Tíu staðreyndir um hlutafjárútboð Icelandair

Í dag hefst hluta­fjár­út­boð Icelandair Group. Það er síð­asti lið­ur­inn í lang­dregnum björg­un­ar­leið­angri félags­ins. Á morgun kemur svo í ljós hvort að hann hafi lukk­ast eða ekki.

Icelandair Group hefur átt í miklum rekstr­ar­vanda und­an­farna mán­uði. Alls nam tap sam­stæð­unnar um 45 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Stærstan hluta þess taps, sem nemur 245 millj­ónum króna á dag, má rekja beint til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Síðustu mán­uði hefur félagið því róið líf­róður og und­ir­búið það að sækja sér nýtt hlutafé til að standa af sér yfir­stand­andi storm. Upp­haf­lega ætl­aði það að halda hluta­fjár­út­boð sem myndi ljúka í júní­mán­uði og átti að safna 200 millj­ónum dala, um 27 millj­örðum króna á núvirði. Það gekk ekki eftir vegna þess að Icelandair náði ekki samn­ingum við ýmsa hag­að­ila í tíma til að það væri hægt. Því var hluta­fjár­út­boð­inu frestað fram í ágúst og þegar ljóst var að sá tíma­frestur myndi ekki nást var greint frá nýjum áformum: Upphæðin sem sækja átti var lækkuð og útboðið myndi fara fram í sept­em­ber.

Hluta­fjár­út­boð Icelandair hefst í dag klukkan níu og lýkur á morgun klukkan fjögur síð­degis. Stund sann­leik­ans er að renna upp.

1. Ætlað að safna 20-28,8 milljörðum króna

Icelandair ætlar sér að safna að lág­marki 20 millj­örðum króna í nýtt hlutafé, en hver hlutur verður seldur á eina krónu. Ef umfram­eft­ir­spurn skap­ast eftir hlutum verður hægt að stækka útgáf­una um þrjá millj­arða króna auk þess sem að kaup á hverjum hlut mun fylgja áskrift­ar­rétt­indi sem svara til 25 pró­sent af skrán­ingu nýrra hluta. Það þýðir að þeir sem kaupa hlut mega bæta við fjár­fest­ing­una sína á sama gengi sem nemur fjórð­ungi af upp­haf­legri fjár­fest­ingu. Verði þessi rétt­indi full­nýtt mun Icelandair að hámarki safna 28,75 millj­örðum króna.

2. Samkomulag við haghafa

Icelandair hefur gert við ýmsa kröfu­hafa sína bæta lausa­fjár­stöðu félags­ins, eða draga úr fjár­hags­legum skuld­bind­ingum þess, um alls 450 millj­ónir dali, eða um 61 millj­arð króna. Þar skipta lang­mestu máli breyt­ingar á kaup­samn­ingum á Boeing flug­vélum. Þessir samn­ingar voru for­senda þess að hægt var að ráð­ast í útboðið. Til við­bótar hafa samn­ingar við stærstu starfs­stétt­irnar sem starfa hjá félag­inu skilað tölu­verðu kostn­að­ar­hag­ræði, en í því felst að mestu að starfs­menn þurfa að skila fleiri tímum í vinnu en áður.

Ekkert hefur hins vegar verið afskrifað af skuldum Icelandair Group.

3. Almenningur má kaupa en þarf að standast próf

Almenn­ingur mun fá að kaupa fyrir að minnsta kosti 100 þús­und krónur og upp að 20 millj­ónum króna. Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur hins vegar gert kröfu um að almenn­ingur sem tekur þátt í útboð­inu geti sýnt fram á reynslu og til­hlýði­lega þekk­ingu á afleiðu­við­skiptum.

[adspot]Í því felst að eft­ir­litið skil­greinir útboðið sem flókin fjár­mála­gjörn­ing og þess vegna þurfa þau fjár­mála­fyr­ir­tæki sem selja almenn­ingi hluta­bréf að meta hvort fjár­fest­ing í útboð­inu sé við­eig­andi fyrir þá sem taka þátt. Það er gert með því að leggja fyrir við­kom­andi sér­stakan spurn­ing­ar­lista – svo­kallað til­hlýði­leika­mat – sem bank­arnir þurfa svo að meta nið­ur­stöð­una úr í hverju til­viki fyrir sig.

4. Lífeyrissjóðirnir þeir sem þurfa að kaupa

Stjórn­endur Icelandair hafa sagt það opin­ber­lega að horft sé til sam­tals við helstu núver­andi inn­lendu hlut­hafa um þátt­töku í hluta­fjár­út­boð­inu.

Þar eru fjórir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir stærstir: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi og Birta. Eigendur líf­eyr­is­sjóð­anna eru almenn­ingur í land­inu.

Áratugur er síðan að Icelandair fór síð­ast í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu og á því tíma­bili hefur ávöxtun sjóð­anna ekki verið beysin. Tveir þeirra hafa raunar tapað veru­lega á þeirri fjár­fest­ingu, líkt og Kjarninn greindi frá nýverið.

5. Allskyns ríkisframlag

Flestar þeirra efna­hags­að­gerða sem íslenska ríkið hefur gripið til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa verið sniðnar að Icelandair. Félagið var það ein­staka fyr­ir­tæki sem nýtti mest allra hluta­bóta­leið stjórn­valda. Í mars og apríl fengu launa­menn hjá þeim félögum sem mynda Icelandair-sam­stæð­una alls um 1,1 millj­arð króna í greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls. Icelandair nýtti líka leið­ina í maí en ekki hefur verið greint frá því hversu háar greiðslur Vinnu­mála­stofn­unar vegna starfs­manna sam­stæð­unnar námu þann mánuð.

Auk þess fóru rúm­lega 3,4 millj­arðar króna af hinum svoköll­uðu upp­sagn­ar­styrkj­unum, sem sam­tals námu átta millj­örðum króna, til Icelandair Group eða tengdra aðila, eða um 43 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar.

6. Sölutrygging ríkisbanka

Þann 1. sept­em­ber var greint frá því að Icelandair hefði náð sam­komu­lagi við rík­is­bank­ana tvo, Íslands­banka og Lands­bank­ann, um að þeir sölu­tryggðu sam­tals sex millj­arða króna í kom­andi hluta­fjár­út­boði. Hvor um sig mun sölu­tryggja þrjá millj­arða króna.

Það þýðir á manna­máli að Icelandair þarf í raun ekki að selja nema 14 millj­arða króna af útgáf­unni vegna þess að rík­is­bank­arnir tveir hafa þegar skuld­bundið sig til að kaupa fyrir sex ef 14 millj­arða króna markið næst. Gangi það eftir verður ríkið óbeinn eig­andi að Icelandair í gegnum banka sem það á að öllu leyti.

7. Þegar stórir lánveitendur

Íslands­banki hefur lengi verið helsti við­skipta­banki Icelandair og lánað honum háar fjár­hæðir. Bankinn er með veð í fast­eignum og flug­hermum félags­ins. Í mars í fyrra lán­aði Lands­bank­inn Icelandair 80 millj­ónir dala, þá um tíu millj­arða króna en nú mun hærri fjár­hæð, gegn veði í tíu Boeing 757 flug­vélum félags­ins, sem eru gamlar og lík­ast til verð­lausar miðað við þá stöðu sem er uppi í heim­inum í dag, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans.

8. Rekstrarlína og ríkisábyrgð

Til við­bótar við allt ofan­greint þá hafa rík­is­bank­arnir tveir heitið því að leggja fram rekstr­ar­línu upp á sam­tals sjö millj­arða króna sem Icelandair mun geta dregið á. Íslands­banki leggur til fjóra af þeim millj­örðum króna en Lands­bank­inn þrjá.

Icelandair mun auk þess fá þrauta­vara­lána­línu upp á 16,5 millj­arða króna, sem félagið getur dregið á ef allur annar pen­ingur er búinn. Íslands­banki og Lands­bank­inn munu skipta því láni á milli sín, og lána 8,25 millj­arða króna hvor ef á lín­una reynir.

Alþingi sam­þykkti nýverið að ábyrgj­ast 90 pró­sent lána­lín­unnar, eða tæp­lega 15 millj­arða króna.

9.Búast við fyrri umsvifum 2024

Icelandair Group hefur gefið það út að félagið búist við því að ná fyrri umsvifum sínum árið 2024. Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, sagði í Kast­ljósi í vik­unni að það það myndi þurfa að draga á lána­lín­una sem rík­is­á­byrgðin hvílir á ef staðan myndi ekki batna næsta sumar. Það myndi þá fleyta Icelandair áfram inn á vorið 2022.

Margir við­mæl­endur Kjarnans innan fjár­mála­geirans hafa hrósað Icelandair fyrir að leggja fram var­færna rekstr­ar­á­ætlun og búast við því að umfram­eft­ir­spurn verði í útboð­inu. Aðrir hafa sagt rekstr­ar­á­ætl­un­ina óraun­hæfa og til að mynda bent á að í henni sé ekki reiknað með sam­keppni frá PLAY, en stjórn­endur þess félags segja það geta farið í loftið á innan við mán­uði þegar aðstæður skána.

10. Harðlega gagnrýnt líka

Hörð gagn­rýni hefur líka verið sett fram á útboðið. Hluti verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefur til að mynda verið stór­orð, en stétt­ar­fé­lög skipa hluta stjórn­ar­manna í sumum af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Það sem stendur mest í for­kálfum hennar er ákvörðun Icelandair að segja upp flug­freyjum og -þjónum fyrr í sumar og í kjöl­farið hótun félags­ins um að ganga til samn­inga við annað stétt­ar­fé­lag að eigin vali. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, kall­aði þetta í grein í Morg­un­blað­inu í gær eina „gróf­ustu aðför að rétt­indum vinn­andi fólks hér á landi á síð­ari tímum, aðför sem er þegar skráð á spjöld sög­unnar“. Málinu hefur verið stefnt fyrir félags­dóm.

[links]Sam­bæri­leg gagn­rýni kom fram í grein Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur og Jónu Sveins­dóttur, stjórn­ar­manna í Eflingu sem báðar sitja í full­trúa­ráði Gildis líf­eyr­is­sjóð, sem birt­ist um helg­ina. Þar sagði m.a.: „Við mun­um aldrei una við það að eft­ir­launa­sjóður okk­ur verði not­aður til að niður­greiða ta­prekst­ur stór­fyr­ir­tæk­is­ins Icelandair og árás­ir þess á grunn­rétt­indi launa­fólks. Aldrei."

Gagn­rýnin hefur líka komið ann­ars staðar frá. „Þetta er gríð­ar­leg áhætta og algjör óvissa hvað kemur út úr þessu,“ sagði Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans, um mögu­lega þátt­töku íslenskra líf­eyr­is­sjóða í hluta­fjár­út­boð­inu á nýlegu mál­þingi Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands. Hann og Yngvi Örn Krist­ins­son, hag­fræð­ingur Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, lýstu þar báðir yfir efa­semdum um að þátt­taka íslenskra líf­eyr­is­sjóða í útboð­inu væri rétt­læt­an­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár