Ertu örugglega danskur ríkisborgari?

Hann er sjö­tugur arki­tekt, hefur frá barns­aldri búið í Danmörku, aldrei kom­ist í kast við lögin og ætíð átt danskt vega­bréf. Nú á hann á hættu að verða vísað frá Danmörku.

John Ville Rasmus­sen, sem er fæddur árið 1950, flutt­ist til Dan­merkur með for­eldrum sínum þegar hann var barn að aldri. Að loknu grunn- og fram­halds­skóla­prófi gegndi hann her­þjón­ustu og lærði síðan húsa­gerð­ar­list. Hann hefur um ára­tuga­skeið rekið teikni­stofu í Óðins­véum, þar sem hann býr, og greitt skatta til sam­fé­lags­ins. Enginn hefur til þessa efast um að John Ville Rasmus­sen sé danskur eða eins og sagt er „pæred­ansk“ en nú telja dönsk stjórn­völd vafa leika á hvort hann sé Dani. Þetta hljómar ótrú­lega.

For­eldrar John Ville Rasmus­sen voru danskir. Þau voru sæfarar og flækt­ust víða um heim, bjuggu í mörgum löndum. Þegar John fædd­ist voru þau í Venes­ú­ela, þaðan fluttu þau til Banda­ríkj­anna og John var skírður þar. Fjöl­skyldan flutti aftur heim til Dan­merkur þegar John var fjög­urra ára og sett­ist að í Óðins­véum.

John Ville Rasmus­sen er giftur banda­rískri konu. Árið 1988 fékk hún ótíma­bundið land­vist­ar­leyfi í Danmörku (vegna þjóð­ernis eig­in­manns­ins) og þau eiga tvær dætur, 32 og 28 ára gamlar. Þær eru með tvöldan rík­is­borg­ara­rétt, danskan og banda­rískan. Þær búa báðar í Banda­ríkj­unum og þar byrj­aði þetta ein­kenni­lega mál. Önnur dætr­anna ætl­aði, í des­em­ber árið 2017, að end­ur­nýja danska vega­bréfið og fór þeirra erinda á dönsku ræð­is­skrif­stof­una í New York. Þar veittu starfs­menn því athygli að John Ville Rasmus­sen hafði fæðst í Venes­ú­ela, en sam­band Banda­ríkj­anna og Venes­ú­ela er stirt. Starfs­fólk ræð­is­skrif­stof­unnar fór fram á, við dótt­ur­ina, að hún myndi útvega fæð­ing­ar­vott­orð föð­ur­ins. Á end­anum fékk dóttirin vega­bréfið end­ur­nýjað, þótt hún hefði ekki fæð­ing­ar­vott­orð föð­ur­ins, en þar með var ekki öll sagan sögð.

Fæðingarvottorðið

Starfs­fólk ræð­is­skrif­stof­unnar í New York lét dönsk yfir­völd vita af því að dóttir John Ville Rasmus­sen hefði ekki getað útvegað fæð­ing­ar­vott­orð föð­ur­ins. Þetta vakti athygli danskra yfir­valda og starfs­fólk Útlend­inga- og inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins skrif­uðu föð­urnum og ósk­uðu eftir að hann legði fram fæð­ing­ar­vott­orð sitt og hjóna­vígslu­vott­orð for­eldr­anna, um 70 ára gömul skjöl. John Ville Rasmus­sen varð undr­andi á þess­ari beiðni en hann hafði hvorki frum­rit, eða stað­fest afrit fæð­ing­ar­vott­orðs né hjóna­vígslu­vott­orðs for­eldra sinna. Hand­skrifuð frum­rit, eða stað­fest afrit, þess­ara vott­orða er ekki auð­velt að útvega og ekki öruggt að þau fyr­ir­finn­ist í Venes­ú­ela. For­eldrar John Ville Rasmus­sen lét­ust báðir á níunda ára­tugnum.

Í meira lagi undarlegt

Danskir fjöl­miðlar hafa að und­an­förnu fjallað tals­vert um þetta mál, en það var danska útvarpið, DR, sem fyrst komst á snoðir um málið fyrir skömmu. Í við­tali við DR fyrir nokkrum dögum sagð­ist John Ville Rasmus­sen hvorki botna upp né niður í þessu öllu saman. „Eftir ára­tugi, þar sem eng­inn hefur efast um þjóð­erni mitt, er ég nú allt í einu í þeirri stöðu að þurfa að sanna hver ég er. Og það er allt annað en auð­velt.“

En spyrja má, voru ekki for­eldrar hans skráðir í dönsku þjóð­skránni og sást ekki þar að þau voru hjón? Svarið er að þannig ætti það að vera. En John Ville Rasmus­sen segir að í dönsku þjóð­skránni vanti kenni­tölur for­eldr­anna (cpr-numre). Ekki veit hann hvernig á því stendur en grunar að gerð hafi verið mis­tök þegar þjóð­skráin var færð í tölvu­kerfi. For­eldrar hans voru látnir þegar það var gert og sú stað­reynd, að kenni­tölur þeirra sé ekki að finna í dönsku þjóð­skránni hefur ekki upp­götvast, fyrr en nú. Yfir­völdin segja að út frá þjóð­skránni sé ekki hægt að sjá að hann sé barn danskra for­eldra.

Venju­lega tekur með­ferð mála hjá Útlend­inga- og inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu minna en eitt ár en nú eru liðin meira en tvö ár síðan mál John Ville Rasmus­sen rataði inn á borð ráðu­neyt­is­ins. Og þar er það enn.

Eiginkonan og dæturnar uggandi

Elisa­beth Rasmus­sen, eig­in­kona John Ville, er banda­rísk eins og áður var nefnt. Hún hefur um langt ára­bil starfað sem kenn­ari en nú veit hún ekki hvað verður. „Ég hef verið hér í Danmörku miklu lengur en í Banda­ríkj­unum þótt ég hafi fæðst þar og alist upp. Ég botna bara ekki í þessu.“ Sama gildir um dæt­urnar tvær.

Þingmenn sauma að ráðherranum

Þetta sér­kenni­lega mál hefur ekki farið fram­hjá dönskum þing­mönnum. Og þeim blöskrar. Peder Hvelplund, tals­maður Ein­ing­ar­list­ans í mál­efnum inn­flytj­enda sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að þetta mál væri hreint út sagt fárán­legt. Hann benti á að í sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar væri sér­stak­lega kveðið á um að „draga úr skriffin­sku og fjar­lægja þýð­ing­ar­lausar reglur til ein­föld­unar í stjórn­sýsl­unni. Þetta mál er mjög aug­ljóst dæmi um það sem rík­is­stjórnin vill útrýma, en gerir hins­vegar ekki.“

Margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa talað í sama dúr, einn þeirra sagði að í ráðu­neyt­inu ætti að vera fólk sem gæti lagt saman tvo og tvo. Það væri út í hött að efast um þjóð­erni manns sem alist hefði upp í Danmörku og búið þar í meira en sex ára­tugi, allan tím­ann haft danskt vega­bréf og gegnt her­þjón­ustu. Nokkrir þing­menn hafa kraf­ist þess að Mattias Tesfaye ráð­herra útlend­inga- og inn­flytj­enda­mála bregð­ist við. Með laga­breyt­ingum.

Ráð­herr­ann sagð­ist, í við­tali við danska útvarpið, ekki telja að þörf væri á laga­breyt­ingum vegna þessa máls. Hann sagði að þetta sner­ist ekki um að fjöl­skyldu John Ville Rasmus­sen yrði vísað úr landi, ein­göngu um það hvort John Ville Rasmus­sen gæti lagt fram papp­íra sem sýndu, með ótví­ræðum hætti, að hann væri danskur rík­is­borg­ari. Þegar ráð­herr­ann var spurður hvort hann gæti lýst því yfir að John Ville Rasmus­sen yrði ekki vísað úr landi sagð­ist hann vita­skuld ekki geta það. En bætti svo við að hann teldi að John Ville Rassmus­sen og fjöl­skylda hans þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að verða vísað úr landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár