Ef við getum ekki tekist á við þessa veiru – hver þá?

Alma Möller land­læknir segir að Íslend­ingar séu dug­leg og upp­lýst þjóð. „Við kunnum að standa saman þegar á þarf að halda og ef við getum ekki tek­ist á við þessa veiru – hver þá?“

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Um 650 manns hafa skráð sig í bak­varð­ar­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Alma Möller land­læknir fagn­aði þessu sér­stak­lega á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hún sagði nýjar stéttir að bjóða fram krafta sína, m.a. nátt­úru­fræð­inga í heil­brigð­is­þjón­ustu og sjúkra­þjálf­ara. Þá geta lækna- og hjúkr­un­ar­fræði­nemar nú skráð sig í sveit­ina og hafa við­brögðin frá þeim hópum þegar verið góð.

Alma hvatti svo íslenska þjóð til dáða með þessum orðum: „Íslend­ingar eru dug­leg og upp­lýst þjóð. Við eigum frá­bær­lega menntað og dug­legt heil­brigð­is­starfs­fólk. Við erum með góða inn­viði. Við kunnum að standa saman þegar á þarf að halda og ef við getum ekki tek­ist á við þessa veiru – hver þá?“

[adspot]

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir greindi frá því á fund­inum að 60 pró­sent nýrra smita síð­asta sól­ar­hring­inn hafi greinst hjá fólki sem þegar er í sótt­kví. Þetta segir hann ánægju­legt og styðji enn fremur þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi sem fel­ast í því að greina fljótt, ein­angra smit­aða og beita sótt­kví.

Á Land­spít­al­anum liggja nú ell­efu sjúk­lingar vegna COVID-19. Tveir eru á gjör­gæslu en hvor­ugur þeirra er í önd­un­ar­vél.

[links]Sextíu ný smit greindust síð­asta sól­ar­hring­inn sem er um 16 pró­sent af öllum sýnum sem tekin voru á sama tíma­bili. Þórólfur sagði að erfitt væri að sjá það á þess­ari stundu hvort að við­búið væri að verstu spár um útbreiðslu muni ræt­ast eða þær bestu. Sveiflan í smitum væri tölu­verð á milli daga.

Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu daga en dag­ana á undan og engin sýni hafa verið tekin hjá Íslenskri erfða­grein­ingu í tvo sól­ar­hringa. Þetta skýrist af vöntun á sýna­tökupinnum. Þórólfur sagð­ist binda vonir við það að fleiri pinnar komi til lands­ins í vik­unni en benti einnig á að verið væri að kanna gæði sýna­tökupinna sem stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur á. „Ef það reyn­ist vel þá er hægt að gefa aftur í í sýna­tökum.“

Haldið áfram að þvo og spritta

Þórólfur og Alma hvöttu lands­menn áfram að taka þátt í sam­fé­lags­legum aðgerðum sem fel­ast m.a. í ítar­legu hrein­læti, hand­þvotti og sprittun sem og að halda fjar­lægð á milli sín og vernda við­kvæma hópa. „Þetta er ákveðin áskorun, að halda þetta út, en ég er viss um að ef við gerum þetta og virðum þá mun okkur takast vel.“

Nokkur umræða hefur verið í sam­fé­lag­inu um sam­göngu­bann í far­aldr­inum. Þórólfur segir að slík bönn myndu að öllum lík­indum skila mjög litlu. Það sýni reynslan og það sýni fræðin. Ströng­ustu sam­göngu­bönn myndu aðeins fresta far­aldri um nokkra daga eða vikur. En vand­inn væri þá ekki úr sög­unni. Þegar opnað yrði aftur og veiran ekki útdauð gæti far­ald­ur­inn blossað upp að nýju. Því séu yfir­völd ekki með sam­göngu­bann á teikni­borð­inu.

Samkvæmt spálík­an­inu nú og þróun far­aldra almennt þá tekur það far­aldur 6-8 vikur að ganga yfir. Spurn­ingin nú er hins vegar sú hvað topp­ur­inn verður hár og hversu vel tekst að teygja á far­aldr­inum, sagði Þórólfur. Því er spáð að toppnum verði náð um miðjan apríl. „En þetta getur teygst alveg inn í maí og hugs­an­lega lengur en það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár