Staðan allt önnur en árið 2008

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í dag að þjóð­ar­búið stæði vel og væru Íslend­ingar í stakk búnir til að takast á við þær hremm­ingar sem þeir standa nú frammi fyrir.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin mun funda í hádeg­inu í dag vegna þess ástands sem upp er komið vegna COVID-19 og aðgerða banda­rískra stjórn­valda. Í kjöl­farið mun for­sæt­is­ráð­herra hitta for­menn flokka í stjórn­ar­and­stöðu til að fara yfir stöð­una.

Þetta kom fram í máli Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Á morgun mun rík­is­stjórnin eiga fund með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins en ætl­unin var að hafa þann fund í dag – en vegna tíð­inda næt­ur­innar er varða aðgerðir Banda­ríkja­for­seta þá var ákveðið að fresta þeim fundi til morg­uns.

„Það er ljóst að við stöndum frammi fyrir þreng­ingum. Þær verða tíma­bundnar og mun rík­is­stjórnin gera það sem þarf til þess að við munum koma stand­andi niður úr þessum hremm­ingum,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann á Alþingi.

Hún sagði enn fremur að þjóð­ar­búið stæði vel og að staðan væri allt önnur en árið 2008 þegar Íslend­ingar stóðu frammi fyrir þeim þreng­ingum sem lands­menn lentu í þá. Þeir væru með öfl­ugan gjald­eyr­is­vara­forða, lágt skulda­hlut­fall, jákvæðan við­skipta­jöfnuð og miklu minni skuld­setn­ingu heim­ila og atvinnu­lífs.

Fyrirtækin í landinu eru ekkert annað en fólkið sem þar vinnur

[links]„Staðan er góð og rík­is­stjórnin kynnti fyrstu aðgerðir nú í vik­unni til að styðja við fyr­ir­tækin í land­inu og það skiptir að sjálf­sögðu máli fyrir fólkið í land­inu. Því fyr­ir­tækin í land­inu eru ekk­ert annað en fólkið sem þar vinnur,“ sagði hún.

Katrín telur að þannig hafi þessi rík­is­stjórn ekki veikt jöfn­un­ar­tæki í land­inu heldur hafi aðgerðir hennar skilað auknum jöfn­uði, hvort sem litið sé til skatt­kerf­is­breyt­inga eða stór­auk­inna fjár­muna inn í heil­brigð­is­kerfið – sem skipti svo sann­ar­lega máli núna þegar þessi far­aldur geisar.

Þörf á frekari aðgerðum

„Þessi rík­is­stjórn hefur svo sann­ar­lega verið að styrkja vel­ferð­ar­kerfið og grunn­stoðir þess en staðan er þannig að við munum þurfa á þeim að halda og þær aðgerðir sem við kynntum á þriðju­dag voru ein­göngu þær fyrstu.

Við munum þurfa frek­ari aðgerðir í vinnu­mark­aðs­málum, félags­legum stöð­ug­leika og að sjálf­sögðu fjár­fest­ingu til að tryggja það að við komum stand­andi niður en það munum við gera,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár