Til skoðunar að taka upp tveggja metra regluna á ný og þá sem „reglu“ en ekki tilmæli

Á fundi heil­brigð­is­ráð­herra með almanna­vörnum, land­lækni, sótt­varna­lækni og rík­is­lög­reglu­stjóra síð­degis í dag var rætt hvort herða þyrfti gild­andi sam­komu­tak­mark­anir til að hefta útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Ákvarð­anir verða teknar á morgun.

Frá upplýsingafundi almannavarna og landlæknisembættisins í dag.
Frá upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins í dag. Mynd: Lögreglan

Á fundi heil­brigð­is­ráð­herra með almanna­vörnum, land­lækni, sótt­varna­lækni og rík­is­lög­reglu­stjóra síð­degis í dag var rætt hvort herða þyrfti gild­andi sam­komu­tak­mark­anir til að hefta útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Til skoð­unar er að taka tveggja metra nánd­ar­mörkin upp að nýju og segir í til­kynn­ingu almanna­varna að þau verði þá ekki lengur „til­mæli“ heldur „regla“.[links]

Samkvæmt til­kynn­ingu almanna­varna var líka rætt á fund­inum var hvort breyta þyrfti áherslum eða herða aðgerðir á landa­mærum. Einnig var rætt um að hækka við­bún­að­ar­stig almanna­varna, en engar ákvarð­anir voru teknar á fund­inum, „enda beðið gagna og upp­lýs­inga úr grein­ingu sýna.“

Eins og fram hefur komið í dag eru tutt­ugu og fjórir ein­stak­lingar í ein­angrun með stað­fest smit, en þar af eru 14 inn­an­lands­smit. 173 eru í sótt­kví. Ekki hefur tek­ist að rekja tvö inn­an­lands­smit en unnið er að smitrakn­ingu og rað­grein­ingu sýna.

Sam­ráðs­hópur mun koma aftur saman til fundar á morgun, en í til­kynn­ingu almanna­varna segir að ákvörð­unin muni byggja á þeim nið­ur­stöðum sem nú er beðið eftir.

Hafa áhyggjur af verslunarmannahelginni

„Almanna­varnir og sótt­varna­yf­ir­völd hafa áhyggjur af kom­andi versl­un­ar­manna­helgi þar sem við­búið er að margir verði á far­alds­fæti og hætta á að smit geti borist enn frekar út í sam­fé­lag­inu. Áríðandi er að fólk taki upp og haldi á lofti ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum, virði til­mæli um nánd­ar­mörk og verndi við­kvæma hópa. Fyr­ir­tæki og stofn­anir eru hvött til þess að skerpa á sótt­vörnum og leið­bein­ingum. Þá er áríð­andi að fólk virði ein­angrun, sótt­kví og taki heim­komusmit­gát af fyllstu alvöru,“ segir í til­kynn­ingu almanna­varna.

Þar er einnig farið yfir helstu ein­kenni COVID-19 sýk­ingar og minnt á að þau eru ekki alltaf þau sömu. Þau minna þó oft á venju­lega flensu.

„Einkenni geta verið aðeins eitt af eft­ir­töldu, það er hiti, háls­sær­indi, hósti, slapp­leiki, bein- og vöðva­verkir og skyndi­lega breyt­ing eða tap á bragð- og lykt­ar­skyni. Hafi fólk grun um smit á að halda sig heima, hafa sam­band við sína heilsu­gæslu í gegnum síma, við net­spjall Heilsu­veru.is eða við Lækna­vakt­ina í síma 1700. Heil­brigð­is­starfs­fólk mun þar ráð­leggja um næstu skref og hvar sýna­taka muni fara fram ef þarf,“ segir í til­kynn­ingu almanna­varna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár