundur. Hann sagð­ist því telja að í þing­sal þyrfti að ræða hvort ekki þurfi að gera breyt­ingar á opnum landa­mærum lands­ins. „Ég held að það sé mál að linni.“

Vildi kanna bakgrunn múslima

Fyrir rúmu ári síðan skap­að­ist mikil umræða eftir að Ásmundur spurði að því á Facebook-síðu sinni hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­aður, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Ásmundur sagði þá að hann væri að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði Ásmundur í við­tali við Vísi og þvertók fyrir að ummæli hans lit­uð­ust af ras­isma.

Ummæli hans vöktu hins vegar hörð við­brögð, meðal ann­ars úr hans eigin flokki. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, sem nú er rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði það vera „væg­ast sagt átak­an­legt“ að vera í sama flokki og Ásmundur. „Fordómar og fáfræði ein­kenna ummæli hans og passa engan veg­inn við þær frelsis og frjáls­lynd­is­hug­myndir sem ég trúi að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­manna standa fyrir. Velti fyrir mér hvort hann eigi ekki betur heima í öðrum flokki sem hefur gælt við þessar skoð­anir áður með mjög ósmekk­legum hætti."

Ummæli hans í dag eru ekki í fyrsta sinn sem hann kvartar undan umræð­unni. Hann gerði hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn að umtals­efni í febr­úar í fyrra á þing­inu. „Þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðjar að nágrönnum okkar eru skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni sem aldrei kemst á það stig að rætt sé um mál­efnið.“ Hann sagði tján­ing­ar­frelsið vera fótum troðið og að það virð­ist oft á tíðum aðeins vera fyrir útvalda. Hann fagn­aði því að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefði hafið umræðu um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir. „Tökum umræð­una um þá ógn sem steðjar að í nágranna­löndum okkar, en við getum ekki tekið þá áhættu að hún ber­ist ekki hingað,“ sagði Ásmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár