„Mjög lítið smit meðal barna“

„Ég held að við getum full­yrt að það er ekki sjá­an­legt veru­legt smit meðal barna hér í þessu sam­fé­lagi,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Innan við eitt pró­sent barna sem hafa farið í sýna­töku hafa reynst smituð.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Alma Möller og Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, á fundinum í dag.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason, Alma Möller og Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Fá börn yngri en tíu ára hafa greinst með kór­ónu­veiruna á Íslandi. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að hægt sé full­yrða út frá tölum hingað til að ekki sé veru­legt smit af kór­ónu­veirunni í þessum ald­urs­hópi.

Þórólfur greindi á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag frá sam­an­tekt sem unnin hefur verið um börn yngri en tíu ára. Á veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans hafa greinst þrjú börn yngri en tíu ára af 268 börnum sem gerir rúm­lega 1 pró­sent. Hjá Íslenskri erfða­grein­ingu hefur ekk­ert barn yngri en tíu ára greinst með veiruna af þeim 433 sem þangað hafa farið í sýna­töku.

„Ég held að við getum full­yrt út frá þessum tölum að það er ekki sjá­an­legt veru­legt smit meðal barna hér í þessu sam­fé­lagi,“ sagði Þórólfur, „þannig að þessi umræða sem hefur verið hér und­an­farið um mikið smit hjá börnum og smit­hættu í skólum virð­ist ekki raun­ger­ast í þessum tölum sem við erum að sjá núna hvað svo sem síðar verður.“

[adspot]

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum í dag eru einnig fluttar góðar fréttir af börnum í þessum far­aldri. „Það eru tví­mæla­laust góðar fréttir að af öllum þeim tugum barna sem voru skimuð úr 1.-4. Bekk [Grunn­skóla Vest­manna­eyja] var ekk­ert þeirra með kór­óna­veiruna. Ekkert sýni greind­ist heldur jákvætt hjá öllum þeim fjöl­mörgu sem sýni voru tekin hjá í 7. Bekk. Börnin virð­ast ekki vera mikið útsett fyrir smiti eða vera að dreifa smiti og það eru gríð­ar­lega góðar fréttir fyrir okkur öll. Tvö börn hafa þó greinst með veiruna hér annað 2ja ára og hitt 15 ára en þau eru ekki mikið lasin. Sá elsti sem greinst hefur hér er 77 ára.“

12% sýna síðasta sólarhrings jákvæð

Ekki er hægt að full­yrða hvað veldur því að óvenju­lega fá til­felli greindust hér á landi síð­asta sól­ar­hring­inn, að sögn Þórólfs. Af 183 sýnum sem tekin voru reynd­ust 22 jákvæð eða um 12%. Í gær var hlut­fall jákvæðra sýna 25%.

„Það er erfitt að útskýra nákvæm­lega af hverju þessi fækkun er,“ sagði Þórólfur, „hvort þetta er raun­veru­leg [fækkun] eða sveiflur á milli daga, ég hall­ast nú frekar að því.“

Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu daga vegna yfir­vof­andi skorts á sýna­tökupinnum sem nauð­syn­legir eru til rann­sókn­anna. Þórólfur segir að mögu­lega hafi það líka eitt­hvað að segja um nið­ur­stöð­urnar nú.

Um helm­ingur nýgreindra eru fólk sem hefur verið í sótt­kví.

Enginn á gjörgæslu

Þórólfur sagði að sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum lægju þrettán sjúk­lingar á Land­spít­al­anum með COVID-19. Enginn þeirra er á gjör­gæslu.

Þórólfur sagði að far­ald­ur­inn væri enn í vexti en þó ekki miklum sam­kvæmt tölum síð­asta sól­ar­hrings. „Við þurfum að taka lengra tíma­bil, nokkra daga í einu, til að geta talað um hvort hann er í miklum eða litlum vexti.“

[links]Samkvæmt spálík­an­inu mun far­ald­ur­inn lík­lega ná hámarki um miðjan apríl. Smit gætu um miðjan apríl verið á bil­inu 2.500—6.000 og um 90-200 ein­stak­lingar þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna sjúk­dóms­ins. Spáin um fjölda þeirra sem þurfa á inn­lögn að halda fylgir ekki nákvæm­lega tölum um smit. Þórólfur segir það skýr­ast af því að þeir sem eru að grein­ast hér á landi séu til­tölu­lega ungir ein­stak­lingar, „og sam­kvæmt því sem að við vitum þá er ólík­legra að þeir veik­ist alvar­lega“.

Sótt­varna­læknir minnti á að um spá væri að ræða, „þetta er ekki raun­veru­leik­inn og kann að breyt­ast frá degi til dags“.

Aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi eru meðal ann­ars þær að greina fljótt, ein­angra og setja í sótt­kví. Einnig hefur svo verið gripið til sam­komu­banns og þær aðgerðir verða hertar nú á mið­nætti. Enn er almenn­ingur hvattur til að sinna sótt­vörnum eftir fremsta megni, virða fjar­lægð­ar­mörk og vernda sér­stak­lega við­kvæma hópa.

„Það er mjög lítið smit meðal barna sem eru góðar fréttir,“ sagði Þórólfur á fund­inum. „Ég held að við séum á réttri leið.“

Munu ekki hika við að grípa til viðurlaga

Víðir Reyn­is­son var spurður á fund­inum hvort að gripið verði til sekta eða ann­arra við­ur­laga. Hann benti á að slíkar heim­ildir væru þegar fyrir hendi í sótt­varn­ar­lögum. „Okkur finnst 98 pró­sent alls almenn­ings vera að taka þátt í þessu með okkur. Við finnum það líka að þeir sem fara ekki eftir þessu verða fyrir aðkasti. En ef það þarf að grípa til harð­ari aðgerða þá munum við ekki hika við það en við teljum að lík­urnar á því séu ekki miklar.“

Þórólfur sagði að ekki væri fyr­ir­hugað að herða enn á reglum í sam­komu­banni. Slíkt væri ekki í deigl­unni eins og er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár