Farið að hægja á fjölgun erlendra ríkisborgara sem flytja til Íslands

Erlendum rík­is­borg­urum sem setj­ast að á Íslandi hefur fjölgað gríð­ar­lega á örfáum árum. Nú virð­ist sem farið sé að hægj­ast á fjölgun þeirra.

Stór hluti þeirra sem starfa í íslenska byggingageiranum eru erlendir ríkisborgarar.
Stór hluti þeirra sem starfa í íslenska bygg­inga­geir­anum eru erlendir rík­is­borg­arar. Mynd: Bára Huld Beck

Erlendum rík­is­borg­urum sem búsettir eru á Íslandi fjölg­aði um 820 á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2019. Þeir voru alls 45.130 í byrjun þessa mán­aðar. Til sam­an­burðar þá fjölgað erlendum rík­is­borg­urum með búsetu á Íslandi um 1.620 á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018. Því virð­ist allt stefna í að mun færri erlendir rík­is­borg­arar muni flytja til lands­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra.

Á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem koma hingað til lands til að búa hér. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­sent.

Ástæðan er sú að á Íslandi var mik­ill efna­hags­upp­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­gangi, sér­stak­lega í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu og í bygg­inga­iðn­aði. Nú þegar hag­kerfið er farið að kólna og spenna að losna þá fækkar erlendum rík­is­borg­urum sem sækja hingað til lands sam­hliða.

Þetta er hægt að lesa út úr tölum frá Hagstofu Íslands og Þjóðskrá Íslands.

Nær allir nýir skattgreiðendur útlendingar

Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem flutt hafa hingað til lands í þeirri efna­hags­upp­sveiflu sem verið hefur á und­an­förnum árum hefur gjör­breytt mörgu hér­lendis. Í ítar­legri grein eftir Pál Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ing í síð­asta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaði rík­is­skatt­stjóra þar sem hann greinir álagn­ingu ein­stak­linga vegna tekna árs­ins 2017, kom meðal ann­ars fram að erlendum rík­is­borg­urum sem greiddu skatta á Íslandi hafi fjölgað um 9.782 milli áranna 2016 og 2017, eða um 27,9 pró­sent. Á sama tíma fjölg­aði þeim íslensku rík­is­borg­urum sem greiða skatta­hér­lendis um 1.166 tals­ins.

Alls greiddu 44.850 erlendir rík­is­borg­arar skatta á Íslandi á árinu 2017 og voru þeir þá 15,1 pró­sent allra skatt­greið­enda. Árið áður voru þeir 12,2 pró­sent þeirra ein­stak­linga sem skráðir voru í skatt­grunn­skrá.

Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði því rúm­lega 60 sinnum hraðar og átta sinnum meira en íslenskum á skrá. Erlendir rík­is­borg­arar voru um 89,3 pró­sent fjölg­unar á skrá árið 2017.

Ástæðan þess að fleiri útlend­ingar greiða skatt hér­lendis en þeir sem eru skráðir hér með búsetu sam­kvæmt Hagstofu Íslands eða Þjóðskrá Íslands er að hluti þeirra sem hingað koma á vegum starfs­manna­leiga eru ekki skráðir með búsetu hér­lendis.

Mikil breyting á skömmum tíma

Flestir þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi koma frá Póllandi. Í byrjun mars­mán­aðar voru þeir 19.466 tals­ins sem þýðir að 43 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem hér búa eru upp­runa­lega frá Póllandi.

Í lok síð­asta árs bjuggu lang­flestir erlendu rík­is­borg­ar­arnir sem búa hér­lendis í Reykja­vík, eða 18.470 tals­ins. Á þeim tíma bjuggu því alls um 42 pró­sent þeirra í höf­uð­borg­inni, og tæp 62 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Frá byrjun árs 2015 hefur fjöldi erlendra rík­is­borg­ara í Reykja­vík auk­ist um 80 pró­sent.

Mest hefur aukn­ingin hins vegar verið á Suð­ur­nesjum, og þá sér­stak­lega í Reykja­nesbæ. Sú aukn­ing teng­ist beint auknum umsvifum vegna fjölg­unar ferða­manna sem koma til lands­ins í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Í byrjun árs 2015 bjuggu þar 1.590 erlendir rík­is­borg­arar. Í upp­hafi þessa árs voru þeir orðnir 4.590 og fjöldi þeirra því næstum þre­fald­ast á örfáum árum. Erlendir rík­is­borg­arar voru 10,6 pró­sent íbúa í Reykja­nesbæ í byrjun árs 2015 en 24,2 pró­sent þeirra í byrjun árs 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár