Hægt að búa til veirur á rannsóknarstofum

Banda­ríkja­for­seti seg­ist hafa upp­lýs­ingar um að nýja kór­ónu­veiran hafi verið búin til á rann­sókn­ar­stofu. Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur segir ekk­ert benda til þess þó að fræði­lega séð sé hægt að búa til veiru úr öðrum þekktum veirum.

Arnar Pálsson, erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Arnar Pálsson, erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Ingvarsson/Háskóli Íslands

Sögu­sagnir hafa nær allt frá upp­hafi far­ald­urs COVID-19 verið á sveimi um að nýja kór­ónu­veiran hafi verið búin til á rann­sókn­ar­stofu. Sam­sær­is­kenn­ing­arnar ganga út á það að kín­versk yfir­völd hafi staðið að baki því að búa hana til og dreifa – jafn­vel til þess eins að koma í veg fyrir end­ur­kjör Donalds Trump sem for­seta Banda­ríkj­anna.

COVID-19 er nýr sjúk­dómur og honum veldur ný veira, SARS-CoV-2. Það er ekki undra að ein fyrsta spurn­ingin sem fólk spyrji sé: Hvaðan kom hún?

[adspot]

Til að fá svör við þessu leit­aði Kjarninn til erfða­fræð­ings­ins Arnars Páls­sonar, pró­fess­ors í líf­upp­lýs­inga­fræði við Háskóla Íslands. Hann er einn þeirra fræði­manna sem svara spurn­ingum almenn­ings á Vís­inda­vefnum. Síðustu vikur hefur spurn­ingum er varða COVID-19 rignt inn og Arnar m.a. verið iðinn við að svara spurn­ingum um stökk­breyt­ingar veirunnar.

Á Vís­inda­vefnum er það Jón Magnús Jóhann­es­son, deild­ar­læknir á Land­spít­al­anum, sem ritar svar við spurn­ing­unni: Hvað með þær sögu­sagnir að kór­ónu­veiran eigi sér upp­runa á rann­sókn­ar­stofu?

Jón skrifar að það sé ekki að ástæðu­lausu að fólk velti þessu fyrir sér. Mörg dæmi séu um sýkla sem hafa borist í starfs­fólk á rann­sókn­ar­stofum og ýmist valdið stökum veik­indum eða jafn­vel litlum far­öldrum.

„Ef þetta ætti við SARS-CoV-2 væru aðstæður hins vegar tals­vert öðru­vísi,“ skrifar Jón. „SARS-CoV-2 er ný veira sem veldur nýjum sjúk­dómi og er tals­vert frá­brugðin þeim kór­ónu­veirum sem geta valdið sjúk­dómi í mönnum. Þetta myndi því þýða að hún hefði verið mann­gerð. Sem betur fer er hægt að full­yrða, án nokk­urs vafa, að SARS-CoV-2 kom ekki upp­runa­lega frá rann­sókn­ar­stofu.“

Klippt og límt-aðferðin

Kór­ónu­veirur er fjöl­skylda veira sem grein­ast helst í spen­dýrum og fuglum. Vitað er að þær finn­ast einnig víðar ef þeirra er leitað sér­stak­lega. Talið er að þær kór­ónu­veirur sem hingað til hafa sýkt menn hafi upp­runa­lega komið frá dýrum.

Nánustu „skyld­menni“ SARS-CoV-2 séu veir­urnar SARS-CoV og MERS-CoV. Þær komu báðar úr leð­ur­blökum en bár­ust í menn úr milli­hýslum (sú fyrr­nefnda úr einni teg­und katt­ar­dýra og sú síð­ar­nefnda úr drómed­ara). Mjög lík­legt er að SARS-CoV-2 hafi einnig komið upp­runa­lega úr leð­ur­blökum, þótt óvíst sé hvort milli­hýs­ill hafi þar komið við sögu.

Arnar segir í sam­tali við Kjarnann að fræði­lega séð sé hægt að setja saman veiru úr öðrum þekktum veirum. Þá er í raun notuð aðferð sem hægt er að lýsa sem „copy-paste“ í ein­földu máli. Pörtum úr ólíkum veirum er splæst saman til að búa til nýja. En slíkt myndi alltaf sjást í grein­ingu á veirunni, hlutar af erfða­meng­inu væru þá sam­bæri­legir við hluta úr erfða­mengi þekktra veira. „En til að kom­ast að því þarf vit­neskja um þekktu veir­urnar að vera til­tæk í opnum gagna­grunnum,“ bendir Arnar á.

Hvað varðar nýju kór­ónu­veiruna þykir ljóst að hún beri þess engin ein­kenni að vera sam­sett úr öðrum veirum. „Öll gen í erfða­mengi hennar eru frá­brugðin röðum sem þekktar eru í öðrum skyldum veirum.“

En hvaðan kom hún þá?

Fjöldi rann­sókna hafa skoðað erfða­efni SARS-CoV-2 í þaula og borið saman við aðrar kór­ónu­veirur, bæði úr mönnum og öðrum dýrum, skrifar Jón Magnús í svari sínu á Vís­inda­vefnum. Fjöldi stökk­breyt­inga í mis­mun­andi stofnum veirunnar stað­festa að SARS-CoV-2 er ný veira sem hefur nýlega borist til manna.

[links]Um 75 pró­sent af nýlegum smit­sjúk­dómum hafa borist frá dýrum í menn. Þar af eiga 70 pró­sent upp­runa sinn í villtum dýrum. Allir heims­far­aldrar frá upp­hafi 20. aldar hafa komið frá dýrum. Spænska veikin, svo dæmi sé tekið, átti lík­lega upp­runa sinn úr eld­is­fuglum. Svínaflensan sem geis­aði árið 2009 kom lík­lega einnig úr fuglum en með svín sem lík­legan milli­hýsil, skrifar Jón Magnús í einu svari sínu á Vís­inda­vefnum.

Áætlað er að nýir smit­sjúk­dómar felli hund­ruð þús­unda manna á hverju ári.

Arnar bendir á að á síð­ustu tveimur ára­tugum hafi tvær kór­ónu­veirur stokkið yfir í menn, SARS-CoV og MERS-CoV. Líklega gerð­ist það vegna dráps og neyslu á villtum dýrum. Gögnin sýna skýrt að nýja veiran hefur aðra erfða­sam­setn­ingu en bæði SARS og MERS og það stað­festir að um nýja sýk­ingu er að ræða. „Í þessu sam­hengi er full ástæða til að minna á að sú árátta fólks að drepa og éta villt dýr er kveikjan að COVID-19 far­sótt­inni,“ segir Arnar en bendir á að neysla kjöts af hús­dýrum hafi ekki sömu hættu í för með sér, enda sótt­varnir yfir­leitt góðar í land­bún­aði. „Ef fólk hefði hlustað á mál­flutn­ing veiru­fræð­inga og nátt­úru­vernd­ar­sinna sem hafa bent á hætt­una af slíkri iðju, væri mann­kynið ekki í þess­ari stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár