Tíu staðreyndir um niðurstöðu hlutafjárútboðs Icelandair

Icelandair Group lauk hluta­fjár­út­boði sínu í síð­ustu viku. Umfram­eft­ir­spurn var eftir nýjum hlutum í félag­inu og því tókst Icelandair Group að ná mark­miði sínu, að safna 23 millj­örðum króna í nýju hlutafé.

Icelandair Group hefur átt í miklum rekstr­ar­vanda und­an­farna mán­uði. Alls nam tap sam­stæð­unnar um 45 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Stærstan hluta þess taps, sem nemur 245 millj­ónum króna á dag, má rekja beint til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Fyrir lá að félagið átti ekki nægt laust fé til að lifa mikið lengur við óbreyttar aðstæður.

Síð­ustu mán­uði hefur Icelandair Group því róið líf­róður og und­ir­búið það að sækja sér nýtt hlutafé til að standa af sér yfir­stand­andi storm. Hluta­fjár­út­boð­inu hefur nokkrum sinnum verið frestað á meðan að stjórn­endur Icelandair hnýttu aðra lausa enda til að gera þátt­töku í því eft­ir­sókn­ar­verð­ari. Útboðið fór loks fram í síð­ustu viku. Hér að neðan eru helstu stað­reyndir um nið­ur­stöðu þess.

1. Þátttaka umfram væntingar

Icelandair Group ætl­aði sér að safna að minnsta kosti 20 millj­örðum króna í útboð­inu. Hægt yrði að hækka þá fjár­hæð í 23 millj­arða króna ef umfram­eft­ir­spurn yrði.

Alls bár­ust yfir níu þús­und áskriftir upp á alls 37,3 millj­arða króna. Umfram­eft­ir­spurn var því 85 pró­sent, bæði frá fag­fjár­festum og almennum fjár­festum. Nýjum hlutum mun líka fylgja 25 pró­sent áskrift­ar­rétt­indi, eða sem nemur 5,75 millj­örðum hluta. Það þýðir að hver og einn sem keypti mun geta bætt við sig 25 pró­sent af því sem við­kom­andi skráði sig fyrir í við­bót á sama gengi og var í hluta­fjár­út­boð­inu, en það var ein króna á hlut.

2. Þurfa að borga í vikunni

Stjórn Icelandair Group ákvað að sam­þykkja ekki allar áskriftir, heldur ein­ungis fyrir 30,3 millj­arða króna. Það þýðir að áskriftum fyrir sjö millj­arða króna var hafnað af stjórn­inni.

Nýir hlut­hafar þurfa að borga fyrir hlut­ina sem þeir skráðu sig fyrir í síð­asta lagi 23. sept­em­ber, eða á morgun. Hlut­irnir verða svo teknir til við­skipta á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands í síð­asta lagi 12. októ­ber næst­kom­andi.

3. Hlutfallsleg skerðing flestra er 37 prósent

Þeir sem keyptu fyrir eina milljón króna eða minna í útboð­inu verða ekki skertir þrátt fyrir umfram­eft­ir­spurn. Þ.e. þeir fá að kaupa nákvæm­lega það magn hluta sem þeir skráðu sig fyrir. Hlut­falls­leg skerð­ing ann­arra áskrifta, hvort sem er á meðal fag­fjár­festa eða almennra er um 37 pró­sent. Það þýðir að sá sem ætl­aði að kaupa bréf fyrir t.d. 100 millj­ónir króna fær að kaupa fyrir 63 millj­ónir króna.

4. Einhverjir núverandi hluthafa þynnast niður

Núver­andi eig­endur, sem áttu hluta­bréf fyrir 5,4 millj­arða króna, þynn­ast strax niður um 80,9 pró­sent. Sú þynn­ing mun vænt­an­lega aukast þegar nýir hlut­hafar nýta áskrift­ar­rétt­indi sín.

Það þá þó ein­ungis við þá núver­andi hlut­hafa sem ákváðu að taka ekki þátt í útboð­inu nú. Þeir úr hópi þeirra sem vörðu eign­ar­stöðu sína verða hlut­falls­lega á svip­uðu róli og þeir voru áður, en hafa vit­an­lega borgað nýja pen­inga inn í Icelandair Group.

5. Konan sem keypti WOW vörumerkið mætti með hvelli

Banda­ríska athafna­konan Michele Roosevelt Edwards, einnig þekkt sem Michele Ballarin, skráði sig fyrir sjö millj­arða hlut í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group. Hún braut sótt­varn­ar­reglur sem gilda í land­inu á meðan að á veru hennar hér stóð, meðal ann­ars með því að fara á kaffi­hús í Borg­ar­túni.

[adspot]Edwards er þekkt hér á landi fyrir að hafa keypt eignir úr þrota­búi WOW air í fyrra, meðal ann­ars sjálft vöru­merki hins fallna flug­fé­lags, en hún boð­aði til blaða­manna­fundar fyrir rösku ári síðan þar sem hún boð­aði end­ur­komu WOW air. Hún áform­aði að flug myndi hefj­ast á milli Dulles-flug­vallar í Washington í Banda­ríkj­unum og Kefla­vík­ur­flug­vallar í októ­ber í fyrra. ­Síðan þá hefur lítið heyrst af fram­gangi hins end­ur­nýj­aða WOW air. Hún ætl­aði sér, sam­kvæmt heim­ildum, mikil ítök í félag­inu og að slá vöru­merki WOW air saman við Icelandair Group.

6. Ballarin einni hafnað

Áskrift Ballarin að hlutum í Icelandair Group var hafnað af stjórn félags­ins. Svo virð­ist sem að hún hafi verið eini áhuga­sami fjár­festir­inn sem hafi ekki fengið áskrift sína sam­þykkta. Þær ástæður hafa verið gefnar að Ballarin hafi ekki getað sýnt fram á nægj­an­legar trygg­ingar fyrir því að eiga það fjár­magn á lausu sem til þyrfti til að greiða fyrir áskrift hennar.

Gunnar Steinn Pálsson, almanna­teng­ill sem unnið hefur náið með Ballarin hér­lendis, sagði í sam­tali við Vísi um helg­ina að það hefðu verið mikil von­brigði fyrir hana að „drífa ekki alla leið með Icelandair-verk­efnið“.

7. Samsetning eigendahópsins

Mikil eft­ir­spurn var hjá almennum fjár­festum í útboð­inu. Eign­ar­hlutur þeirra verður um 50 pró­sent nú og fjöldi hlut­hafa í félag­inu verður yfir ell­efu þús­und. Hlut­höfum Icelandair Group er því að fjölga um sjö þús­und.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins voru áður stærstu eig­endur félags­ins með sam­tals 53,3 pró­sent eign­ar­hlut.

Á meðal þeirra sem þynn­ist mest niður er banda­ríski fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­sjóð­­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement. Sá sjóður sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum í flug­fé­lögum og er því í vanda víðar en á Íslandi. Hann kom inn í eig­enda­hóp Icelandair í hluta­fjár­aukn­ingu í apríl í fyrra þegar hann keypti 11,5 pró­sent á 5,6 millj­arðar króna. Síðar bætti sjóð­ur­inn við sig hlutum og átti þegar mest var 13,5 pró­sent. Síðustu mán­uði hefur PAR verið að selja sig niður í Icelandair Group á hrakvirði og fyrir lá fyrir nokkrum síðan að þar væru ekki til pen­ingar til að styðja frekar við íslenska flug­fé­lagið.

8. Nokkrir úr núverandi eigendahópi tóku ekki þátt

Mikil spenna var um hvaða líf­eyr­is­sjóðir sem áttu þegar í Icelandair Group myndu taka þátt í útboð­inu, en þátt­taka þeirra var talin lyk­il­at­riði í því að það tæk­ist að ná mark­miðum þess. Á end­anum varð nið­ur­staðan sú að sumir tóku þátt, en aðrir ekki. Af fjórum stærstu sjóðum lands­ins, sem allir voru á meðal stærstu eig­endur Icelandair Group fyrir útboðið, tóku tveir (Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og Gildi líf­eyr­is­sjóður) þátt en tveir (Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Birta líf­eyr­is­sjóður) sögðu pass. Auk þess vakti athygli að bæði Frjálsi líf­euris­sjóð­ur­inn og Festa líf­eyr­is­sjóður ákváðu að taka ekki þátt.

Fjöldi sjóða í stýr­ingu hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum tók þátt. Þar voru sjóðir í stýr­ingu Stefnis, sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka, umsvifa­mestir.

9. Ekki þörf fyrir að virkja sölutryggingu

Þann 1. sept­em­ber var greint frá því að Icelandair Group hefði náð sam­komu­lagi við rík­is­bank­ana tvo, Íslands­banka og Lands­bank­ann, um að þeir sölu­tryggðu sam­tals sex millj­arða króna í kom­andi hluta­fjár­út­boði. Hvor bank­inn skuld­batt sig til að sölu­tryggja þrjá millj­arða króna.

[links]Það þýddi á manna­máli að Icelandair Group þurfti í raun ekki að selja nema 14 millj­arða króna af útgáf­unni vegna þess að rík­is­bank­arnir tveir höfðu þegar skuld­bundið sig til að kaupa fyrir sex ef 14 millj­arða króna markið næð­ist. Hefði það gengið eftir hefði íslenska ríkið orðið óbeinn eig­andi að Icelandair Group í gegnum banka sem það á að öllu leyti.

Í ljósi þess að umfram­eft­ir­spurn var eftir hlutum reyndi ekki á sölu­trygg­ing­una. Rík­is­bank­arnir eru samt sem áður í lyk­il­hlut­verkum í fram­tíð­ar­þróun Icelandair Group, sem helstu kröfu­hafar félags­ins og þeir bankar sem þegar hafa skuld­bundið sig til að veita því bæði rekstr­ar­lána­línu upp á sjö nýja millj­arða króna og þraut­ar­vara­lána­línu upp á 16,5 millj­arða króna sem er með 90 pró­sent rík­is­á­byrgð.

10. Kvartað yfir ríkisábyrð

Eitt af lyk­ilpúsl­unum sem þurfti að falla til í aðdrag­anda hluta­fjár­út­boðs­ins var að ríkið myndi gang­ast í ábyrgð fyrir 90 pró­sent af 16,5 millj­arða króna lána­línu til Icelandair Group. Hún var sam­þykkt á Alþingi í ágúst.

Sú sam­þykkt mun hafa eft­ir­mála, en Kjarninn greindi frá því á föstu­dag að flug­fé­lagið PLAY hafi sent kvörtun til ESA, eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, þar sem kraf­ist er aft­ur­köll­unar á leyf­is­veit­ingu rík­is­á­byrgðar á lána­línu Icelandair Group. Fjár­mála­ráðu­neytið hefur þegar brugð­ist við kvörtun­inni og sagt leyf­is­veit­ing­una hafa verið á sama laga­lega grund­velli og í mörgum sam­bæri­legum mál­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár