Leit að lækningu ýmsum þyrnum stráð

Hvernig er hægt að þróa bólu­efni og lyf við nýjum sjúk­dómi á met­tíma og koma þeim svo til sjö millj­arða manna? Þörfin er gríð­ar­leg og þrýst­ingur á að finna lausn hefur orðið til þess að vís­inda­menn reyna að stytta sér leið sem hefur áhættu í för með sér.

Tryggja verður að allir þeir sem á þurfi að halda geti fengið bóluefni þegar það verður aðgengilegt.
Tryggja verður að allir þeir sem á þurfi að halda geti fengið bólu­efni þegar það verður aðgengi­legt. Mynd: EPA

Þegar fyrsta til­felli áður óþekkts veiru­sjúk­dóms var greint í lok síð­asta árs hófst þegar örvænt­ing­ar­full leit að lækn­ingu. Fljót­lega var ljóst að sýk­ingin var óvenju­lega smit­andi og lífs­hættu­leg og í öllum hornum heims voru ljósin kveikt á rann­sókn­ar­stofum allan sól­ar­hring­inn og vís­inda­menn störðu á veiruna skæðu í smá­sjám dag­ana langa, ákveðnir í að finna leið til að afvopna hana.

Leit þeirra hefur þegar skilað ákveðnum árangri. Jafnvel ein­stökum í sögu­legu til­liti. Aðeins fjórum mán­uðum eftir að veiran upp­götv­að­ist eru þegar hafnar klínískar rann­sóknir á nýjum bólu­efnum og lyfja­með­ferðum. Beri þær ávöxt gætum við færst hratt nær því að kom­ast frá þeim vanda sem COVID-19 hefur skapað.

Tæplega átta­tíu rann­sóknir á nýjum bólu­efnum eru hafnar. Hefð­bundna leiðin við þróun bólu­efna er að nota veikl­aða útgáfu af veirunni sem því er ætlað að veita vörn gegn, nógu líka þeirri upp­runa­legu svo að ónæm­is­kerfið telji sig þekkja hana, nái að verj­ast henni og koma í veg fyrir sýk­ingu. Fara þarf hægt og var­lega í slíkum rann­sóknum því hætta er á því að veikl­aða veiran sé ekki eins skað­laus og von­ast var eftir.

[adspot]

En í heims­far­aldri liggur okkur á. Og því er reynt að beita öðrum aðferðum við þróun bólu­efnis til að flýta fyrir. Flestar þær rann­sóknir sem nú er unnið að fara því ekki þessa hefð­bundnu leið. Þær eru byggðar á þeirri hug­mynd að ónæm­is­kerfið þurfi ekki að standa and­spænis allri veirunni til að hefja leift­ur­sókn gegn sýk­ingu. Það þurfi aðeins ákveð­inn hluta úr henni, pró­tínið sem myndar „kór­ónu“ hennar eða alls ekk­ert, heldur aðeins upp­lýs­ingar úr erfða­lykli hennar. Í þessum nýstár­legu rann­sóknum skiptir sköpum að erfða­efni veirunnar hafi verið rað­greint, líkt og Íslensk erfða­grein­ing gerir nú.

En ef bólu­efni finnst eða lyf sem virka, er þá víst að allir jarð­ar­búar muni hafa að því jafnan aðgang?

„Við munum aðeins stöðva COVID-19 með því að standa saman,“ sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) í gær. „Ríki, heil­brigð­is­yf­ir­völd, fram­leið­endur og einka­geir­inn verða öll að vinna saman og tryggja að upp­skera vís­inda og rann­sókna geti gagn­ast öllum.“

Í til­kynn­ingu sem WHO birti í gær er greint frá „for­dæma­lausri“ vilja­yf­ir­lýs­ingu þjóð­ar­leið­toga, stofn­anna og lyfja­fram­leið­anda um að flýta þróun bólu­efna og lyfja­með­ferða og koma upp­lýs­ing­unum til allrar heims­byggð­ar­innar. Verk­efnið er kallað ACT.

Veiran virðir engin landa­mæri en pen­ingar, þekk­ing og aðstaða er oft læst innan þeirra. Vestrænu ríkin eru því mun betur í stakk búin en önnur til að stunda rann­sóknir af miklum móð og hefja fram­leiðslu lyfja þegar þar að kemur. Þau geta líka, með pen­ing­ana að vopni, tryggt sér birgðir af lyfjum sem þegar er reynt að nýta til með­ferðar hjá COVID-sjúk­lingum. Og hættan er sú að innan ein­stakra landa skap­ist þrýst­ingur á að finna fyrst og fremst lækn­ingu fyrir þeirra eigin þjóð.

Bæði Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið hafa þegar sett hömlur á útflutn­ing varn­ar­bún­aðar. Óttast er að slíkt hið sama verði gert með bólu­efni. Í svínaflens­unni árið 2009 varð útflutn­ingur bólu­efna að hápóli­tísku máli í Banda­ríkj­unum. Ástæðan er sú að bólu­efni eru helsta lang­tíma­lausnin sem fyr­ir­finnst í far­aldri smit­sjúk­dóms.

Þess vegna er gríð­ar­lega mik­il­vægt að nálg­ast málið á alþjóða­vísu.

Hvernig á að forgangsraða?

Unnið hefur verið að því í margar vikur að fá sem flesta að borð­inu. Ef það tekst verður þetta í fyrsta sinn í sög­unni sem hægt verður að fram­leiða, ef allt gengur að óskum, bólu­efni öllum til handa á met­tíma, jafn­vel um mitt næsta ár, ef bjart­sýn­ustu spár ganga eftir.

Ýmis ljón eru þó í veg­inum. Þó að farið verði í mikla fjölda­fram­leiðslu á bólu­efni er víst að fram­boðið verður að minnsta kosti til að byrja með tak­markað. Því er vilji til þess að gera áætlun um hvernig dreif­ingu þess verður for­gangs­raðað. Hún gæti falist í því að verja fyrst heil­brigð­is­starfs­menn og annað fram­línu­fólk og íbúa á stöðum þar sem virk hópsmit er að finna.

Mörg góð­gerða­sam­tök og alþjóða­stofn­anir, sem sér­þekk­ingu hafa á hjálp­ar­starfi í fátækum löndum heims, tóku höndum saman með WHO um að gera áætl­anir sem tryggja eiga jafnan aðgang að bólu­efni og lækn­ingu við COVID-19. Rík­is­stjórnir margra landa eru einnig þátt­tak­endur en eftir því hefur verið tekið að sú banda­ríska er það ekki.

[adspot]

Meðal þeirra sam­taka sem koma að verk­efn­inu eru Gates-sjóð­ur­inn og GAVI, sjóðir sem hafa lagt fjár­magn í bar­átt­una gegn HIV, malaríu og berklum og hafa langa reynslu af því að glíma við heilsu­far­sógnir, m.a. með því að útvega lyf og koma þeim til þeirra sem mest þurfa á að halda.

Markmið sam­vinn­unnar eru háleit en fjár­mögnun verk­efn­is­ins er ein helsta áskor­unin. Vonast er til þess að rík­is­stjórnir og stofn­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna muni leggja sín lóð á vog­ar­skál­arnar.

Andrew Witty, fyrr­ver­andi for­stjóri lyfj­aris­ans GlaxoSmit­hKline, mun leiða bólu­efn­is­hluta ACT-verk­efn­is­ins. Það verður meðal ann­ars í hans verka­hring að velja bestu rann­sókn­ar­verk­efnin, fjár­magna þá þró­un­ar­vinnu – hvort sem hún skilar árangri eða ekki – og finna leiðir til að deila nið­ur­stöð­unum öllum til heilla.

„Okkar sam­eig­in­lega mark­mið er að tryggja að allir hafa aðgang að tólum til að fyr­ir­byggja, greina, með­höndla og sigr­ast á COVID-19,“ sagði fram­kvæmda­stjóri WHO. „Ekkert land og engin stofnun getur gert þetta ein.“

Til­raunir með bólu­efni á mönnum gegn nýju kór­ónu­veirunni eru þegar hafnar, m.a. við Oxford-háskóla. Alls óvíst er hvort að þær skili árangri og hvort það hafi borgað sig að freista þess að stytta sér leið með hjálp erfða­vís­ind­anna. Bjart­sýn­ustu menn telja að bólu­efni gæti verið til­búið fyrir mitt næsta ár en aðrir telja að minnsta kosti tvö ár í það.

Enginn mun fagna eins og Þórólfur

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir er einn þeirra sem hefur ekki miklar vænt­ingar til þess að bólu­efni komi á markað á næstu mán­uðum.

„Þetta bólu­efni sem menn eru að búa til núna er algjör­lega nýtt bólu­efni,“ sagði hann á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Þetta er bólu­efni með algjör­lega nýjum efnum sem eng­inn þekkir fyrir og menn verða að vera vissir um það, ef þeir ætla að fara að bólu­setja stóran part af þjóð­inni, að bólu­efnið sé öruggt. Það verður að vera búið að rann­saka það á mjög stórum hópi og fá úr því skorið að það sé raun­veru­lega öruggt. Ég bind ekki mjög miklar vonir við að það komi í bráð. Ef að það ger­ist, ef gott bólu­efni kemur fram á sjón­ar­sviðið mun eng­inn fagna því eins mikið og ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár