„Þannig mun okkur takast að koma okkur út úr þessu COVID-fári“

Sótt­varna­læknir hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað þar sem hann leggur til að landamæra­skimun verði haldið áfram með sama hætti og verið hefur. Hann ítrekar mik­il­vægi per­sónu­legra sótt­varna, skimunar og að beita ein­angrun og sótt­kví.

Þórólfur Guðnason og Alma Möller.
Þórólfur Guðnason og Alma Möller. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur að ástæðan fyrir því að eng­inn af þeim 97 sem nú eru með virkt smit hér á landi sé alvar­lega veikur skýrist af ald­urs­sam­setn­ingu hóps­ins. Flestir hinna sýktu eru ungt fólk.

Þetta sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Fjögur ný inn­lands­smit voru greind í gær. 97 eru með COVID-19 og í ein­angrun. Enginn liggur á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins. Rað­grein­ing Íslenskrar erfða­grein­ingar hefur sýnt að enn er það veira af sama afbrigði sem er að breið­ast út og hefur nú greinst hjá fólki í öllum lands­hlutum. Segir hann okkur engu nær að kom­ast að upp­runa þeirrar veiru.

Af þeim fjórum sem greindust í gær voru þrír í sótt­kví.

[adspot]

Frá 15. júní hafa 94 virk smit greinst inn­an­lands. Frá þeim tíma hafa 115 þús­und far­þegar komið til lands­ins og sýni verið tekin frá um 74 þús­und þeirra.

[links]Íslensk erfða­grein­ing hefur ski­mað 4.400 manns síð­ustu daga og greint fimm með virkt smit. „Við erum að sjá svip­aðan fjölda þó að sveiflur séu milli daga, en ekki mikla aukn­ingu í nýjum til­fellum hér inn­an­lands,“ sagði Þórólfur á fund­inum. Benti hann á að skimun ÍE gæfi vís­bend­ingu um að smitið væri ekki mjög útbreitt í sam­fé­lag­inu.

Af þessum sökum telur Þórólfur ekki ástæðu til að herða á sam­fé­lags­legum aðgerðum sem nú eru í gildi. Nokkurn tími mun líða þar til við förum að sjá fyrir end­ann á þessu hópsmiti, „eða sam­fé­lags­smiti ef menn vilja kalla það það.“

Þórólfur sendi heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað í morgun þar sem hann leggur til að haldið verði áfram að skima á landa­mærum eins og gert hefur verið til þessa. Að ekki verði slakað á því. Segir hann skimun­ina hafa sýnt gagn­semi sína í því að lág­marka áhætt­una á því að fá veiruna hingað til lands.

Land­spít­al­inn er hins vegar kom­inn yfir afkasta­getu sína í sýna­tökum. Sagði Þórólfur að Íslensk erfða­grein­ing hefði boð­ist til að koma þar til aðstoðar þar til afkasta­getan eykst á Land­spít­ala í haust.

Í minn­is­blað­inu lagði Þórólfur einnig til að áfram yrðu tekin sýni hér inn­an­lands. „Minn­is­blaðið er nú hjá ráð­herra og end­an­leg ákvörðun liggur hjá stjórn­völdum.“

Þá hvatti Þórólfur alla til að við­hafa ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir og virða tveggja metra regl­una. „Þannig mun okkur takast að koma okkur út úr þessu COVID-fári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár