Neyðarstig virkjað í vetur er fyrstu innanlandssmitin greindust

Daginn sem fyrstu inn­an­lands­smitin voru stað­fest hér á landi í vetur var við­bún­aður vegna far­ald­urs­ins færður af hættu­stigi á neyð­ar­stig. Und­an­farið hafa fjórtán inn­an­lands­smit verið stað­fest og enn er við­bún­aður á hættu­stigi.

Þegar faraldurinn stóð sem hæst í vetur lágu margir inni á gjörgæslu í einu. Þeir sem sýktir eru núna eru ekki alvarlega veikir.
Þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst í vetur lágu margir inni á gjör­gæslu í einu. Þeir sem sýktir eru núna eru ekki alvar­lega veikir. Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn

Í dag mun koma í ljós hvort að aðgerðir gegn útbreiðslu kór­ónu­veirunnar verði hertar að nýju, bæði inn­an­lands og við landa­mærin. Beðið er eftir nið­ur­stöðum úr sýna­tökum gær­dags­ins og rað­grein­ingu sem mun varpa ljósi á upp­runa veirunnar sem greinst hefur hjá fólki hér á landi síð­ustu daga. Í gær voru 24 virk smit í land­inu. Þar af höfðu fjórtán smit­ast inn­an­lands og ekki var vitað um upp­runa tveggja smit­anna. Ekki hafa jafn­margir verið sýktir af COVID-19 sam­tímis síðan í byrjun maí.

Sjö ein­stak­lingar á Akranesi hafa greinst með veiruna. Þeir eru vinnu­fé­lagar og búa saman í tveimur íbúðum í bænum. Heim­sókn­ar­bann hefur verið sett á hjá Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands.

Alma Möller land­læknir sagði við RÚV í gær­kvöldi að nið­ur­stöður úr sýna­tökum og rað­grein­ingu ættu að liggja fyrir snemma í dag.

Þróunin ógnvekjandi

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sagði í fréttum RÚV í gær að hann hefði áhyggjur af því að kór­ónu­veiran væri aftur komin á flug á Íslandi og sagði að þróun síð­ustu daga væri ógn­vekj­andi.

Sagði Kári það áhyggju­efni að þrír ein­stak­lingar væru nú sýktir af veiru sem allt benti til að væri komin frá sömu upp­sprettu. Þre­menn­ing­arnir virt­ust hins vegar ekki tengj­ast á nokkurn hátt, „og það leiðir mann að þeirri nið­ur­stöðu að það hljóti að vera ein­stak­lingar milli þess­ara aðila þannig að það séu fleiri úti í sam­fé­lag­inu sýktir af þess­ari veiru úr sama stofni,“ sagði Kári við RÚV. Einnig tók hann fram að sumir þeirra sem greinst hefðu síð­ustu daga hefðu verið með mikið magn veirunnar í lík­am­anum og því mjög smit­andi.

Fyr­ir­tækið hefur hafið skimun fyrir veirunni í sam­fé­lag­inu á ný auk þess sem það sinnir rað­grein­ingum til að finna upp­runa veirunnar.

Óvissa, hætta, neyð

Þann 27. jan­úar var lýst yfir óvissu­stigi almanna­varna vegna nýju veirunnar sem þá var farin að breið­ast út um heim­inn. Um mán­uði síðar eða þann 28. febr­úar, sama dag og fyrsta smit kór­ónu­veirunnar greind­ist hér á landi, lýsti rík­is­lög­reglu­stjóri yfir hættu­stigi almanna­varna í sam­ráði við sótt­varna­lækni og emb­ætti land­læknis.

[links]Aðeins nokkrum dögum síðar, þann 6. mars, var við­bún­að­ur­inn svo hækk­aður upp á neyð­ar­stig þegar fyrstu inn­an­lands­smitin voru stað­fest. Tíu manns áttu eftir að deyja vegna COVID-19 og hund­ruð eftir að sýkj­ast áður en ákveðið var að lækka almanna­varna­stigið niður í hættu­stig á ný þann 25. maí.

Skil­grein­ing á hættu­stigi vegna heims­far­ald­urs er eft­ir­far­andi: „Umtals­verðar hóp­sýk­ingar brjót­ast út hjá mönnum en þær eru enn stað­bundnar. Veiran aðlag­ast mönnum í vax­andi mæli og umtals­verð hætta er á heims­far­aldri. Sýking kann að hafa verið stað­fest hér á landi en lýsa má hættu­stigi þó sýk­ing hafi ekki borist til lands­ins. Faraldur er í rénun, færri til­felli grein­ast en sýk­ing er enn til staðar í sam­fé­lag­inu. Enn er hætta á að far­aldur taki sig upp aftur.“

Í til­kynn­ingu almanna­varna á sínum tíma um hækkun upp á neyð­ar­stig kom fram að „virkjun neyð­ar­stigs hefur ekki telj­andi áhrif á almenn­ing umfram hættu­stig“ en að á neyð­ar­stigi væri unnið eftir ýmsum ráð­stöf­unum, m.a. áætl­unum um vöktun og far­sótt­ar­grein­ingu ásamt því að tryggja að sótt­varna­ráð­stöf­unum væri beitt.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að til greina kæmi að breyta við­bún­að­ar­stigi vegna nýju smit­anna sem greinst hafa síð­ustu daga. Hættu­stig er enn í gildi en það kann þá að breyt­ast í dag en almanna­varnir, land­læknir og full­trúi sótt­varna­læknis munu hitt­ast á fundi snemma dags og taka ákvörðun um næstu skref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár