Innflytjendur þiggja minna af félagslegum greiðslum en aðrir íbúar

Þeir íbúar Íslands sem eru flokk­aðir sem inn­lendir þiggja mun meiri félags­lega fram­færslu en inn­flytj­endur, hvort sem miðað er við með­al­tals­greiðslur eða mið­gildi. Samhliða mik­illi fjölgun inn­flytj­enda hafa með­al­tals­greiðslur til þeirra dreg­ist saman.

Fjöldi erlendra ríkisborgarar sem flutt hefur til landsins hefur aukist mikið á síðustu árum samhliða bættu efnahagsástandi. Þannig er um helmingur félagsmanna Eflingar fólk af erlendum uppruna.
Fjöldi erlendra rík­is­borg­arar sem flutt hefur til lands­ins hefur auk­ist mikið á síð­ustu árum sam­hliða bættu efna­hags­á­standi. Þannig er um helm­ingur félags­manna Eflingar fólk af erlendum upp­runa. Mynd: Efling

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands þá var með­al­tal „ann­arra tekna“ hjá inn­lendum íbúum Íslands um 1,3 millj­ónir króna á árinu 2017. Á sama tíma var það 626 þús­und krónur hjá inn­flytj­endum, eða rúm­lega 50 pró­sent lægra.

„Aðrar tekjur“ eru sam­tala ýmissa félags­legra greiðsla, svo sem líf­eyr­is­greiðslur, greiðslur frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins og aðrar bóta­greiðslur á borð við atvinnu­leys­is­bætur, vaxta- og barna­bætur. Auk þess telj­ast til ann­arra tekna náms- og rann­sókn­ar­styrkir, vinn­ingar og ýmsar aðrar tekjur.

[links]Þegar mið­gildi þess­ara talna (helm­ingur með lægri aðrar tekjur en það og helm­ingur með hærri aðrar tekjur) er skoðað kom í ljós að það var 136 þús­und krónur á ári hjá inn­lendum íbúum en 72 þús­und krónur hjá inn­flytj­endum. Þar er mun­ur­inn líka tæp­lega 50 pró­sent.

Inn­flytj­endum til Íslands hefur fjölgað mjög hratt á síð­ustu árum. Þeir eru nú 45.130 og hefur fjölgað um 49 pró­sent frá byrjun árs 2017 og um 113 pró­sent frá byrjun árs 2011.

Samhliða þess­ari miklu aukn­ingu hefur bilið á milli með­al­tals „ann­arra tekna“ inn­lendra og inn­flytj­enda auk­ist. Þ.e. með­al­tals­greiðslur til inn­lendra íbúa hafa vaxið hraðar á síð­ustu árum en með­al­tals­greiðslur inn­flytj­enda.

Með­al­tals­greiðslur til inn­lendra íbúa hafa farið úr 998 þús­und krónum í 1,3 millj­ónir króna á árunum 2012-2017. Á sama tíma lækk­uðu með­al­tals­greiðslur til inn­flytj­enda úr 644 þús­und krónum í 626 þús­und krónur.

[adspot]Tölurnar sýna því að sam­hliða for­dæma­lausri fjölgum erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi þá hafa félags­legar greiðslur til inn­flytj­enda ekki auk­ist að með­al­tali og að þær eru langt undir með­al­tali þeirra félags­legra greiðslna sem rata til ann­arra íbúa lands­ins.

Raunar hafa greiðslur sveit­ar­fé­laga vegna félags­legrar fram­færslu dreg­ist veru­lega saman á und­an­förnum árum. Árið 2015 greiddu þau 3,4 millj­arða króna í húsa­leigu­bætur, félags­lega aðstoð og styrki. Á árinu 2017 var sú upp­hæð 2,4 millj­arðar króna.

Gæti átt sér eðlilegar skýringar

Í fram­sögu sem Gró Ein­ars­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Hagstofu Íslands, flutti um félags­legar greiðslur til inn­flytj­enda og inn­lendra á morg­un­verð­ar­fundi EAPN á Íslandi í lok mars, kom fram að mun­ur­inn á milli hópanna gæti átt sér eðli­legar skýr­ingar.

Hlutfall karla og yngra fólks á meðal inn­flytj­enda væri til að mynda að jafn­aði hærra. Þeir ættu líka að jafn­aði færri börn og væru því ólík­legri þiggj­endur barna­bóta. Á móti kæmi að inn­flytj­endur byggi oftar í leigu­hús­næði sem væri að jafn­aði dýr­ara en eigið hús­næði.

Í fram­sög­unni kom einnig fram að mun­ur­inn gæti að hluta til skýrst af því að inn­flytj­endur ættu ekki sama bóta­rétt og inn­lendir, ein­fald­lega vegna þess að margir þeirra hafa dvalið stuttan tíma á Íslandi. Þeir hefðu því ekki unnið sér inn rétt á félags­legum greiðslum.

Þegar mið­gildi ann­arra tekna þeirra inn­flytj­enda sem hafa dvalið lengur á Íslandi er skoðað þá er það hærra en hjá heild­inni.

Gró sagði að fyrir inn­flytj­endur sem hafa dvalist á Íslandi í ára­tug eða lengur þá sé mið­gildi ann­arra tekna nán­ast það sama og hjá inn­lendum íbúum.

Mikil aukning á fáum árum

Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað mjög hratt á Íslandi á und­an­förnum árum. Alls voru erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi 45.130 í byrjun mars síð­ast­liðnum.

Flestir þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi koma frá Pól­landi. Í byrjun mars­mán­aðar voru þeir 19.466 tals­ins sem þýðir að 43 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem hér búa eru upp­runa­lega frá Pól­landi.

Í lok síð­asta árs bjuggu lang­flestir erlendu rík­is­borg­ar­arnir sem búa hér­lendis í Reykja­vík, eða 18.470 tals­ins. Á þeim tíma bjuggu því alls um 42 pró­sent þeirra í höf­uð­borg­inni, og tæp 62 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Frá byrjun árs 2015 hefur fjöldi erlendra rík­is­borg­ara í Reykja­vík auk­ist um 80 pró­sent.

[adspot]Mest hefur aukn­ingin hins vegar verið á Suð­ur­nesjum, og þá sér­stak­lega í Reykja­nes­bæ. Sú aukn­ing teng­ist beint auknum umsvifum vegna fjölg­unar ferða­manna sem koma til lands­ins í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Í byrjun árs 2015 bjuggu þar 1.590 erlendir rík­is­borg­ar­ar. Í upp­hafi þessa árs voru þeir orðnir 4.590 og fjöldi þeirra því næstum þre­fald­ast á örfáum árum. Erlendir rík­is­borg­arar voru 10,6 pró­sent íbúa í Reykja­nesbæ í byrjun árs 2015 en 24,2 pró­sent þeirra í byrjun árs 2019.

Með lægri laun en Íslendingar

Um síð­ustu ára­mót voru inn­flytj­endur 12,4 pró­sent af öllum íbúum lands­ins. Hlutfall inn­flytj­enda á Íslandi er nú svipað og það er í Noregi (14,1 pró­sent) og í Danmörku (10,2 pró­sent) í árs­lok 2017. Enn vantar þó tölu­vert upp á að ná Svíþjóð þar sem inn­flytj­endur voru 18,6 pró­sent íbúa í lok þess árs. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands eru töl­urnar þó ekki að öllu leyti sam­bæri­legar þar sem skil­grein­ingar á inn­flytj­endum og ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­endum eru ekki að öllu leyti þær sömu.

Inn­flytj­endur eru að jafn­aði með tæp­lega átta pró­sent lægri laun en inn­lendir hér á landi. Það er að teknu til­liti til kyns, ald­ur­s, ­mennt­un­ar, fjöl­skyldu­haga, búsetu og ýmissa starfstengdra þátta en með því að leið­rétta fyrir þessum þáttum fæst skýr­ari mynd af þeim áhrifum sem bak­grunnur hefur á laun hér á landi.

Þetta kom fram í nýlegri grein­ingu Hag­stofu Íslands á launa­mun inn­flytj­enda og inn­lendra fyrir tíma­bilið 2008 til 2017 sem unnin var í sam­vinnu við inn­flytj­enda­ráð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár