Árið 2019: Barátta barnanna og bakslagið í umræðunni

Ársins 2019 verður minnst sem árs­ins þegar mann­kynið átt­aði sig á yfir­vof­andi ham­fara­hlýnun, með Gretu Thunberg í far­ar­broddi. Leið­togar þeirra ríkja sem menga mest draga þó enn lapp­irnar. Fals­fréttir héldu áfram að rugla umræð­una og upp­ljóstr­arar um hegðun þeirra valda­miklu fengu að finna fyrir því.

Donald og Greta
Donald og Greta Tvær af áhrifa­mestu mann­eskjum heims í ár hitt­ust í haust.

Börnin bjarga heiminum

Greta ThunbergSænska stúlkan hefur vakið mikla athygli síðan hún hóf að mót­mæla í fyrra.

Maður árs­ins hjá tíma­rit­inu Time þetta árið er sænski 16 ára lofts­lagsaktí­vist­inn Greta Thunberg og er engan að undra. Greta hóf skóla­verk­föll sín árið 2018 til að vekja athygli á áhrifum lofts­lags­breyt­inga, en það var í ár sem for­dæmi hennar varð að raun­veru­legri hreyf­ingu. Í haust hóf hún langt ferða­lag sitt til Banda­ríkj­anna á bát knúnum sól­ar­orku til þess að ávarpa lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, gerði lítið úr nafn­bót Gretu á Twitter. „Svo fárán­legt,“ skrif­aði hann. „Greta verður að vinna í reiði­stjórn­un­ar­vanda­mál­inu sínu og fara svo á góða gam­al­dags bíó­mynd með vini! Slappaðu af, Greta, slapp­aðu af!“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár